Ánægjuleg afstaða Framsóknar og Sjálfstæðisflokks í icesave


   Ánægjulegt er að bæði Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur
skuli hafa sömu sýn á hvað gerist eftir 23 okt þegar greiðsluskylda
Tryggingasjóðs innistæðueigenda vegna icesave-skuldbindinganna
verður virk. En þá mun málstaður Íslanads stórbatna gagnvart
Bretum og Hollendingum, eins og fram kom á Alþingi í dag. Í raun
yrði hinn ótrúlegi  þjóðsvikasamningur vinstrimanna um icesave úr
sögunni, og málið kæmist á byrjunarreit. - Og bara HÚRRA fyrir því!

   Það yrði alveg með ólíkindum ef hin ömurlega vinstristjórn ætlar
enn að undirbúa atlögu að íslenzkum þjóðarhagsmunum, með því
að umbreyta þjóðasvikunum um icesave enn Bretum og Hollend-
ingum í vil. - Öllu slíku hlýtur að vera svarað með mikilli hörku,
ekki bara á Alþingi, heldur um land allt. - Íslenzk þjóð mun ekki
lengur láta hin and-þjóðlegu vinstriöfl kúga sig. Mælirinn yrði fullur!

  ÁFRAM ÍSLAND! EKKI ESB! EKKERT ICESAVE NÉ AGS!

  www.zumann.blog.is
  
mbl.is Segja stöðu Íslands styrkjast 23. október
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Já auðvita eru þessir flokkar á því að þegar við séum komin í vanskil þá sé okkar staða góð! Það er eins og þeir vilja hafa þetta. Sem og að þar með verði gegnið í að lögsækja okkur fyrir Neyðarlögin sem og mismun á innistæðueigendum eftir þjóðerni. Þá er verða framsókn og sjálfstæðismenn glaðir. Sælir og kátir munu þeir reyna að fresta hér uppbyggingu eins lengi og þeir geta. Og þegar fyrirtæki með lán erlendis kvarta þá hlægja þeir bara. Og svo þegar einhver reiknar út hvað við erum búin að tapa á þessu strögli síðustu mánuði þá verður ofsa kæti og haldin þjóðhátíð hjá þeim.

Magnús Helgi Björgvinsson, 14.10.2009 kl. 17:28

2 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

En í alvöru Guðmundur heldur þú að það bæti samningsstöðu einhvers að láta lán komast í vanskil? Og fara svo og semja um lausn

Magnús Helgi Björgvinsson, 14.10.2009 kl. 17:29

3 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Magnús minn. Himinn og haf aðskilur okkur í pólitík. Í mínum huga var
ecesave-samningurinn í sumar landráð gagnvart íslenzkri þjóð, og ættu
þeir sem stóðu að honum að sitja bak við lás og slá ásamt mafíunni sem
skóp  hann.   Ef íslenzk stjórnvöld hafi í upphafi staðið í lappirnar í þessu
máli, hefði það löngu verið klárað. Aula-og aumingjaskapur stjórnvalada í
máli hessu hefur stórskaðað íslenzka hagsmuni og leitt til þess klúðus
sem það er í dag.  

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 14.10.2009 kl. 20:26

4 identicon

"Já auðvita eru þessir flokkar á því að þegar við séum komin í vanskil . . "

Við munum ekki fara í vanskil.  Björgólfur Thor hinn ríki Londonbúi mun fara í vanskil.    Það verður bara venjulegur föstudagur.

Guði sé lof fyrir stjórnar-andstöðuna. 

ElleE (IP-tala skráð) 14.10.2009 kl. 23:08

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Það góða er að íslenska ríkið mun ekki komast í nein vanskil því það skuldar ekki neitt vegna þessa máls. Íslenska ríkið myndi fyrst fara á alþjóðlega vanskilaskrá ef það skrifar uppá skuldaviðurkenningu vegna þessa máls. Þetta eru nefnilega ekki skuldir ríkissjóðs Íslands.

Ef menn þykjast eiga eitthvað inni hjá skattgreiðendum á Íslandi þá er best að senda stefnu í umslagi með pósti og krefjast peningana. Sönnunargögn þurfa að fylgja stefnunni. Það mál mund ganga fyrir sig eins og önnur mál þ.e. fara fyrir dómara og verða afgreitt samkvæmt lögum. Íslenska ríkið tók engin lán sem ekki sem ekki er greitt af að fullu og sem eru ekki í FULLUM SKILUM ALLTAF!

Póstfangið sem best er að senda stefnuna ár er þetta:

============================ 

RÍKISSJÓÐUR ÍSLANDS & RÍKISFJÁRHIRÐIR

FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIР

101 REYKJAVÍK

ICELAND

============================ 

Hægt er að senda bréfið  með B-pósti til að spara ónauðsynleg útgjöld

Gunnar Rögnvaldsson, 14.10.2009 kl. 23:29

6 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Þú  ert engum líkur Gunnar minn í rökfærslum þínum í þessu. Takk kærlega!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 15.10.2009 kl. 00:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband