Hægri grænir virðast fá góðan hljómgrunn. Fyrsti opni fundurinn...


   Hinn nýstofnaði stjórnmálaflokkur HÆGRI GRÆNIR virðast ætla
að fá mjög góðan hljómgrunn.  Var stofnaður  17 júní s.l á þjóð-
hátíðardegi Íslendinga, og síðan hafa um 1000 manns gerst
meðlimir. - Þetta  hlýtur  að teljast met á svona stuttum tíma.
Enda málstaðurinn frábær, ítarleg  stefna í öllum málaflokkum.
Stefna sem  höfðar  til hins óbreytta  ALMENNINGS  á Íslandi.
Þar sem áhersla er  lögð  á  hagsmuni hans, frelsi, hugrekki,
mannúð og nýsköpun, ásamt því að segja hverskyns spillingu
stríð á hendir.  Flokkur ÍSLENZKRA ÞJÓÐARHAGSMUNA, þ.á.m
gegn ESB-aðild, gegn Icesave og gegn AGS, og að standa vörð
um náttúru Íslands.

  Sem umbótasinnaður hægrisinni með þjóðleg viðhorf og gildi
án fordóma að leiðarljósi, hef lengið beðið eftir slíkum flokki.
Ekki síst eftir hrunið mikla þar sem m.a Sjálfstæðisflokkurinn
brást ALGJÖRLEGA  á vaktinni! En Sjálfstæðisflokkurinn  hefur
vegna þessa misst  ALLAN   trúnað og ímynd sem framsækið 
borgaralegt afl á þjóðlegum grunni. Og afleiðingin? Hörmuleg,
afdönkuð vinstristjórn! NÝTT stjórnmálaafl með nýju og fersku
fólki hefur því sárvantað á hægri kant íslenzkra stjórnmála.
Fram til þessa!  ÞAÐ  stjórnmálaafl virðist nú mætt til leiks, til
heilla landi voru og þjóð.  H Æ G R I  GRÆNIR!   

   Vert er að vekja athygli á OPNUM FUNDI hjá HÆGRI GRÆNUM
í kvöld 15 júlí kl 20 á Kaffi Sólon.  Þar verða fluttar margar fram-
söguræður, og flokkurinn kynntur.  Mætum sem flest!

   ÁFRAM ÍSLAND! EKKI ESB né SCHENGEN! EKKERT ICESAVE né AGS!

   Á F R A M  H Æ G R I  G R Æ N I R í öllum kjördæmum Íslands!

   ps. HÆGRI GRÆNIR eru með heimasíðu á Facebook...................

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Þoli ekkert grænt nema plöntur með rótum. Planta án róta Steingrímur Hermannsson var rétt búin að koma mér á vonarvöl hér á árum áður svo sem mörgum öðrum og forverar Vinstri grænna hröktu mig svo frá ævi verkinnu, hreiðri fjölskyldunnar fyrir austan vegna orða sem þá sveið undan, þannig að hægri eða vinstri plöntur rót lausar treð ég niður þar sem þær eru fyrir.

Hrólfur Þ Hraundal, 18.7.2010 kl. 19:33

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Hrólfur minn.  HÆGRI grænir eru  hreinasti og heiðarlegasti HÆGRIFLOKKUR sem komið héfur fram. Sjálstæðisflokkurinn hefur GJÖRSAMLEGA BRUGÐIST
skyldu sinni á hægri kannti íslenzkra stjórnmála. Nafnið er aukaatri'ið,
meira til að að ÖGRA vinstriöflunum á Íslandi, eins og VG. 

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 18.7.2010 kl. 21:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband