Rússar vinir í raun


   Jákvæð afstaða Rússa til að koma Íslendingum til hjálpar þegar
Ísland á í einum  mesta  efnahagsvanda sem  sögur fara af,  ber
vott um mikla vináttu Rússa í garð íslenzkrar þjóðar. Rússar voru
á sínum tíma meðal fyrstu þjóða til að viðurkenna lýðveldistökunna
1944, og studdu okkur dyggilega í þorskastríðunum. Fram kom hjá
forsætisráðherra að Íslendingar hafi leitað til þeirra þjóða sem þeir
hafi talið sem vinaþjóðir en ekki haft erindi sem erfiði. Rússar hafa
þannig einir þjóða sýnt erfiðleikum Íslendinga skilning.

   Í ljósi alls þessa hljóta samskipti Íslendinga við Rússa að stór-
eflast í framtíðinni.  Við hljótum að snúa okkur til vina í raun!


mbl.is Seðlabankastjóri: Viðræður standa yfir við Rússa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Tek undir þetta heilshugar. Össur sagði að USA hefði bara sent okkur puttann þegar við ræddum við þá. Merkilegt í því ljósi að við leyfðum þeim að nota landið okkar sem herstöð í 50 ár.

Og rétt hjá þér með stuðning Rússa t.d. þegar sett var hafnbann á Ísland í landhelgisstríðum.  Reyndar voru það Sovétríkin þá og þótti ekki leiðinlegt að stríða Nató aðeins í staðinn. En flott hjá þeim og gott hjá Geir að segja frá þessu við erlenda blaðamenn í dag.

Magnús Helgi Björgvinsson, 7.10.2008 kl. 18:10

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Rússar hafa ætíð sýnt okkur velvild og virðingu. Og nú hefur seðlabankastjóri upplýst um hræsni Bandaríkjamanna, og hrósað Rúsum
fyrir vinargreiðann. - Eigum nú að stórauka okkar samband við Rússa, og
setja grænt ljós á byggingu olíuhreinsistöðvar þeirra hér.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 7.10.2008 kl. 20:31

3 identicon

Mér verður virkilega flökurt! Jafnmikið flökurt og ég er búin að vera yfir sleikjuskapinn við USA

Thor Svensson (IP-tala skráð) 7.10.2008 kl. 20:41

4 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Ég sé ekkert athugavert að efla samskipti við Rússa.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 7.10.2008 kl. 23:25

5 Smámynd: Jón Valur Jensson

Talaðu ekki um "hræsni Bandaríkjamanna," vinur minn Guðmundur Jónas, því að vísbendingar eru um, að þeir hafi haft gildar ástæður til að setja sérstaka skilmála fyrir lánveitingu til okkar (skilmála sem menn virðast núi farnir að viðurkenna, að séu raunar tímabærir);  og hlauptu ekki á þig með því að hrósa hinni "valdfreku" stjórn Pútíns og því "kerfi þar sem handbendi hans úr KGB hafa einkavætt ríkið, einokað fjölmiðlana, rutt pólitískum hindrunum úr vegi og komið á eins konar neytendagúlagi þar sem tjáningarfrelsi fólks er takmarkað." Þessi tilvitnun er ekki að ósekju tekin úr kynningu Sjónvarpsins á tveggja hluta kvikmyndinni Kerfi Pútíns (Le système Poutine), sem góðu heilli verður endursýnd í Sjónvarpinu laugardaginn kemur, 18. október, kl. 13.05, og viku seinna, 25. okt. kl. 13.05. Bendi þér sérstaklega á þetta með vinarhug, þar sem mér virðist á skrifum þínum viðvíkjandi Rússum síðan í ágúst sl., að þessar myndir, sem sýndar voru í Sjónvarpinu fyrir ca. 9 mánuðum eða fyrr, hafi með öllu farið fram hjá þér.

Með beztu kveðju,

Jón Valur Jensson, 11.10.2008 kl. 10:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband