Bloggfærslur mánaðarins, maí 2016

Íslenska Þjóðfylkingin heldur opinn fund!

Íslenska Þjóðfylkingin, heldur kynningarfund nú
laugardaginn 7 maí á Hótel Nordica kl. 13-16.
Allir eru velkomnir!

Íslenska Þjóðfylkingin er nýtt stjórnmálaafl á
þjóðlegum borgaralegum grunni. Er vill standa
vörð um fullveldi og sjálfstæði Íslands, íslenska
menningu, og hafnar alfarið aðild Íslands að ESB
og TISA, vill Ísland úr Schengen strax og herta 
innflytjendalöggjöf, svo eitthvað sé nefnt. Þá 
hafnar ÍÞ moskum á Íslandi í ljósi ógnar af 
íslamsvæðingu Evrópu.

Fjölmörg önnur stefnumál verða kynnt á fundinum.
Íslenska Þjóðfylkingin  er afrakstur  fjölda hópa
og einstaklinga þjóðhyggjufólks sem boðar nýja 
stefnu og gjörbreytta pólitíska sýn í íslenskum
stjórnmálum. Viðhorf sem nú fara sigurför um 
Evrópu í dag gegn fjölþjóðahyggjunni, fjármála-
spillingunni, ofurmiðstýringu og yfirþjóðlegu valdi.
Já taumlausri alþjóðavæðingu á kostnað almennings
og þjóðríkja.

Allt borgarasinnað þjóðhyggjufólk er eindregið hvatt
til að mæta  á fundinn laugardaginn 7  maí á Hótel
Nordica kl 13-16.  ÁFRAM ÍSLAND!

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband