Bangladess, Albanía og Betlehem


    Hvar eru helstu ráðamenn þjóðarinnar þessa daganna? Þegar
þjóðin á við mikla efnahagserfileika að stríða! Þegar míkils er um
vert að forystumenn þjóðarinnar sýni aðhald á öllum sviðum og
vinni að  lausn aðsteiðjandi vandamála sem fyrst.

   Hver eru hagsmunatengsl Ísland við Bangladess?  Forsetinn er
þar!  Eða Betlihem?  Utanríkisráðherra var þar í gær. Eða Albaníu
sem forsætisráðherra heimsótti í vikunni?

   Hér hefur verið gert að umtalsefni hvernig utanríkisráuðuneytið
hafi þanist út á s.l árum og hvernig forsetaembættið hefur einnig
þanist út varðandi rekstrarkostnað þess, í engu samræmi við
mannfjölda þjóðarinnar.  Miðað við umfangið mætti halda að hér
byggi fleiri milljóna þjóð!  Hvers konar rugl og skrípaleikur er þetta
eiginlega? Í hvaða fílabeinsturni eru helstu ráðamenn þjóðarinnar
komnir?

   Þjóðinni finnst þetta ekki boðlegt lengur. Meðan hún á að herða
sultarólina spranga helstu ráðamenn þjóðarinnar út og suður um
heiminn  í vandséðum tilgangi.  Alla vega ekki til eflingar þjóðarhag
eins og ofangreindar ferðir bera með sér. 

   Svo míkið er víst !!
mbl.is Ólafur Ragnar í Bangladess
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: haraldurhar

    Ekki máttu gleyma Birni Bjarasyni hann hefur dvalið alla vikuna í Þýskalandi og skaust svo til Eystlands í gær.  Hann hefur verið að kynna sér þýsku leyniþjónustuna og öryggismál.  Það ætlar seinnt að renna upp fyrir þessum kálfum, að þeirra bíði verkefni hér heima, en ekki á stöðugum flækingi erlendis með tilheyrandi kostnaði.  Það ætti að klippa Visakortin þeirra ekki seinna en í dag. 

haraldurhar, 30.8.2008 kl. 15:03

2 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Hvaða erfiðleika? Það er ekkert atvinnuleysi. Kaupmáttur hefur á síðustu árum hækkað um 30 til 40%.

Verum ekki að mála ástandið svartara en það er! Held að ennþá sé kreppan mest í fjölmiðlum.

Við eru ekki að tala um hluti eins og eldsneyti og annað sem við ráðum hvort eð er ekki við. Og mér skilst að það sé hærra erlendis. Ég bið nú ekki í það ef það kæmi þensla inn þá verðbólgu sem nú er með einhverjum flýti ákvörðunum. Vélsmiðjan Hamar var að auglýsa eftir iðnaðarmönnum í starfstöðvar sínar um allt land. í dag kom fram að illa gengur að manna álverið í Reyðarfirði og hafa þeir gengið hart eftir ungu fólki þannig að framhaldsskólar eru að tæmast þar.

Það er engin kreppa kominn. Hún kemur kannski en engar ófljótfærnis aðgerðir takk fyrir!

Magnús Helgi Björgvinsson, 30.8.2008 kl. 15:28

3 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Magnús minn. Veit ekki í hvaða krata-heimi þú ert eiginlega. Kynntu þér
t.d áhyggjur ASÍ, en helsti talsmaður þess var í vikulokin hjá RÚV í morgun.
Tek miklu meira mark á honum en þér og öðrum veruleikafirrtum krötum.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 30.8.2008 kl. 15:58

4 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Haraldur. Björn Bjarnason var jú í Þýzkalandi. En þar liggja mikil vináttu-
og hagsmunabönd, sem vert er að stórefla, ekki síður á sviði öryggis- og
varnarmála.  Þannig er Þýzkalandsferð dómsmálaráðrérra réttlætanleg og
í alla staði skiljanleg. Eigum einmitt að rægta þau sambönd sem koma
íslenzkum hagsmunum við.  Sé þau hins vegar alls ekki í Bangladess,
Betelem og því síður  Albaníu.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 30.8.2008 kl. 16:45

5 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Guðmundur.

Þetta er alveg hárrétt, þetta eru ekki skilaboð um ráðdeild og sparnað hvað þá framkvæmd mála í því efni frá ráðamönnum.

Sjái menn ekki það atriði hvernig vaxtakostnaður sigar heimilin í landinu, sem og fyrirsjáanlegt atvinnuleysi hluta manna á vinnumarkaði, þá er það ansi sérkennilegt.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 31.8.2008 kl. 00:19

6 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Allt þetta ræserí hjá Ríkisspenafólkinu bendir til eins. Það hlýtur að vera orðið verulega leiðinlegt og tríst að búa á Íslandi. Þeir sem geta það, ferðast og reyna að halda sig í burtu og það helst á kostnað vinnandi fólks í landinu.

Hvað varða Ólaf Víðförla og andlega frænku hans, Ingibjörgu Sólelsku, þá er það alvitað mál, að vinstri menn vilja betri kjör (sín). Þegar þeir eru komnir til valda eða búnir að koma sér fyrir í kerfinu, þá hefst ótakmörkuð veisla, til að ná öllu sem kapítalistarnir hafa fengið. Þetta er nefnilega spurning um "réttlæti" og "verðmætaskptingu" á milli þeirra sem völdin hafa.  Sumir hafa rétt til þess að skapa verðmæti og aðrir telja sig eiga rétt á því að eyða þeim. Svo er bara sagt að  veislan sé í nafni glóbalísma, friðar á jörðu, heimsátaks og annarra flottheita.

Þetta er siðleysi, en siðlaust fólk sér sjaldan galla sína.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 31.8.2008 kl. 10:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband