Enn ein bókhaldsbrellan í icesave


   Öllu er nú tiltjaldað innan stjórnkerfisins til að réttlæta
framgangsmáta icesave-þjóðsvikasamningsins. Nú er
því  haldið  fram  að 90%  fáist  upp í forgangskröfur.
Miðað við fréttir s.l misseri af  hruni  eignasafns Lands-
bankans ber að taka þessa frétt með miklum fyrirvörum.
Óvissuþættir allir í máli þessu eru það margir og stórir
að svona fullyrðingar fá með engu móti staðist. T.d er
allt í óvissu um hinn himinháa vaxtakostnað og gengis-
þróun næstu árin. Þá hefur eignasafn Landsbankans
hingað til ekki þolað dagsljósið.

  Hér er því á ferðinni enn einn skollaleikurinn í ice-
save-þjóðsvikasamningnum. Jóhanna og Steingrímur
tjalda nú öllu til að knýa hann í gegn. Bókhaldsbrell-
an nú er enn eitt dæmi þess.

   ÁFRAM ÍSLAND! EKKI ESB! EKKERT ICESAVE NÉ AGS!

   www.zumann.blog.is
mbl.is 90% upp í forgangskröfur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðlaugur Hermannsson

Guðmundur! Þetta eignasafn er með skuldabréf sem bera vexti eins og lánið sem við tökum til að greiða Icesave. Gengisþróun hefur ekkert með stöðu skuldarinnar að gera skuld okkar er í erlendum gjaldeyri eins er um eignasafnið. Þó svo að krónan falli þá er raunskuldin sú sama.

ESB er ekki spurning heldur lífsspursmál fyrir okkur að ganga í. Ekkert Icesave er til staðar eins og menn hafa óttast. AGS er léttvægt ef Landsbankinn getur staðið undir 90% af Icesave.

Ísland í ESB og AGS burt. I save if so.

Guðlaugur Hermannsson, 12.10.2009 kl. 20:59

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Veit ekki betur en að icesave-lánið sem slíkt sé gengistryggt og ber 5.5%
vexi. Það er jú það sem siptir máli Gunnlaugur. Ótal útgáfur og brellur er
búið að gera í þessu icesave-máli. Hef starfað samfleitt í bókhaldi yfir 38
ár og veit vel að hægt er að hagræða tölum út og suður ef einbeittur vilji er
til þess. En sem betur fer kemst slíkt upp fyrr en seinna, sbr. allt bankahrunið. Enda sæta nú endurskoðendafyrirtækin rannsókn í dag. Þannig  tek þessu síðasta útspili stjórnvalda með miklum fyrirvara og tortryggni af fenginni mikilli reynslu.

Verði þér að góðuðu með ESB-helsi þitt.  Ísland mun hins vegar sem betur
fer aldrei verða því að bráð. Höfum heldur betur brunnið okkur á regluverkum þess.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 12.10.2009 kl. 21:19

3 Smámynd: Júlíus Björnsson

Bretar vilja allt annað en Dómstóla.

Ef þeir borga okkur undir borðið helmingi hærri upphæð þá mætti kannski semja við þá. 

Mig grunar aðalatriði hjá Bretum sé tryggja sér áframhaldandi 25% af sjávarhráefninu sem Íslendingarflytja út.  UM 42.800 milljarðar í fyrra. 50% virðisauki  í UK 21.400 milljarðar. Atvinnleysisbætur fyrir 14.000.000 manneskjur  í 1 ár.

171.348,7 fob heildarverðmæti úflutning sjávarhráefna 2008.

Júlíus Björnsson, 12.10.2009 kl. 21:42

4 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Bara að benda ykkur á að Lárentsínus Kristjánsson er góður og gegn Sjálfstæðismaður var m.a í stórn SUS svo ég sé ekki hvað hann ætti að vera að fegra þetta? Hann bendir náttúrulega á að þetta er áætlun til margra ár og óvissu þættir en fyrst að búið er að semja um eignir milli gamla og nýjabankans er búið að afskrifa verstu eignirnar út úr þessu safni þannig að þetta er væntanlega raunhæft mat. Svo náttúrulega bætast við þetta vextir nema að við séum dugleg að greiða inn á höfuðstól Icesave lánsins. Og eins gæti eignasafnið hækkað enn frekar ef kreppunni líkur í Evrópu. Sem og gegni krónunar. Bendi ykkur líka á að þetta er svipuð tala og Indriði og Svavar töluðu um og menn hér og annrstaðar kölluðu lygara.

En það eru um að gera að vera svartsýnn og sjá ekkert bjart framundan.

Magnús Helgi Björgvinsson, 12.10.2009 kl. 21:54

5 Smámynd: Óskar Arnórsson

Þetta er peningaprentun ef þetta er svona. Bókhalds-barbabrella...þvílíkt og annað eins!

Óskar Arnórsson, 12.10.2009 kl. 23:19

6 Smámynd: Júlíus Björnsson

Og eins gæti eignasafnið hækkað enn frekar ef kreppunni líkur í Evrópu. Sem og gegni krónunar.

Svarið felist meðal í hvernig EU sem heild stendur sig í Alþjóðsamkeppni.

Í mínum huga merkir það að eignasafnið lækkar. Ég álít 92% heimsins vega þyngra og þennsla þeirra þrengi að EU svo að kreppi. 

Júlíus Björnsson, 13.10.2009 kl. 13:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband