Efnahagsleg hryðjuverkastarfsemi


   Sú ákvörðun umhverfisráðherra Samfylkingarinnar að ógilda
ákvörðun  Skipulagsstofnunar um  mat á  umhverfisáhrifum  á
byggingu álvers við Húsavík, og setja það í skvokallkað heilstætt
mat, er ekkert annað  er hrein og klár efnahagsleg hryðjuverka-
starfsemi. Hér er ráðherra að gera allt sem í hans valdi stendur
til að koma í veg fyrir byggingu álvers á Bakka við Húsavík. Sam-
fylkingin ber fulla ábyrgð á gerðum ráðherra. Nú liggur það endan-
lega fyrir hversu álvarlegur dragbítur Samfylkingin er orðin á ís-
lenzkt atvinnu-og efnahagslíf.  

  Við núverandi efnahagsþrengingar er grundvallaratriði að ríkis-
stjórnin blási nýju lífi í efnahagslíf þjóðarinnar. Það gerir hún
með því að hvetja til og vinna að uppbyggingu atvinnulífsins
þar sem okkar dýrmætu endurnýjanlegu orkulindir eru nýttar.
Stóðiðja er þar einn kostur af mörgum. Þar sem vilji er fyrir hjá
erlendum fjáfestum  að koma að byggingu álvers við Húsavík
ber auðvitað að fagna því og greiða fyrir því á allan hátt að af
slíkri framkvæmd verði. Ákvörðun umhverfisráðherra gengur í
þveröfuga átt. Ráðherra  og  Samfylkingin  á því  tafarlaust að
hverfa úr ríkisstjórn Íslands.

   Skilnings- og áhugaleysi Samfylkingarinnar á grundvallarþáttum
íslenzks efnahagslífs er ALGJÖRT. Trúleysi Samfylkingarinnar á ÍS-
LENZKA framtíð er sömuleiðis ALGJÖRT. Áform Samfylkingarinnar
um að troða Íslandi inn í ESB með tilheyrandi fullveldisskerðingu
og afhendingu dýrmætra auðlinda í hendur útlendingum sannar
það.  - Slíkur flokkur á EKKERT erindi til áhrifa í íslenzkum stjórn-
málum.

  Ábyrgð Sjálfstæðisflokksins hafnandi slíkan samstarfsflokk með
sér í ríkisstjórn er því mikil. Þegar farið að bitna alvarlega á þjóð-
arhag. - Við það verður ekki unað lengur.

  Ríkisstjórn með jafn óþjóðlegum og afturhaldssömum flokki  og
Samfylkingin er VERÐUR því að fara frá og það strax. Að öðrum
kosti verður alvarleg og langvinn kreppa framundan í íslenzku
þjóðfélagi.

 
l

  
mbl.is Framkvæmdir metnar heildstætt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Mæl þú manna heilastur

Jón Aðalsteinn Jónsson, 31.7.2008 kl. 20:11

2 Smámynd: Jón Magnússon

Þakka þér fyrir þetta. Nú erum við virkilega sammála.

Jón Magnússon, 31.7.2008 kl. 20:15

3 Smámynd: Óskar Aðalgeir Óskarsson

Sæll, það virðist vera stefna þessarar ríkisstjórnar að reka sem flesta Íslendinga í gjaldþrot,og þar á Samfylkingin stóran þátt.Jafnaðarmennska þeirra virðist felast í því að allir hafi það jafn skítt.

Óskar Aðalgeir Óskarsson, 31.7.2008 kl. 20:52

4 Smámynd: Jónas Jónasson

Samfylkingin ógnar okkur meir en náttúruhamfarir!

Jónas Jónasson, 31.7.2008 kl. 21:03

5 Smámynd: Sigurður Hrellir

Hvað er að því að meta umhverfisáhrifin heildstætt? Finnst ykkur að það eigi að skjóta fyrst og spyrja svo?

Persónulega finnst mér það líka mjög óþjóðlegt að gefa skít í landið sitt. Efnahagsþrengingarnar munu ganga yfir á nokkrum árum en náttúran verður aldrei söm. 

Sigurður Hrellir, 31.7.2008 kl. 21:04

6 Smámynd: Rauða Ljónið

  Halda mætti að Samfylkingin og umhverfisráðherra byggi í öðru sólkerfi, ,,Kaffihúsasólkerfinu,, eins og þessar bloggsíður bera með sér, Sjá og svo þessi.

       Á tíma atvinnuleysis þúsundir missa vinnu, óðaverbólgu og gjaldþrot heimilanna og fyrirtækja, en í Viðskiparablaðinu síðasta föstudag eru 200 fyrirtæki komin í gjaldþrot , og talið að innan skamms fari talan í 500.

Þó þessar tölur séu borðleggjandi  þá er ákvörðun Samfylkingar að auka en vandan og auka á atvinnuleysið og stuðla að fleiri gjaldþrotum.

Dæmi.: 

Erlendir starfsmenn Flýja frá landinu

Árið 2007 fengu um 13.500 útlendingar dvalar- og atvinnuleyfi hér á landi, svipað og í Finnlandi, þar sem íbúar eru 5 milljónir.

 Umsóknum um hvers kyns E-vottorð fyrir fólk sem starfað hefur hér á landi en hyggst leita vinnu annars staðar á Evrópska efnahagssvæðinu hefur fjölgað umtalsvert á milli ára samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar.

. Hjá Vinnumálastofnun á höfuðborgarsvæðinu, eru umsóknirnar um hvers kyns E-vottorð orðnar á bilinu 1200-1300 það sem af er ári en þær voru um 200 á fyrstu fjórum mánuðum síðasta árs. Stærstur hluti umsóknanna kemur frá Pólverjum.

Straumurinn liggi nú frá landinu ekki til landsins.

 

Hátt í 500 sagt upp í fjöldauppsögnum í sumar

31. júl. 2008 11:35

Samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun hefur um 471 starfsmanni verið sagt upp í fjöldauppsögnum í júní og júlí. Í fréttum í gær kom fram að 57 starfsmönnum Ræsis var sagt upp sem og 57 starfsmönnum hjá leikfangaverslunum Just 4 Kids.

Þrátt fyrir að veðrið leiki við landsmenn þessa dagana er fullt af fólki sem hefur misst vinnuna það sem af er sumri. Í júní var tilkynnt um fjöldauppsagnir hjá þremur fyrirtækjum. Hjá byggingarfélaginu Byggt var 27 starfsmönnum sagt upp, 207 var sagt upp hjá Icelandair og flugþjónustan sagði upp 70-75 manns.

Nú í júlí hafa komið inn á borð til vinnumálastofnunar uppsagnir hjá Ræsi og Mest. 57 starfsmönnum var sagt upp hjá Ræsi og á bilinu 60-80 hjá Mest. Þá kom fram í fréttum Sjónvarps í gær að 57 starfsmönnum var sagt upp í tveimur verslunum Just 4 kids, sem opnuðu fyrir rúmlega átta mánuðum.

22.7.2008 | 19:16

Missa 200 manns vinnuna við yfirtöku Kaupþings á Spron?

Það er athyglivert að Morgunblaðið skuli birta þá forsíðufrétt að allt að 200 manns muni missa vinnuna við samruna SPRON og Kaupþings en sparisjóðsstjórinn neita sannleiksgildi fréttarinnar.

 

24.5.2008 Verslanakeðjunnar MK One hefur verið sagt upp, en nýir eigendur keðjunnar hafa sett hana í gjaldþrotameðferð. Alls fengu 39 starfsmenn að vita það að þeir myndu missa vinnuna,. 11.07.2008 Sjötíu manns var sagt upp hjá Nóatúni vegna þess að loka á þremur verslunum. Bjarni Friðrik Jóhannesson, rekstrarstjóri Nóatúns, segir að 70 manns hafi verið sagt upp en fyrirtækið hafi reynt að útvega fólki störf annars staðar.14.04.2008Áttatíu og átta starfsmönnum Glitnis hér á landi hefur verið sagt upp störfum. Uppsögnin þýðir að hátt í tíu prósent af öllu starfsfólki fyrirtækisins á Íslandi missa vinnuna.

 Icelandair.

Icelandair sagði upp 207 starfsmönnum í júní.

Meðal þeirra sem sagt verður upp eru 60 flugmenn og 150 flugfreyjur. Auk þeirra mun starfsfólk sem vinnur í fyrirtækjum sem þjónusta Icelandair á Keflavíkurflugvelli missa vinnu sína. Þessar uppsagnir eru með þeim umfangsmestu í sögu flugrekstrar hér á landi. 25.1.2008 Öllu starfsfólki fiskvinnslu Péturseyjar ehf. í Vestmannaeyjum, tólf manns, hefur verið sagt upp störfum og tekur uppsögnin gildi um næstu mánaðarmót. Guðjón Rögnvaldsson, fram­kvæmd­a­stjóri fyrirtækisins segir að uppsagnirnar megi rekja til niðurskurðar í þorskkvóta. Blaðið Vaktin í Eyjum skýrir frá þessu.

Uppsagnir hjá HB Granda

5. maí, 18:48 -           Útgerðarfyrirtækið HB Grandi sagði upp öllum starfsmönnum fiskimjölsverksmiðju sinnar á Akranesi í dag. Starfsmennirnir eru alls fjórir talsins. Forstjóri HB Granda, Eggert Guðmundsson, segir gripið til þess ráðstafa sökum þess að ekki hafi náðst sá árangur í rekstri verksmiðjunnar sem vonast var eftir. Vefsíða Skessuhorns greinir frá þessu í dag.

Uppsagnir í bolfiskvinnslu ná til 300 starfsmanna.

 

 Einar K. Guðfinnsson, sjávar- og landbúnaðarráðherra, sagði á Alþingi í dag að uppsagnir í bolfiskvinnslu nái til um 300 starfsmanna á yfirstandandi fiskveiðiári en þær séu sumar tímabundnar og  sumar komi ekki til framkvæmda fyrr en síðar á árinu.

Veiðiheimildir sópast á fárra hendur

Þriðjudagur, 29. janúar 2008Veiðiheimildir muni sópast á hendur fárra fyrirtækja og störfin hverfa í hverju þorpinu á fætur öðru eins og dögg fyrir sólu og fólkið á eftir þeim.-Kristinn sagði ,að 1000 manns myndu missa vinnuna vegna niðurskurðarins. Einar K.Guðfinsson sagði,að  300 myndu missa vinnuna vegna uppsagna  í bolfiskvinnslu.540 missa vinnu í fiskvinnslu Steypustöðin  Mest segir upp 30 manns nú um mánaðarmótin og Síminn er að segja upp nokkrum starfsmönnum.

5. júní 2008

JB byggingarfélag, dótturfélag Stafna á milli, sagði í síðustu viku upp 28 starfsmönnum. JB er  Íbúðir í byggingunum á Akranesi. Engum starfsmanni hefur verið sagt upp hjá útibúi Glitnis á Ísafirði, en bankinn tilkynnti í gær um uppsagnir 88 starfsmanna hér á landi. Friðbert Traustason, framkvæmdastjóri Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja, segir að uppsagnir starfsfólks hjá Glitni í dag hafi ekki verið óvæntar þar sem bankinn hafi upplýst samtökin um, að verið væri að skoða öll starfsmannamál. Umfangið hafi þó komið á óvart. Friðbert segir, að meðal þeirra sem sagt hefur verið upp séu 23 starfsmenn, sem sagt var upp í apríl en 65 hafi verið sagt upp nú í maí.

600 í fjármálageiranum.

 Geysilegum uppgangi og fjölgun starfsmanna í íslenska fjármálageiranum er lokið, að minnsta kosti um stundarsakir.niðursveifla kemur til með að vara, sem nú ríkir, og jafnútilokað sé að segja til um það, hvenær botninum verði náð.Á liðnu ári mun störfum í fjármálageiranum íslenska hafa fjölgað um nálægt 650 stöðugildi og telja sérfróðir menn á fjármálamarkaði að fækkun starfsmanna í fjármálageiranum á þessu ári muni að minnsta kosti nema þeirri tölu. 

 

Rauða Ljónið, 31.7.2008 kl. 21:06

7 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Guðmundur.

Algjörlega sammála þér eins og svo oft áður.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 31.7.2008 kl. 23:29

8 identicon

Alveg sammála þér Guðmundur.  Sjálfstæðisflokkurinn ætti að slíta þessu stjórnarsamstarfi áður en fleir gereyðingarsprengjum verður varpað út af hálfu þessa umhversráðherraómyndar.  Mynda þarf ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Frjálslyndra.

ÞG (IP-tala skráð) 1.8.2008 kl. 00:59

9 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Þakka ykkur öllum fyrir innleggin hér.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 1.8.2008 kl. 21:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband