Skrípaleikur ríkisstjórnarinnar í Evrópumálum


   Eftir hið furðulega útspil dómsmálaráðherra um upptöku evru án ESB-
aðildar kemur berlega í ljós að ríkisstjórnin er þverklofin í málinu, og
það þvert á stjórnarflokkanna. Þannig telur forsætisráðherra og utan-
ríkisráðherra hugmyndina óraunsæja meðan iðnaðarráðherra hrósar
dómsmálaráðherra fyrir útspilið og hvetur til að ríkisstjórnin vindi sig
í að hafa samband við Brussel um málið. Í millitíðinni skellihlæja  Brussel-
topparnir og segja hugmyndina út úr kú. Upptöku evru án ESB-aðildar
komi ekki til greina!

  Hvers konar skrípaleikur er þetta? Eru Evrópumálin aldrei  rædd í ríkis-
stjórn? Ekki einu sinni innan raða ráðherra Samfylkingarinnar? Hvers
vegna þá þessi ólíka sýn Össurar og Ingibjargar á málið? Össur telur
alla vega útspil Björns  raunhæft en Ingibjörg ekki. Björn Bjarnason
telur útspil sitt meiriháttar raunhæft, en Geir H Haarde ekki.

  Þvílíkt og annað eins!

  Er ekki kominn tími til að  þessi Jó jó ríkisstjórn segi af sér?
mbl.is Myntsamstarfsleið ekki fær
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Guðmundur.

Það er alveg rétt er hér er ákveðinn skrípaleikur í gangi.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 16.7.2008 kl. 01:01

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Komið þið sæl

Þetta er svona þegar leiðakerfið verður of flókið. Best er að halda hlutunum einföldum eins og Geir H. Haarde gerir.

Þriðja og fjórða augað. Hvað sagði ég ekki? Nú er kanski hægt að fara að bretta upp ermarnar og skreppa aðeins inní raunveruleikann aftur. Smölun mun fara fram bráðum. Réttir fara að hefjast.

Leikin voru lögin við vinnuna

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 16.7.2008 kl. 17:20

3 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Takk fyrir innlegg ykkar hér Guðrún og Gunnar.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 16.7.2008 kl. 20:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband