Utanríkisstefna Íslands hlýtur þá að endurskoðast frá grunni !


   Ef í ljós kemur að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn gangi erinda
Breta og Hollendinga, og fresti enn endurskoðun sinni á
efnahagsáætlun  Íslands, og þar  með  lánafyrirgreiðslu,
hlýtur mælirinn að verða fullur gagnvart okkur Íslendingum.
Þá liggur fyrir, að AGS er gróflega misnotaður af Bretum og
Hollendingum, til að kúga Íslendinga til að samþykkja hinn
fráleita icesavesamning. Og þá yrði best fyrir okkur  Íslend-
inga að taka  slaginn STRAX, heldur en verða sárpíndir til
eilifðrar fátaktar og undirgefni um ókomna tíð.

  Í kjölfar alls þessa hlýtur að koma til  endurskoðaunar  á
utanríkisstefnu okkar frá grunni og samkiptum okkar  við
umheiminn. Sem betur fer er heimurinn MIKLU STÆRRI en
þær fáu þjóðir sem skipa ESB-hópinn í dag. Eigum FJÖLMÖRG
tækifæri önnur en að lokast inni í hinu fjandsamlega Evrópu-
sambandi, sem vílar ekki fyrir sér að beitta okkur þvingunum,
hótunum  og kúgunum, á grófasta hátt, þegar því hentar.
Inni í þá endurskoðun hlýtur einnig að koma til nýtt mat í
öryggis- og varnarmálum Íslands.

   Síðast og ekki síst hlýtur svo að verða mikil HREINSUN  og
uppstokkun í íslenzkum stjórnmálum. Icesave-flokkurinn (Sam-
fylkingin) og allt landsöluliðið kringum hann verður að úthýsa
úr íslenzkum stjórnmálum. Öflunum, sem komu Íslendingum í
þá ÖMURLEGU stöðu sem þeir standa frammi fyrir í dag.

   Já. Bæði í vestur-og austurveg hljóta Íslendingar nú að horfa
varðandi pólitísk og efnahagsleg samskipti. Þá eru norðurslóðir
og allar þær miklu auðlindir sem þar eru að finna sífelt að vigta
þyngra. - Eigum þar að gegna lykilhlutverki í samvinnu þeirra
ríkja sem þar eiga hagsmuna að gæta, - gegn ásælni og hroka
Evrópusambandsins.  


        www.zumann.blog.is

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Tek undir hvert einasta orð Guðmundur.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 30.7.2009 kl. 02:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband