Vinstri Grænir á 100 km hraða inn í ESB


   Sem kunnugt er mynduðu Vinstri grænir ríkisstjórn sem hefur það
AÐALHLUTVERK að sækja um aðild Íslands að ESB. Af vísu er þetta ekki
alveg í samræmi við stefnu VG fyrir kosningar. En það var ekki heldur
í icesave málinu, en þar kúvenda VG líka. - En samt á þetta alls ekki
að koma á óvart. Sem vinstri-flokkur var aldrei meiningin að standa
vörð um íslenzka  hagsmuni  og  fullveldið. - Það er alls ekki í anda
vinstrimennskunar, eins og sumir álpuðust til að halda fyrir kosningar
sem kusu VG.  Allra síst ef VINSTRISTJÓRN er í veði. Þá er ÖLLU fórnað!!!

   Svo vill til að formaður utanríkismálanefndar  er Vinstri grænn, 
Árni Þór Sigurðsson.  Hann gegnir lykilhlutverki í því að koma frum-
varpi um aðildarviðræður að ESB gegnum þingið. ENGINN þingmaður
sem er ESB-andstæðingur myndi taka það hlutverk að sér. Það gerir
Árni Þór með glöðu geði hins vegar. - Því hann vill Ísland inn í ESB.
Annars gerði hann þetta ekki.  Því Árni Þór lætur ekki hafa sig  af
fifli.  Eða hvað ?

  Árni Þór virðist því ætla að vinna þetta verk fljótt og vel fyrir sam-
starfsflokkinn og aðra ESB-sinna. Segist vilja vinna þetta í sátt við
alla. - Hvernig honum dettur það í hug er merkilegt. Því allir eru
sammála um að þetta sé eitt stórfeldasta pólitíska hitamál frá lýð-
veldisstofnun. Samt segist Árni gera ráð fyrir að hægt verði  að
sameina ESB-tillögu ríkisstjórnarinnar og tillögur stjórnarandstöð-
unnar um málið sbr frétt RÚV í gær. Takist Árna það að sameina
Alþingi Íslendinga um umsókn að ESB yrði hann  einn mesti póli-
tíski kraftarverkamaður Íslandssögunar. Bæði fyrir það að sam-
eina Alþingi í þessu stórmáli, en þá jafnframt að skapa hyldýpi
milli þings og þjóðar. Því enn er yfir 70% þjóðarinnar andvígur
umsókn að ESB án þess að fyrst fari þjóðaratkvæðagreiðsla um
hvort sótt verði um aðild.

   Vinstri grænir eru því ekki bara komnir á 100 km hraða inn í ESB.
Þeir eru komnir langt framúr sér á þeirri ferð, eins og í icesave-málinu.
En ALLT samt skv. bókinni um vinstrimennskuna, ef einhver  er hissa.
- Og alveg  sérstaklega með tilliti til þess þegar kommar og  kratar ná 
loks að mynda HREINRÆKTAÐA vinstristjórn, eins og nú - Því þá fyrst
hittir skrattinn ömmu sína, og djöfullinn verður laus, eins og hin ótal 
dæmi sanna einmitt þessa daga um icesave og ESB-daðrið...

  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Júlíus Björnsson

Hverjir hlupu eftir lánalengingum og hækkuð fasteignmat sögðu marksverðráða? Hverjir ætluð að breyta Reykjavík í New York? Oft er flagð undir fögru skinni. Samfo getur ekkert ein.  Þau sem falla fyrir væntingum og ágirnast: er ekki treystandi. Eiginleiki sem brýðir engan með ábyrgð.

Júlíus Björnsson, 25.6.2009 kl. 03:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband