Grikkland mara á ESB ! Drögum ESB-umsóknina til baka tafarlaust!


   Grikkland er orðið mara á ESB. Portugal, Spánn, Írland
og Ítalía koma svo í kjölfarið. Evru-svæðið er í upplausn.
Enda bar meinið í sér frá fyrsta degi. Gat ALDREI komið
til að standast í jafn ólíkum hagkerfum og í ESB-ríkum.
Ein mynt, eitt gengi og eitt vaxtastíg gat ALDREI gengið
upp inna þessa ólíka og margbrotna evrusvæðis. Og nú
er ekki bara evru-svæðið í uppnámi, heldur Evrópusam-
bandið sjálft. 

   Í ljósi þessa hlýtur Alþingi Íslendinga að afturkalla ESB-
umsóknina til baka. Því ALLAR forsendur hennar eru borsn-
ar. Auk þess var sjálf ESB-umsóknin byggð á blekkingum
Samfylkingarinnar. Því komið er á daginn að í raun er ESB-
umsóknin AÐLÖGUNARFERLI að ESB en ekki umsókn  og
bið eftir því hvað komi út úr aðildarviðræðum. Sem er graf
alvarlegur hlutur. 
mbl.is Merkel: Niðurskurður mun hvetja aðra til dáða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

ESB gerir alvarlega athugasemn við skipun dómara á Ísland. Það er einn hlutur sem við þurufm að laga...... en þú vilt líklega hafa þetta áfram svona.

Árni Matt getur skipað son DO hvernær sem er..... 

Aðlögunarferlið er bara til góða.

Sleggjan og Hvellurinn, 3.5.2010 kl. 00:41

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Skil alls ekki Sleggjan þessa athugasemd. Enda ekki í Sjálfstæðisflokknum.
En aðlögunarferli að ESB er allt annað en umsókn að ESB. Á því er GRUNDVALLARMUNUR! Og um það var  Alþingi Íslendinga  EKKI spurt eða látið kjósa um............

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 3.5.2010 kl. 00:51

3 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Þð hafa nú ýmsar kreppurnar verið í Greece - og þá höfðu þeir drökmu og vaxtastig.

Að sjálfsögðu gengur  þetta alveg - en krefst ábyrgrar og agaðrar hagstjórnar.  Ennfremur er það þannig allstaðar og á öllum stigum,  að ef eytt er meir en aflað til lengri tima og tekin mikil lán - þá endar það gjarnan í vandamálum.

Eg veit ekki hvar andstæðingar Evrópu hafa fengið þá flugu í hausinn að Evra væri á einhvern dularfullan og mystískan hátt jafngildi þess að öll efnahagsvandamál væru úr sögunni.  Hef aldrei skilið þá kenningu hjá andsinnum.

Mikilsvert atriði er að grikkir hafa (líklega í mörg ár)  farið í kringum The Stability and Growth Pact (SGP) og þannig ekki fylgt ramma EU þar að lútandi (of langt og flókið mál að fara út í þá sögu, en að sumu leiti eru viðbrögð Merkel skiljanleg og ábyrg)

Með Portúgal og Spán - þá ber flestum ef ekki öllum (nema þeim sem eiga sér, einhverra hluta vegna,  þann draum að esb hrynji)  fræðimönnum saman um að portúgal og spánn eru ekki sambærileg við grikkland.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 3.5.2010 kl. 01:19

4 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Árni Matt fv. fjármálaráðherra réð son Daviðs Oddsonar sem héraðsdómara Austurlands þrátt fyrir að sérstök dómaranefnd var búið að velja aðra hæfari en einkasonur Davíðs.

Þetta er bara hrein og klár spilling.

ESB gerðir alvarlega athugasemnd um hvernig skipun dómara er hagað hérna á Íslandi. Það gegur ekki að ráðherrar fá að skipa dómara. Enda er það þannig núna að í hæstarétti eru meira og minna Sjálfstæðismenn við störf.

ESB vill að við kyppum þessu í lag. Breytum þessu í okkar stjórnsýslu. Þ.e bætum stjórnsýlsluna okkar.

Þannig að aðlögunarferlið er ekki al slæmt.

Sleggjan og Hvellurinn, 3.5.2010 kl. 08:34

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Takk fyrir þetta Guðmundur
 
29 ár í ESB-meðferð hefur gert Grikkland gjaldþrota. Vel af sér vikið.
 
ESB virkar greinilega. Það gerir lönd gjaldþrota og eyðileggur þau. Það tekur ESB bara 29 ár að breyta löndum í ruslahaug. Merkilegur félagsskapur.
 
Nú er höfuðborg ESB í Berlín. Brussel var þurrkað út á einum degi.    
 
Góðar kveðjur
 

Gunnar Rögnvaldsson, 3.5.2010 kl. 14:06

6 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Sömuleiðis Gunnar. Og takk fyrir allt þitt mikilvæga framlag fyrir þjóðfrelsi
Íslendinga.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 6.5.2010 kl. 13:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband