Tvær ástæður fyrir sjómenn að sigla í land


    Það er afar skiljanleg afstaða sjómanna að hóta að
sigla í land, ákveði hin and-þjóðfélagslega vinstristjórn  
að afnema sjómannaafsláttinn. Sem  yrði  meiriháttar
aðför að okkar íslenzkri sjómannastétt. Þá yrði önnur
ástæða fyrir sjómenn ekki síðri til að sigla í land. Og
hún er umsókn Íslands að ESB. En með aðild að ESB
myndi  lífsafkoma  sjómanna  og  allra  þeirra  sem
að sjávarútvegi koma stórkostlega versna, og þá um
leið allrar þjóðarinnar. En síðast í dag í Sílfri Egils af-
hjúpaði Jón Baldvin hina grímulausu Evrópusýn ESB-
sinna um að algjör óþarfi væri á neinum  varanlegum
undanþágum  í sjávarútvegsmálum, færi Ísland inn í
ESB. Allt yrði á forræði Brussel, og kvóti Íslandsmiða
á frjálsu markaðstorgi innan sambandsins.  

   Sigling sjómanna í land gæti  þannig  orðið  að alls-
herjar mótmælum og uppreisn þjóðarinnar gegn hinni
illræmdu og and-þjóðlegri vinstristjórn sem nú situr að
völdum.

   ÁFRAM ÍSLAND!  ÁFRAM ÍSLENZKIR SJÓMENN!

   www.fullvalda.is
   www.frjalstisland.is



  
mbl.is Sjómenn vara stjórnvöld við
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Helgason

Sjómenn sigla ekki í land, hefur þú komið til sjós, það eru skipstjórar sem stjórna bátunum og útgerðin skipstjóranum,

það á ekki að heigla útgerðamönnum umfram aðra, við gáfum þeim fiskin og þurfum ekki að borga niður launin fyrir þá líka.

Sigurður Helgason, 29.11.2009 kl. 16:25

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Þú hefur alls ekki fylgst með fréttum Sigurður. Sjómenn og samtök þeirra
hvetja til að siglt verði í land ef hin and-þjóðfélagssinnaða vinstristjórn
ætlar að stórskerða kjör þeirra. Að sjálfsögðu!  Fari sjómenn í mótmælaverkfall verður siglt í land. Mér er fjandans sama hver fer með
kvótann á Íslandsmiðum, svo framanlega sem hann er í höndum Íslendinga, og allur virðisauki af honum skili sér 100% í íslenzkt þjóðabú. Það mun gjörbreytast, göngum við í ESB og kvótinn gangi kaupum og sölu á öllu markaðstorgi ESB. Þá fyrst skulum við ræða kvótamálin!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 29.11.2009 kl. 17:26

3 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Þeir hafa nú ekkert sagt um ESB síðustu daga Guðmundur! Þeir vilja að við niðurgreiðum laun fyrir útgerðina og það er eina ástæða þess að þeir sigla í land. Ég legg til að við tökum af þeim kvótan og bjóðum út á Evrópska efnahagsvæðinu. Einu skilyrðin yrðu að 1 kíló af þorski kosti í leigu í 1 ár kosti  400 krónur sem ríkið fengi og fiskinum skuli landað hér og unnin eftir atvikum.  Ef að útgerðin sem hefur fengið allt ókeypis finnst erfitt að boga 15 þúsund kr. hærri hlut til hvers sjómanns þá eiga menn bara að hætta og afhenda kvótan til þeirra sem treystar sér til að borga þessi 190 þúsund sem sjómenn hafa verið að fá í skattaaflátt á ári að meðaltali

Magnús Helgi Björgvinsson, 29.11.2009 kl. 17:33

4 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Magnús. Bendi þér á að sjávarútvegur innan ESB er með botlausa ríkisstyrki í öllum myndum og gerðum, og sjómenn þar meiriháttar á ríkisjötunni. Þvert á það sem hér er, enda lifum meiriháttar af fiskveðum.
Sjómenn tóku aldrei þátt í pappírsbólunni og hruninu mikla. Hafa ætið náð
björg í bú fyrir hina íslenzku þjóð, og hafa aldrei verið mikilvægari en
einmitt nú. Segir sig sjálft að hver einasti sjómaður á Íslandi myndi
kolfella ESB-aðild, sjómannasamtökin hafa hafnað ESB-aðild.
Þú er með hreinum ólíkindum Magnús að ætla að bjóða íslenzkan kvóta
upp innan ESB. Ykkur ESB sinnum virðist EKKERT heilagt, og allra síst
fjöregg íslenzkrar þjóðar.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 29.11.2009 kl. 17:45

5 Smámynd: Sigurður Helgason

Hef fylgst með og verkahlíðsamtök hverju nafni sem þau nefnast, eru bara ruglukollar á launum hjá verkalíknum og þeir gaspra þegar þeim hentar,

Hjá mér eru laun fjörtíu prósent yfir taxta,svo ég veit ekki hvað þeir eru að semja um og hef aldrei vitað það.

Kvótinn er þegar úr landi, er sjálfur að vinna fisk fyrir BRETA sem þeir eiga að fullu Báta-kvóta-fisk-gámar-úr landi, svo það er tími til kominn að vakna og fara að taka til

Þetta getum við sjálfstæðismenn þakkað okkur, var alltaf á móti kvótabraskinu.

Sigurður Helgason, 29.11.2009 kl. 17:48

6 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Sjálfstæðismaðurinn Sigurður Helgason virðist alveg ganga á öllum, sem er nú ekki algild regla hjá þeim í dag. En hann talar sennilega fyrir daufum eyrum, því miður.

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 29.11.2009 kl. 18:51

7 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Sigurður minn. Eitthvað slær út úr fyrir þér hér. Enn meiga útlendingar
ekki eiga kvótann skv. núgildandi ísl. lögum. Ert því meiriháttar að rugla
að segja kvótann þegar farinn úr landi.

Takk Hafsteinn.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 29.11.2009 kl. 20:17

8 Smámynd: Sigurður Helgason

Guðmundur,,,,,,þetta er ensk matvælakeðja, á hér 3 báta allur fiskur sem kemur af þeim fer til hafnafjarðar settur í ís og inn í gáma. til að fylla gáminn er ENGLENDINGUR hér og kaupir af markaði allt löglegt, enskurinn borgaði meira að segja bátana og fiskin í evrum, allt unnið í BRETLANDI,

Svo sofið bara áfram, og verið með kjaftagang á þingi, þið fáið ekki að vera með þegar lestinn fer áfram,

Sigurður Helgason, 29.11.2009 kl. 20:49

9 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Sigurður. Enn og aftur. Skv ísl. lögum er erlendum ríkisborgurum óheimilt að
eignast meirihluta í íslenzkum útgerðum, og ALLS EKKERT í íslenskum
kvótum. Þú ert hér kannski að upplýsa hér alvarlegt lögbrot sem umsvífalaust á að kæra til lögreglu og viðkomandi yfirvalda?

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 29.11.2009 kl. 21:09

10 Smámynd: Sigurður Helgason

Guðmundur það stendur í lögum.

EN HEFUR ÞÚ HEYRT TALAÐ UM LEPPA,

Það er siðlaust en löglegt er það ekki sem við íslendingar erum svo góðir í,

Sigurður Helgason, 29.11.2009 kl. 21:36

11 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Veit vel Sigurður að við höfum búið í gjörspilltu þjóðfélagi. Enda staða okkar
eins og hún er í dag.  En eigum við ekki að trúa og vona að á þessu verði
breyting í framtíðinni? Að með lögum skal land vort byggja. Því ef ekki,
er virkilega illa komið fyrir okkur. 

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 29.11.2009 kl. 21:42

12 Smámynd: Sigurður Helgason

Er búinn að missa allt mitt og trúna líka, en held áfram, vast er að ég missti frúnna á flokknum líka,

Sigurður Helgason, 29.11.2009 kl. 22:08

13 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Guðmundur útlendingar mega eiga meirihluta í Íslenskum fiskvinnslufyrirtækjum tímabundið eða um ár. En ég sé ekki munin á því að þeir eigi kannski 49% i útgerð, 49% í fiskvinnslu og hirði svo allann fiskinn.  Enda sé ekki að það þurfi að vera slæmt. Nú í dag er stórhluti fisksins skóflað í gáma og sendur til útlanda þar sem að erlendir aðilar vinna hann. Þannig að af stórum hluta kvótans eru aðeins þeir sem eru um borð í skipunum og uppskipunarmenn sem hafa vinnu af honum. Þannig gæti ég trúað að 60 til 70% af þorskinum skapi aðeins um 1000 til 1500 störf. En kannski tugþúsundir starfa í Bretlandi.

Þetta mundi breytast ef við gengjum í ESB þá mundu tollar af fulluninni matvöru/fisk  falla niður. En í dag er eins og áður betra að senda fiskinn óunnin út og stofna fyrirtæki í Bretlandi til að vinna hann. Og þá með Breskum starfsmönnum

Magnús Helgi Björgvinsson, 29.11.2009 kl. 22:37

14 Smámynd: Fannar frá Rifi

það er svo augljóst að Magnús hefur aldrei á sjó stigið og saknar gömlu góðu útrásarvíkinganna og bankanna.

Fannar frá Rifi, 30.11.2009 kl. 01:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband