Ákall Ingibjargar um þjóðarsátt hjóm eitt



  Ákall formanns Samfylkingarinnar, Ingibjargar Sólrúnar Gísla-
dóttir um þjóðarsátt er hjóm eitt. Á sama tíma sem Ingibjörg
Sólrún fríar sig allri ábyrgð á því efnahagsöngþveiti sem hún
og flokkur hennar hafa skapað s.l ár, varpar hún allri sök á
fyrrverandi ríkisstjórn. Stjórnmálamaður sem þannig talar og
hefur auk þess misst alla trú á íslenzkri framtíð, en vill þess
í stað ofurselja Íslandi Brusselvaldinu á hönd, og þar með að
kljúfa þjóðina í herðar niður, á ekki skilið neinar undirtektir um
þjóðarsátt.

  Krafa dagsins í dag er því sú að slíkur stjórnmálamaður með
þannig framtíðarsýn, sem auk þess er að skapa mikla kjara-
skerðingu hjá íslenzkum almenningi vegna aðgerðarleysis í
efnahagsmálum, á að fara frá völdum, og það þegar í stað !  

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

þú meinar þá að fylleríið undanfarin 4-5 ár hafi ekkert að segja?

Brjánn Guðjónsson, 1.5.2008 kl. 13:08

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Bjarni.Þessi sósíaldeókratiska ríkisstjórn hefu EKKERT gert í efnahagsmálum. Tók við mjög góðu búi, og er nú að glutra því öllu
niður á met tíma. Hvers vegna hefur ekki verið breytt um peninga-
stefnuna t.d? Hvers vegna er minnsti gjaldmiðill í heimi ennþá
látin fljóta í ólgusjó alþjóðlegra peninga-og gjaldeyrismarkaða?
Hvers vegna er ekki fyrir lífandis löngu búið að taka krónuna af
gjaldeyrismörkuðum, og taka upp myntsamstarf, t.d við Norðmenn?
Sem myndi strax koma á stöðugleika í gjaldeyrismálum, og þar með
minnkun verbólgu og lækkun vaxta. Hvers vegna hefur EKKERT
verið gert  af viti s.l ár í efnahagsmalum? Hvers vegna ?

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 1.5.2008 kl. 13:17

3 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Fyrri ríkisstjórn hafði nú 12 ár t.d. til að koma upp hér gjaldeyrisvarasjóð. Hún var vöruð við þennslu sem mundi koma í kjölfar Kárhnjúka og Reyðaráls ofan á annað. Ríkistjónin nú er búinn að vera 11 mánuði við völd og það skall á heimskreppa í bönkum og lánsfé stoppaði. Held að Norðmenn mundu ekki vilja okkur inn í myntbandalag við sig. Annars hefðu þeir boðið það.

Eina lausnin að ganga í ESB eins og ég oft sagt. 

Magnús Helgi Björgvinsson, 1.5.2008 kl. 13:32

4 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Og það er engin að fara að gera þjóðarsátt við eða fyrir Ingibjörgu. Heldur verður það þjóðin sem semur við aðila ríkis, sveitarfélaga og atvinnulífið um ráðstafanir til að draga úr verðbólgu.

Ingíbjörg er ekki sjálfstæður samningsaðili eða Samfylking.  

Magnús Helgi Björgvinsson, 1.5.2008 kl. 13:34

5 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Magnús. Yfir 70% kaupmáttaraukning var í tíð fyrri ríkisstjórnar.
Nú er kaupmáttur kominn í mínus. Magnús. Ef við förum t.d í mynt-samstarf við Norðmenn er allar líkur á því að sá gjaldeyrisvarasjóur
sem við eigum í dag dugi. Alild að ESB og evru er hins vegar 100%
ávísun á BULLANDI ATVINNULEYSI og KREPPU, og það TIL FRAMBÚÐAR!  Ingibjörg og Samfylkingin eiga 100% ábyrgð á því
efnhagslega öngþveiti og stjórnleysi sem við búum við í dag, Sjálfstæðisflokkurinn er í vondum félagsskap, og á því að losa sig
við Samfylkinguna sem fyrst. Hún hefur enga trú á ÍSLENZKRI
framtíð, heldur vill OFURSELJA íslenzkt fullveldi og sjálfstæði til
Brussel.  Burt með slíkan flokk úr ríkisstjórn Íslands !

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 1.5.2008 kl. 13:51

6 Smámynd: Kristján Pétursson

Guðmundur ,þeir sem ýttu krónunni á flot,og hækkuðu húsnæðisláninlánin í 90% bera í dag höfuðábyrgð á efnahagsástandinu.Samábyrgð ykkar Framsóknarm.er augljós,en þeir sem vilja ýta skítnum á undan sér og moka aldrei flórinn verða bara að búa við það.Núverandi ríkistjórn er ekki heldur í neinu uppáhaldi hjá mér,en Framsóknarfl.vil ég ekki aftur í ríkisstjórn,þarf varla að rökstyðja það er svo augljóst.

Kristján Pétursson, 1.5.2008 kl. 15:14

7 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Kristján. Peningastefnan er löngu gjaldþrota. Af hverju hefur EKKERT verið gert í því að GRUNNBREYTA henni svo hægt verður að
keyra niður vexti og verðbólgu á örfáum mánuðum? Það þarf mjög
svo heilalausa hausa að sjá það ekki  það er GJÖRSAMLEGA út í hött að láta minnsta gjaldmiðil heims vera algjörlega FLJÓTANDI í þeim ólgusjó alþjóðlegra peningamála sem nú hefur verið síðustu misseri. Hef stutt þá hugmund að taka krónuna af gjaldeyrismarkaði, og taka upp myntsamstarf við t.d  Norðmenn. Það yrði fljótvirkasta og skynsamlegasta  leiðin til að ná tökum á efnahagsmálum. Upptaka evru og ESB-aðild tæki miklu lengri tíma fyrir þá sem það vilja. Nei, það er sko alls ekki hægt að saka fyrrverandi ríkisstjórn fyrir ástandið í dag. Því það hefði svo margt verið hægt að gera til að milda ástandið og horfunar ef vilji hefði verið hendi.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 1.5.2008 kl. 15:34

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þjóðarsátt fór hún virkilega að tala um þjóðarsátt, þegar hún tyllir tánum niður á klakann.  Hún hefur valdið mér gífurlegum vonbrigðum þessi kona sem talaði svo fjálglega fyrir kosningar, og hverjar eru efndirnar.  Hún virðist ganga undir öllu sem Geir segir.  Enginn fyrirstaða neinsstaðar, Fagra Ísland hvað? Réttlæti til handa öryrkjum og öldruðum hvað ? Jafnræði meðal þegnanna hvað?

Nei þjóðarsátt verður á öðrum tíma með öðru fólki.

Hins vegar minn kæri getur Framsóknarflokkurinn ekki þvegið hendur sínar af ástandinu.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 1.5.2008 kl. 16:37

9 Smámynd: Bumba

Eruð þið hissa? Ég hef margsagt það og segi enn þessi mannsekja Ingibjörg Sólrún er algjör tækifærissinni. Ég er algjörlega sammála frú Ásthildi. NIÐUR MEÐ SAMFLKINGUNA. Með beztu kveðju.

Bumba, 2.5.2008 kl. 00:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband