Pólitískt harakírí Framsóknar


   Skv. drögum að  ályktum sem lögð verður fyrir flokksþing
Framsóknarflokksins  um helgina, er lagt til að sótt verði um
aðild að Evrópusambandinu. Allt útlit er fyrir að aðildarumsókn
verði samþykkt. ESB-sinnar hafa þegar yfirtekið flokkinn  og
bara formsatriðið eftir  að gefa flokknum ESB-stimpilinn. Þar 
með hefur flokkurinn endalega svikið  þær grunnstettir sem
stutt hafa flokkinn hvað mest. Sjómenn og bændur. Því vitað
er að ESB-aðild mun rústa þessum tveim mikilvægum atvinnu-
greinum Íslendinga. - Þar  með hefur líka  Framókn endanlega
framið sitt pólitíska harakírí.

   Næsta skref Framsóknar hlýtur því að verða aðildarviðræður
að Samfylkingunni. - Því eftir að Framsókn verður orðin form-
legur Evrókrataflokkur hlýtur það að liggja nokkuð benast við.
mbl.is Lagt til að sótt verði um aðild að ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Jón. Eftir ESB-væðingu Framsóknar yrði hún einskonar útibú frá Samfylkingunni. Enda þegar samgangur hafinn sbr Guðm. Sreingrímsson.
Þess vega ættu þessir flokkar að  sameinast eftir ESB-væðingu Framsóknar.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 14.1.2009 kl. 17:20

2 identicon

Nú er ljóst Framsókn og Samfó vilja ESB-inngöngu, bara formsatriði hvenær Sjálfstæðisflokkurinn samþykkir það á sínu þingi. VG hafa sagt að þeir vilji að þjóðin fái að kjósa um ESB-aðild.

Hvaða flokk ætlar þú þá að kjósa Guðmundur?

Hans Hilmarsson (IP-tala skráð) 14.1.2009 kl. 21:01

3 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Hans. Verði þetta niðurstaðan er alveg víst að stofnaður verður þjóðlegur
borgaralegur flokkur sem ég  ALLIR þjóðhollir Íslendingar sem vilja áfram
frjálst Ísland og full yfirráð yfir auðlindum þess, geta kosið og 100%
treyst. - Því nú eru áform ESB að yfitaka ekki bara sjávarauðlindir
ESB-ríkja heldur líka allar aðrar auðlindir, enda ESB-hugsað sem RÍKI
eins og USA ...

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 14.1.2009 kl. 21:31

4 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Held að markmið sem liggja fyrir þessum landsfundi taki nú á flestu sem þið ESB andstæðingar hafið bent á. Þannig að ég sé ekki hvað hægt sé að hafa á móti þessari tillögu:

Evrópusambandið

Markmið:
Að Ísland hefji aðildarviðræður við Evrópusambandið á grundvelli samningsumboðs frá Alþingi sem tryggi hagsmuni almennings og atvinnulífs og þá sérstaklega sjávarútvegs og landbúnaðar. Þá er fullveldi og óskorað forræði Íslendinga yfir auðlindum þjóðarinnar grundvallarkrafa í þeim viðræðum. Viðræðuferlið á að vera opið og lýðræðislegt og leiði viðræðurnar til samnings skal íslenska þjóðin taka afstöðu til aðildarsamnings í þjóðaratkvæðagreiðslu í kjölfar upplýstrar umræðu.
Leiðir

·         Skýr og einhliða úrsagnarréttur, sem er þegar viðurkenndur í aðalsáttmála ESB, verði hluti aðildarsamnings.

·         Staðfest verði að Íslendingar einir hafa veiðirétt innan íslenskrar fiskveiðilögsögu og að fiskveiðistjórnun verði áfram innanríkismál Íslendinga, enda styðjist hún við reglur ESB um stöðug hlutföll, nálægðarreglu og Lúxemborgarsamkomulagið. Ísland verði sjálfstæður aðili að samningum um flökkustofna.

·         Fæðuöryggi þjóðarinnar verði tryggt og viðurkennd nauðsyn á sérstökum ákvæðum vegna fámennis þjóðarinnar.

·         Viðurkennt verði að íslenskur landbúnaður sé heimskautalandbúnaður.

·         Framleiðsla og úrvinnsla íslenskra landbúnaðarafurða verði tryggð ásamt sérstöðu og hreinleika íslenskra landbúnaðarstofna.

·         Staðfest verði að vegna aðstæðna á Íslandi og fámennis þjóðarinnar hafi Íslendingar varanlegan rétt til að setja lög um forgangsrétt manna með lögheimili og fasta búsetu á Íslandi til að eiga ráðandi hlut í jarðeignum, lóðum, fasteignum og atvinnufyrirtækjum, enda styðjast slík ákvæði við núgildandi reglur á Álandseyjum, Möltu, Azoreyjum og víðar innan ESB.

·         Í upphafi viðræðna verði gerður stöðugleikasamningur við Evrópska seðlabankann sem tryggi stöðugt gengi íslensku krónunnar þar til Íslendingar taka upp evru.

·         Tekið verði tillit til stöðu íslensks efnahagslífs við umbreytingu peninga- og gjaldeyrismála á Íslandi.

·         Ákvæði verði um varðstöðu um íslenska þjóðmenningu, þjóðtungu og þjóðhætti á Íslandi. Íslenska verði viðurkennt sem eitt hinna opinberu tungumála ESB.

Fyrstu skref:
Þessi helstu samningsmarkmið, sem og önnur sem skilgreind verða í samvinnu hagsmunaaðila og stjórnvalda, með sem víðtækastri samstöðu, verði lögð til grundvallar því umboði sem samninganefnd Íslendinga fari með í samningaviðræður við Evrópusambandið.

Magnús Helgi Björgvinsson, 14.1.2009 kl. 22:47

5 Smámynd: Fannar frá Rifi

Já Magnús það er best að halda áfram að vinna ekki að þeim vandamálum sem við stöndum frami fyrir í dag. betra er að flýja vandamálinn með því að fara í kokteilboð útí Brussel.

ESB er smjörklípa og flótti frá því að takast á við vandamál dagsins í dag. öll esb umræða á að setja í salt næstu 4 til 6 árin þannig að við getum séð hvort og hverni Lissabon sáttmálin þróast. enda verður engu ríki hleypt inn fyrr en hann hefur verið samþykktur. 

en ef við eigum að kjósa um aðild að ESB, er þá ekki lýðræðislegt að það verði einnig boðið upp á þann valkost að við segjum upp EES samningnum? eða er bara lýðræðislegt að segja Já við skrifræðinu í Brussel? 

Fannar frá Rifi, 14.1.2009 kl. 23:29

6 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Fannar það eitt að takast á við vandamálin sem eru í dag, en það verður líka að horfa til framtíðar. Og ef við erum alltaf að horfa til næstu daga og reyna að lappa upp á ónýtt kerfi verða hér engar framfarir.

Magnús Helgi Björgvinsson, 15.1.2009 kl. 00:09

7 identicon

Þjóðlegur flokkur með flulla stjórn á auðlindum okkar er svona ágætis orðalepppur sem er í raun einskis virði.  Við eru ekki lengur fullt sjálfstætt lýðveldi.  Fiskimiðin eru í rúst vegna kvótakefisins, útvegurinn skuldar 800 milljarða og lítið er á móti helst í kvótaverðmætum sem áætlað er í dag uþb. 300-400 milljarðar.  Á að senda þér reikninginn fyrir mismuninum Guðmundur.  

Best væri í stöðunni að óska eftir því að gangast unda norska eða danska fánann.   Við ráðum engu orðið, framkvæmdavaldið hér er bara undirsáta alþjóða gjaldeyrissjóðsins.

ÞJ (IP-tala skráð) 15.1.2009 kl. 00:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband