Ögmundur jafn mikill icesave-sinni og Jón Bjarna er mikill ESB-sinni !


    Norski fréttavefurinn ABC hefur eftir heimildarmönnum sínum
á Íslandi að nýja samkomulagið um icesave hafi þingmeirihluta,
annað væri hneyksli gagnvart Bretum og Hollendingum. Gert
sé ráð fyrir að Ögmundur Jónasson fyrrv. ráðherra fallist  á
samkomulagið.

   Að sjálfsögðu mun Ögmundur Jónasson kokgleypa icesave
eins og þingflokksformaður VG hefur gert. Því aldrei stóð annað
til. Leikrit svokallaðs andstöðuhóps VG í sumar vegna icesave
var bara pólitískur skollaleikur, sem afdánkaðir sósíalistar grípa
gjarnan til, þegar pólitísku skinni þeirra þarf að bjarga fyrir
horn um stundarsakir. Í raun er Ögmundur jafn mikill icesave-
sinni og Jón  Bjarnarson  sjávarútvegsráðherra  er  mikill  ESB-
sinni. Því BÁÐIR styðja þá ríkisstjórn sem leggur ALLT KAPP Á
að fá icesave-þjóðsvikasamninginn samþykktan, og  báðir styðja
þá ríkisstjórn sem stefnir á METHRAÐA að aðild Íslands að ESB.

   Liggur þetta ekki bara nokkuð ljóst fyrir ?

   Og er þetta ekki NÁKVÆMLEGA í samræmi við hina vinstrisinnuðu
alþjóðahyggju, hvort sem hún er sósíaldemókratisk eða sósíalisk?

   ÁFRAM ÍSLAND! EKKI ESB!  EKKERT ICESAVE NÉ AGS!

   www.zumann.blog.is
mbl.is „Hneyksli á Íslandi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Kannski eru þeir eftir allt ekki tryggari en hinir í Fylkingunni og VG, Guðmundur.  Og vona þó enn að það sé rangt hjá okkur.

ElleE (IP-tala skráð) 30.10.2009 kl. 17:47

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

EllleE. Þetta eru VINSTRIMENN meir að segja róttækir og verða því ALDREI
sem slíkir þjóðhollir. And-þjóðleg viðhorf og gildi eru aðalsmerki vinstrimennskunar, var, er og verður ætíð ElleE!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 30.10.2009 kl. 20:57

3 identicon

Hvers vegna haldið þið að þið séu komnir út úr torfkofanum ?

Vegna allra þeirra vinstrimanna sem nenntu að berjast fyrir lífsgæðum okkur öllum til handa !

Þetta þurfið þið að segja ykkar börnum og barnabörnum !

Munið að segja sögun rétt, annað er lygasaga !

JR (IP-tala skráð) 31.10.2009 kl. 00:21

4 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Mikið áttu bágt JR minn!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 31.10.2009 kl. 00:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband