DV með lögregluna í einelti


   Það er grafalvarlegt mál hegar heill fjölmiðill setur lögregluna
í einelti. Síðast í dag er heil fréttaskýring DV um tæki og tól
lögreglunar í tortryggilegri frásögn. Blaðamenn DV gera sér
sérstaka ferð upp í Hvalfjörð til myndatöku af einhverjum bíl
sem þeir segja verða notaðan í götuóeirðir, og allt í þesssum
dúr.  Hefur DV verið með lögregluna nánast á heilanum að
undanförnu. Allt undir neikvæðum formerkjum.

   Hvað gengur  DV til? Er það ekki bara hið besta mál að lög-
reglan sé eins vel mönnuð og búin tækjum eins og kostur er
hverju sinni? Að hún geti tekist á við hin margvíslegustu verk-
efni sem upp kann að koma?  Er lögreglan ekki fyrst og síðast
fyrir okkur borgaranna? Kemur okkur til hjálpar ef í nauð rekur?
Að á Íslandi skuli lög og regla ríkja? - Ef þetta er frumskylda
lögreglu, hvað er þá málið?  Því er þá verið  að  tortryggja störf
lögreglu ? Svona nánast endalaust af ritstjórn DV ?  Hvaða
hvatir búa hér eiginlega  að baki?

  DV-menn. Þetta er nánast orðið sjúkt hjá ykkur ! Fyrir utan
hvað þetta er að senda kolröng skilaboð út í samfélagið.  Og
það á viðkvæmum tímum.
    
mbl.is DV segir yfirlýsingar ríkislögreglustjóra villandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mikið er ég feginn að einhver fjölmiðill skuli taka það að sér að gagnrýna yfirlýsingar lögreglunnar. Flestir túlka allt sem frá lögreglunni kemur sem heilagan sannleik.

Jón Þór (IP-tala skráð) 11.11.2008 kl. 17:19

2 identicon

Gæti ímyndað mér að DV sé fyrst og fremst að reka alla lygina ofan í dómsmálaráðherrann og drusluna hans, ríkislögreglustjórann.

Þessir fóstbræður hafa logið þyndarlaust og fráleittt að nokkur fjölmiðill eigi að láta þá komast upp með það. Að vísu er hefð fyrir því að Moggin leyfi lygi hins opinbera og komið hafa fram upplýsingar um að Mogginn hafi meira að segja komið að því að skipuleggja lygi yfirvalda að þjóðinni.

Guðmundur Sigurðsson (IP-tala skráð) 11.11.2008 kl. 18:50

3 Smámynd: Fannar frá Rifi

DV er blað bullukolla. ef sorpsnápar dv skrifa um eitthvað þá er það bull og líklega lygi.

Fannar frá Rifi, 11.11.2008 kl. 19:47

4 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Guðmundur. Held að það sé leitun af slíkum fjölmiðli sem tekur löggæslu
heillar þjóðar í eins mikið  einelti og DV gerir. Mætti halda að á ritstjórninni séu eintómir anarkistar. Enda and-þjóðlgir að auki með sitt ótrúlega ESB-trúboð, komnir úr litlu sjávarþorpi úti á landi. Ættu að skammast þín og
þú líka nafni með þitt ESB-trúboð líka komin frá litlu sjávarþorpi.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 11.11.2008 kl. 20:25

5 identicon

Hvernig færð þú það út að það hafi eitthvað með ESB að gera þó Birna Bjarnasyni sé ekki leyft að ljúga sig ráðalausan eftir atvikum?

Þú sem ert kominn úr litlu sjávarþorpi ættir að vita að lygi er ekki lífsmáti. Björn Bjarnason veit það hins vegar ekki.

Svo vil ég vekja athygli á því að við eigum besta forseta lýðveldisins.

Guðmundur Sigurðsson (IP-tala skráð) 11.11.2008 kl. 23:30

6 identicon

Veistu að ég held að þú gangir ekki heill til skógar Guðmundur Jónas Kristjánsson. Gerði DV þér eitthvað? Skrifuðu þeir einhvern tímann um þig? Þú ert svo blindaður hatri í garð DV að það er ekki hægt að trúa einu einasta orði sem birtist eftir þig hérna á vefnum.

Afhverju er allt svona mikið leyndarmál hjá lögreglunni? Afhverju er ekki hægt að koma hreint fram til dyranna og svara auðveldum spurningum? Afhverju þarf allt að vera svona leynilegt í svona litlu landi þar sem flestir þekkja flesta?

En Guðmundur Jónas - þú ert án efa ein allra mesta málpípa Sjálfstæðisflokksins sem ég hef nokkurn tímann rekist á hér á spjallinu. Hvað er að ESB? Ert þú kannski í toppmálum í dag með þína peninga og verðtryggðu lán? Þjóðin er það ekki.

Geir Friðrik (IP-tala skráð) 12.11.2008 kl. 00:58

7 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Geir Fririk. Starfar þú á DV ?  Meiriháttar málpípa DV hér !

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 12.11.2008 kl. 11:30

8 Smámynd: Rýnir

Sælt veri fólkið,

það er skemmst frá því að segja að við hverja bloggfærslu þar sem eitthvað neikvætt var skrifað um DV vegna fréttarinnar http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/11/11/dv_segir_yfirlysingar_rikislogreglustjora_villandi/ , komu fram athugasemdir til að reyna að verja hinn ömurlega málstað DV.

Þó er tilviljunin nú ekki meiri en svo að allar þessar athugasemdir voru settar inn á skömmu tímabili eftir miðnætti, undir mismunandi nöfnum og snérust efnislega allar um það sama þar sem byrjað var að því að vega að persónu eiganda vefsíðunnar. Skemmtileg tilviljun með IP-töluna líka... Var nokkuð verið að reyna að villa á sér heimildir til að auka hinn rýra trúverðugleika?

Dæmi nú hver fyrir sig hvort hugsanlega gæti nú verið að sami aðili hafi verið að reyna að villa á sér heimildir og e.t.v. starfsmaður DV ...

Fyrir aðra áhugasama þá er IP-tala viðkomandi: 85.220.73.107.
 
Athugasemdirnar voru annars:

http://zumann.blog.is/blog/zumann/entry/707569/
"Veistu að ég held að þú gangir ekki heill til skógar Guðmundur Jónas Kristjánsson. Gerði DV þér eitthvað? Skrifuðu þeir einhvern tímann um þig? Þú ert svo blindaður hatri í garð DV að það er ekki hægt að trúa einu einasta orði sem birtist eftir þig hérna á vefnum.
[…]
Geir Friðrik (IP-tala skráð) 12.11.2008 kl. 00:58"
 
http://dollih.blog.is/blog/dollih/entry/707605/
"Dolli minn þú hlýtur bara að vera blindaður af hatri gagnvart DV. Afhverju öll þessi leyndarmál um aðbúnað lögreglu, lífverði ráðamanna og óeirðabúninga? Afhverju ekki bara að koma hreint fram til dyranna? Því þessir menn kunna það ekki og hafa aldrei gert.
[...]
Lígri (IP-tala skráð) 12.11.2008 kl. 00:54"
 
http://hinnvitiborni.blog.is/blog/hinnvitiborni/entry/707681/
"Hinn viti borni maður? Kallaru þig virkilega hinn viti borni maður? Afhverju ekki bara „Blár í gegn."
[...]
Brjánn (IP-tala skráð) 12.11.2008 kl. 00:51"
 
http://rynir.blog.is/blog/rynir/entry/707692/

"Vá hvað þú ert fyndinn maður - haltu áfram að blogga því allt sem þú skrifar er bara snilld. Hvað er númerið þitt? Þú ert svo flottur.
Bragi (IP-tala skráð) 12.11.2008 kl. 00:46"
 
http://leifurh.blog.is/blog/leifurh/entry/707912/
"Voðalega ertu bitur Leifur minn.
[...]
Bergur (IP-tala skráð) 12.11.2008 kl. 00:41"
 
Það verður þó að hrósa viðkomandi fyrir að vinna vinnuna sína þó málsstaðurinn sé vondur. Snöggur var hann einnig að verkinu sem og að vinna yfirvinnu, skömmu eftir miðnætti, eða hvað?

Góðar kveðjur,

Rýnir, 12.11.2008 kl. 15:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband