Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2010

Tekur stjórnarandstaðan þátt í Icesave-leynimakkinu?


   Hvers konar rugl er þetta? Leynifundur með Bretum til að
koma í veg fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna. Og tekur stjórnar-
andstaðan virkilega þátt í því?

   Forseti Íslands hefur vísað Icesave-þjóðsvikasamningnum
illræmda til þjóðarinnar. Þar er málið statt. Þjóðin mun 6. mars
n.k kolfella Icesave. Þar með er málið dautt. Enda um EKKERT
að semja. Þetta virðist Icesave-stjórnin á Íslandi og Bretar og
Hollendingar alls ekki skilja, og vilja allt til gera til að koma í
veg fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna. Því í kjölfar stórs NEI  í
henni verður Icesave-stjórnin að segja af sér, og uppreisn
íslenzkrar þjóðar gegn gjörspilltu og stórgölluðu alþjóðlegu
fjármálaregluverki myndi vekja heimsathygli. Og gefa öðrum
þjóðum sem eru í svipaðri stöðu og Íslendingar kjark og þor
og gott fordæmi. Nokkuð sem hinn gjörspillti alþjóðlegi fjár-
málamarkaður sem einmitt Bretar sjálfir halda sem mestri
hlífðarskyldi yfir geta ekki hugsað sér. 

   Þjóðin á skýlausan rétt að segja sitt álit um Icesave  í
komandi þjóðaratkvæðagreiðslu. -  Ekki síst  þar  sem  um
EKKERT er að semja! Alla vega EKKERT  hvað  varðar  ríkis-
ábyrgð eða vexti. Og EKKERT umfram það sem kæmi út úr
þrotabúi Landsbankans.  Allt annað eru SVIK við þjóðina,
sem hún mun ALDREI samþykkja!!!!

   ÁFRAM ÍSLAND! EKKI ESB né SCHENGEN! EKKERT ICESAVE né AGS!
mbl.is Leynifundur um Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Klofningurinn í VG ofmetinn


  Fréttaskýring Agnesar Bragadóttir í Mbl. í dag um djúpstæðan
ágreining innan Vinstri grænna er ofmetinn. Í besta falli er meira
um persónuleg átök að ræða fremur en hugmyndarfræðileg, eins
og oftar en ekki gerðist í Alþýðubandalaginu, Sósíalistaflokknum,
og Kommanistaflokknum forðum.  Hin sósísliska  alþjóðlega hug-
myndafræði VG er skýr og sátt er um hana. Líka um umhverfis-
öfgahyggjuna, sem gengur út á það að drepa allar nauðsynlegar
stórframkvæmdir á Íslandi í dróma. Algjör sátt virðist um hana
líka, sem gerir VG algjörlega óstjórntæka í íslenskum stjórnmálum.
Hvað er þá eftir? ESB eða Icesave? Nei ALDEILIS EKKI!

   Vinstri grænir mynduðu ríkisstjórn með umsókn Íslands  að ESB.
Algjör samstaða var um það í þingflokknum. Meir að segja gekk
Ásmundur Einar Daðason þingmaður VG og formaður Heimssýnar
svo  langt að styðja bæði flokk og ríkisstjórn um berst fyrir aðild
að ESB. Dæmigerður Vinstri grænn um meiriháttar tvöfeldni  í
Evrópumálum, enda Vinstri græn í raun með SÖMU vinstrisinnuðu
alþjóðahyggjuna og vinir þeirra, sósíaldemókratanir í Samfylkingu-
ni. Enginn munur þar á. Meir að segja Ögmundur Jónasson hefur
allt til þessa dags stutt bæði flokk og ríkisstjórn með aðildarumsókn
að ESB að leiðaljósi. En enginn sækist eftir því eða styður sem við-
komandi er á móti. Eða hvað?

   Sama á við um Icesave-þjóðsvikin. Þar fremst fer sjálfur foringi 
Vinstri grænna. Hefur manna mest barist fyrir að Íslendingar tæku
við skuldadrápsklyfjum útrásarmafíuósa að kröfu helstu nýlendu-
velda ESB, án nenna lagastoða eða skuldbindinga þar um. ENGINN
Vinstri grænn á Alþingi Íslendinga hefur lýst vantrausti á formann
sinn vegna þessara and-þjóðlegra svikaverka hans. ENGINN !!!!!!  
Þögn þar er sama og samþykki. AÐ SJÁLFSÖGÐU!

  Vinstri grænir eru því í besta falli sokknir í persónulegt þras sín
á milli. Ekki hugmyndarfræðilegt. Þeir hafa ALLIR sömu afdönkuðu
sósíalísku hugmyndarfræðina að leiðarljósi, byggðri á vinstri-öfga-
alþjóðahyggju í bland við umhverfisróttækni  niðurrifsafla. Þar  sem
ESB og ICESAVE  rúmast fyllilega. Klofningur VG er því ofmetinn.
Allt sömu gömlu kommúnistarnir inn við beinið eins og fyrrum!

  ÁFRAM ÍSLAND! EKKI ESB né SCHENGEN! EKKERT ICESAVE né AGS!
mbl.is Djúpstæður klofningur hjá VG
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESB er strax farið að kaupa Íslendinga til fylgilags


    Áróðursmaskina ESB er í þann  veginn að fara  á   fullt. Er
þegar farin að bjóða  völdum  fulltrúum  hagsmunasamtaka
úr viðskiptalífinu  til  Brussel, að sögn Bændablaðsins. Þetta
er  alveg í samræmi við það sem gerðist í ríkjum sem sóttu
um aðild að sambandinu. ESB tjaldaði öllu til og gerði allt til
að hafa áhrif á niðurstöðuna í viðkomandi umsóknarríki. Því
ESB virðir að sjálfsögðu engin landamæri og telur sig mega
íhlutast um innanríkismál ríkja strax  og  þau hafa sótt um
inngöngu í sambandið.  Þetta er í  meiriháttar anda Sovét-
skipulagsins forðum.  - Frægar voru  boðsferðir hérlendra
kommúnista til Kremlar þegar Sovétríkin voru  upp  á sitt
besta. Sovét-trú  hérlendra  kommúnista  keimlíkist mjög
ESB-trúboðinu nú  á  Íslandi. Enda sjá ESB-sinnar ekkert
við íhlutun   ESB  í íslenzk  innanríkismál, ekki frekar en
kommúnistarni um  Sovétið  forðum. Og  ekki  einu  sinni
Vinstri grænir, forverar hérlendra kommúnista, sem sam-
þykktu umsóknina að ESB.   Enda alþjóðahyggja beggja
byggð á sama meiði.  - Afmáðs þjóðríkisins!

   ÁFRAM ÍSLAND! EKKI ESB né SCHENGEN! EKKERT ICESAVE né AGS!
mbl.is Í boðsferð ESB til Brussel
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blaðamannafélagið stjórnað af Vinstri grænum !


   Blaðamannafélagið virðist nú vera stjórnað úr herbúðum Vinstri
grænna. Allir muna þegar stjórn þess mótmælti harðlega þegar
ritstjóraskipti urðu á Morgunblaðinu í fyrra. Davíð Oddsson var
ráðinn í stað Ólafs Stephensen. Blaðamannafélagið reis þá upp
á afturfæturna og fór þar fremst Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, nú-
verandi formaður Blaðamannafélagsins og nú nýr ritstjóri  vef-
málgagns Vinstri grænna, Smugan.is. Nú bregður svo við að
hvorki stuna né hósti heyrist frá Blaðamannafélagi Þóru, þótt
Jón  Kaldal  hafi verið rekinn sem  ritstjóri  Fréttablaðsins, en
Ólafur Stephensen fyrrv.ritstjóri Mbl. ráðinn í staðinn, og það án
auglýsinga.  Þvert á móti skein gleðin í augu Þóru í kvöld í Kast-
ljósinu, en þar var sessunautur hennar enginn annar en Ólafur
Stephensen nýráðinn ritstjóri Fréttablaðsins. Enda voru  þau
skötuhjú innilega sammála í Icesave-málinu, en sem öfga-ESB-
sinni vill Ólafur að Íslendingar hafi fyrir löngu samþykkt Icesave,
inngöngumiðann að ESB. Enda mun ráðning Ólafs vera liður í
því að styrkja áróðursherferð ESB og Evrópusinna á Íslandi fyrir
aðild Íslands að sambandinu. Nokkuð sem Vinstri grænum eins
og Þóru hugnast afar vel.

  Múgæsingin sem greip um sig meðal róttæklinga til vinstri og
ESB- trúboðsins  er Davíð var ráðinn ritstjóri var móðursýkisleg
í meira lagi.  En sem betur fer hefur Mogginn það umfram Frétta-
blaðið, að honum er hægt  að  segja  upp hvenær  sem er. En
Fréttablaðið er nauðgað inn um dýralúguna hjá manni á hverjum
degi alfarið gegn vilja manns og ósk. ÞVÍLÍK SKOÐANAKÚGUN!

Engin niðurstaða! Mjög gott mál !


    Fagna ber að engin niðurstaða náðist í Icesave-deilunni.
Enda um EKKERT að semja af hálfu okkar Íslendinga. Við
blasir því þjóðaratkvæðagreiðsla 6 mars n.k. Þökk sé for-
seta vorum. Þar mun þjóðin segja STÓRT  N E I við þjóð-
svikasamningnum um Icesave, sem Jóhanna og Stein-
grímur ætluðu að kúga yfir þjóðina. Skuldaklafa útrásar-
glæpamanna sem ENN GANGA LAUSIR undir vernd Ice-
save-stjórnar Jóhönnu og Steingríms. And-þjóðlegra
skötuhjúa er ganga erinda erlendra nýlenduvelda  og
sambandsríkis er hyggst innlima Ísland í Brusselveldið.

   Við STÓRT NEI við Icesave í þjóðaratkvæðagreiðslunni
6 mars fær Jóhanna og Steingrímur svo endanlegt RAUTT
SPJALD. Þjóðin slær tvær flugur í einu höggi. Icesave
út og hin handónýta afdankaða vinstristjórn út.  Í kjöl-
far alþingiskosninga  tæki  við KRÖFUG  og  ÞJÓÐLEG
borgaraleg  ríkisstjórn. -   Nýtt framfaraskeið hæfist.
Uppbygging atvinnulífs og nýting orku-og auðlinda
með tilheyrandi hagvexti og bættum kjörum  yrði loks
að veruleika. Þjóðfrelsisandi og bjartsýni á ÍSLENZKA
framtíð yrði alls ríkjandi samfara því að aðildarumsókn-
in að ESB yrði endanlega fleygt út í hafsauga.

   ÁFRAM ÍSLAND! EKKI ESB né SCHENGEN! EKKERT ICESAVE né AGS!
mbl.is Fundi lokið án niðurstöðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn er Heimssýn ekki trúverðug í Evrópumálum!


   Enn er Heimssýn, samtök gegn aðild Íslands að ESB, alls ekki
trúverðug í Evrópumálum. Því enn þann dag í dag er yfir þessum
samtökum formaður, sem ekki verður annað sagt en að sé Í RAUN
ESB-sinni. Ásmundur Einar Daðason heitir maðurinn. Þingmaður
flokks sem samþykkti aðildarumsókn Íslands að ESB. Stuðnings-
maður ríkisstjórnar sem berst fyrir aðild Íslands að ESB. Og þing-
maður  sem  samþykkti  sjálfan  Icesave-þjóðsvikasamninginn, 
segjandi á sömu stundu, að væri BEINTENGDUR ESB-umsókninni.

   Meðan svona falskt yfirbragð er yfir Heimssýn sem segist berjast
á móti ESB-aðild Íslands, er barátta hennar EKKI trúverðug, svo
ekki sé meira sagt. - Og í raun ekkert annað en algjör  skandall
hafandi slíkan ESB-sinna þar í forystu.

Stjórnmálamenn halda áfram að klúðra Icesave !


    Hringa-og lönguvitleysan um  Icesave  heldur  áfram. Og nú
virðist stjórnarandstaðan  farin  að taka fullan þátt í henni með
Icesave-flokkum ríkisstjórnarinnar. Í  stað þess að setja málið
í algjöra biðstöðu  fram  yfir  þjóðaratkvæðagreiðsluna 6 mars
n.k, er haldið áfram að froðusnakka við  Breta  og  Hollendinga
um allt og ekkert. Þvæla málið út og suður, ofan á alla þvæluna
hingað til, í von ríkisstjórnarinnar um að hægt verði að koma í
veg  fyrir  úrskurð  þjóðarinnar - Því  málið  liggur  skýrt  fyrir.
Forsetinn hefur  vísað  lögunum  um  Icesave-svikin frá 30 des.
s.l  til þjóðarinnar. Og skv. stjórnarskránni er málið nú í höndum
kjósenda á Íslandi. Það er  þeirra  að  taka ákvörðun um fram-
hald Icesaves-málsins, og senda viðsemjendum skýr NEI- skila-
boð. Það VERÐA stjórnmálamenn að skilja og virða. Ella er þing
og ríkisstjórn  að þverbrjóta  stjórnarskrána, með því að breyta
málskotsvaldi forseta í raunverulegt neitunarvald forseta líkt
og danska konungsins forðum. Froðusnakkið um Icesave  við
Breta og Hollendinga verður því að ljúka ÞEGAR Í STAÐ. Enda
um EKKERT AÐ SEMJA! E K K E R T!  Nema þá helst  VERULEGAR
skaðabætur frá Bretum vegna hinna forkastanlegu hryðjuverka-
laga þeirra á Ísland. 

   Stór hluti  þingmanna er hræddur við þjóðaratkvæðagreiðsluna
6 mars s.l. Ekki síst í ljósi þess að Icesave-svikasamningnum
verður þá alfarið hafnað af þjóðinni.  Hin handónýta vinstristjórn
verður þá neydd til að segja af sér og nýjar þingkosningar ákveð-
nar, Þar sem kjósendum gefst kærkomið tækifæri til að hreinsa
ærlega til í íslenzkum stjórnmálum, og henda út öllu hinu ónýta
og and-þjóðlega liði sem nú situr á þingi og í ríkisstjórn. Ekki síst
í ljósi ,,hrun- skýrslunar" senn senn verður birt á næstu dögum.


  ÁFRAM ÍSLAND. EKKI ESB né SCHENGEN! EKKERT ICESAVE né AGS!
mbl.is Þjóðaratkvæði um nýjan samning?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hættum að semja um Icesave !


    Hættum þessari tímasóun og skrípaleiknum um samninga um
Icesave. - Það er um EKKERT að semja í Icesave. Við erum enn
frjáls og fullvalda þjóð og látum ekki eldgömul nýlenduveldi með
stuðningi afdankaðs ríkjasambands,  kúga okkur til greiðslu á
skuldadrápsklyfjum mafíuósa til næstu áratuga, sem okkur ber
ENGA  skyldu  til að greiða.  Hvorki  lagalega  né  siðferðislega.
Íslenzk stjórnmálastétt á því að hætta að eyða dýrmætum tíma
í froðusnakk  um  eitthvað  Icesave-kjaftæði,  sem  þjóðinni  er
ALGJÖRLEGA óviðkomandi, og fara  þess  í  stað  að snúa  sér að
því  að  byggja  upp  nýtt  Ísland. - Bæta  kjör og  framtíðarsýn
íslenzkrar þjóðar.

   Þann 6  mars n.k mun íslenzk þjóð rísa upp og senda skýr skila-
boð til stjórnvalda og umheimsins um að nú  sé  mál  að  linni.  Ís-
lenzk þjóð lætur ekki gjörspillt alþjóðlegt fjármálaauðvald og mafíu-
ósa þess hneppa hana  í stórfelt skuldafangelsi um ókomna fram-
tíð, henni  algerlega  að  ósekju. - Skuldaþræla  stórglæpamanna
SEM  ENN  GANGA  LAUSIR  eins  og ekkert hafi gerst. Í  kjölfarið
verður þing rofið og efnt til þingkosninga, þar sem þjóðinni gefst
kostur á að stokka upp í íslenzkum stjórnmálum, og henda út öllu
því handónýta liði sem viðriðið er efnahagshrunið og stjórnleysi
undanfarinna ára. Liði sem vill ganga erlendum kúgunaröflum á
hönd, sbr. umsóknin að ESB og Icesave-þjóðsvikin. - Allt þetta lið
ber að henda  út  úr íslenzkum stjórnmálum, en inn komi STERK
ÞJÓÐLEG ÖFLl sem hafi trú á íslenzka framtíð, og heiðarlegum og
ábyrgum stjórnarháttum.  - Íslandi til heilla!

   ÁFRAM ÍSLAND! EKKI ESB né SCHENGEN! EKKERT ICESAVE né AGS!
mbl.is Erfitt að meta nýtt tilboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Steingrímur útbrunninn ! Ríkisstjórnin segi af sér!


   Ráðherra sem er gjörsamlega útbrunninn og um  megn  að 
standa vörð um  hagsmuni þjóðar sinnar og berjast af hörku
gegn erlendum ríkjum og  bandalagi, sem  hyggjast  knésetja
þjóðina með rakalausum kröfum um skuldaábyrgðir sem henni
er algjörlega óviðkomandi, á að segja af sér. Og það tafarlaust! 
Steingrímur J Sigfússon fjármálaráðherra  ber  höfuð ábyrgð  á 
Icesave-klúðrinu ásamt Jóhönnu Sigurðardóttir forsætisráðherra
og Össuri utanríkisráðherra. -  Þetta  fólk  á  allt að segja af sér
ásamt  hinni  handónýtu og  and-þjóðlegu vinstristjórn. - Í raun
ætti allt þetta fólk að sæta opinberri rannsókn  fyrir  meiriháttar
pólitísk afglöp sem ráðherrar í ríkisstjórn Íslands varðandi Icesave-
klúðrið. Því Icesave-afglöpin eru eitt  mesta pólitíska klúður í sögu
lýðveldisins. - Fyrr og síðar!

   Í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave-þjóðsvikasamning-
inn þar sem þjóðin mun kolfella hann,  mun ríkisstjórnin neydd til
að segja  af sér. - Í kjölfarið yrði efnt til þingkosninga, ný ríkisstjórn
þjóðlegra borgaralegra afla mynduð, og Icesave-málið endanlega
afgreitt á íslenzkum forsendum, ásamt  því að aðildarumsóknin að
ESB yrði dregin til baka. - Þar með yrði fullveldi og sjálfstæði Íslands
bjargað, ásamt efnahagslegri uppbyggingu á ný, og þar með fram-
tiðartilveru íslenzkrar þjóðar.

  ÁFRAM ÍSLAND! EKKI ESB né SCHENGEN! EKKERT ICESAVE né AGS!
mbl.is Hóflega bjartsýnn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skugga bar á stofnfund ungra ESB-andstæðinga


   Um leið og vert er að óska ungum ESB-andstæðingum til
hamingju með sín samtök gegn  aðild  Íslands  að ESB, er
vert að harma  að Ásmundur Einar Daðason þingmaður
Vinstri grænna skuli hafa ávarpað  fundinn. En  Ásmundur
þessi leikur meiriháttar tveim skjöldum í Evrópumálum. Er
þingmaður  flokks  sem  styður umsókn Íslands  að ESB. Er
stjórnarþingmaður ríkisstjórnar sem styður umsókn Íslands
að ESB. Og er  þingmaður  sem studdi Icesave-samninginn
illræmda, sjálfan aðgöngumiðann að ESB. - Furðulegast er
þó það að þessi sami Ásmundur, sem af  allri  upptalningu
þessari að dæmi, er í eðli sínu meiriháttar ESB-sinni, skuli
enn vera formaður Heimssýnar, samtaka gegn ESB-aðild.
Enda trúverðugleiki þeirra samtaka í algjöru lágmarki  um
þessar mundir, hafandi slíkan ESB-sinna í forystu!

  ÁFRAM ÍSLAND! EKKI ESB né SCHENGEN! EKKERT ICESAVE né AGS!

  www.fullvalda.is

  www.frjalstisland.is
 


mbl.is Stofna félag gegn ESB-aðild
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband