Joly segir Jóhönnu og Steingrím veðsetja heila kynslóð Íslendinga


   Athyglisvert. Eva Joly segir ,,Icesave-deiluna vera bæði
lögfræðilega og pólitíska, og SEGIR HEIL KYNSLÓÐ ÍSLEND-
INGA VERÐI VEÐSETT, nái kröfur Breta og Hollendinga fram
að ganga. Þetta er spurning um áframhaldandi tilveru Ís-
lands"

   Með öðrum öðrum. Sósíaldemókrataforinginn Jóhanna
Sigurðardóttir og kommúnistaleiðtoginn Steingrímur J Sig-
fússon ætluðu  sér OG VILJA ENN veðsetja heila kynslóð
Íslendinga, vegna ólögmætra krafna Breta og Hollendinga
vegna Icesave. Og þar með að gera ALVARLEGA ATLÖGU
að TILVERU ÍSLANDS!

  Sjaldan eða aldrei hafa jafn þungar ásakanir fallið  á
erlendri grundu um íslezka stjórnmálamenn og þessi orð
Evu Joly. Sem sýnir og sannar hvers konar þjóðsvikarar
hafa komið að Icesave af Íslands hálfu.

  Slíkir stjórnmálamenn hljóta að verða dregnir fyrir Lands-
dóm þegar nýtt þing hefur verið kosið!

  ÁFRAM ÍSLAND! EKKI ESB né SCHENGEN! EKKERT ICESANE né AGS!
 
mbl.is Joly: Tilvera Íslands í húfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er ljóst að Ísland þarf að hafa samningamenn með bein í nefinu og samningsstöðu. Ef minnið bregst ekki tóku Jóhanna og Steingrímur við afar lélegri samningsstöðu frá Geir, Árna og Davíð, sem voru nánast búnir að lofa þjóðargersemunum með glapræðislegri pólítík sinni fyrir tveimur árum sléttum síðan.

Hinsvegar má lengi bæta gráu ofan á svart. Hvort einangrun Íslands sé svarið, leyfi ég mér að efast um.

Carlos Ferrer (IP-tala skráð) 11.10.2010 kl. 16:45

2 identicon

Eva Joly segir ekki eitt einasta orð um Jóhönnu og Steingrím, enda af hverju ætti hún að gera það.  Ótrúleg þess umræða að ófarir íslendinga og icesafe sé þeim að kenna. Það sem Eva Joly á við er að Englendingar og Hollendingar ættu að vera sanngjarnir í samningum við Íslendinga um þetta mál.

Jónína (IP-tala skráð) 11.10.2010 kl. 17:32

3 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Jónina. Þótt Joly nefni ekki Jóhönnu Icedrottningu og Steingrím Icesave-svein á nafn, fer ekki milli mála hvað hún er að' segja.

Carlos gleymdu ekki Ingibjörg og Össuri. Þau voru í hraunstjórninni og bera 100% ábyrgð á Icesave. Hvernig dettur þér í hug að nefna einangrun
í þessu sambandi?

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 11.10.2010 kl. 17:51

4 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Hún segir ekkert um Jóhönnu eða Steingrím. Hún talar um Breta og Hollendinga

Joly segir Icesave deiluna vera bæði lögfræðilega og pólitíska og segir að heil kynslóð Íslendinga verði veðsett, nái kröfur Breta og Hollendinga  fram að ganga.

Magnús Helgi Björgvinsson, 11.10.2010 kl. 17:54

5 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Magnús. Það er blindur kettlingur sem kann ekki að lesa í orð Yoly.
Því hverjir hafa barist jafn heiftarlega fyrir Icesave-kúgunarkröfum Breta
og Hollendinga en ekki EINMITT Jóhanna og Steingrímur? Þjóðsvikarar
sem munu fara beint fyrir Landsdóm að loknum kosningum.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 11.10.2010 kl. 18:18

6 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Og hugsaðu bara. HEIL KYNSLÓÐ Íslendinga mun gjalda fyrir Icesaveglæpinn að mati Joly. Svo VOGAR þú og þínir líkar að verja
Icesave-glæpinn gegn íslenzkri þjóð Magnús!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 11.10.2010 kl. 18:21

7 identicon

Hver er að verja Ice safe glæpinn Guðmundur Jónas. ENGINN og það er bara rakinn dónaskapur af þér að snúa út úr orðum þeirra sem gera athugasemdir hér.  Jóhanna og Steingrímur bera ekki sök á þessu máli, það er því miður þeirra að reyna að hreinsa út úr flórnum eftir aðra.  Eva Joly var að gagnrýna aðrar þjóðir fyrir að aðtstoða ekki Íslendinga, það var allt og sumt og bara út í hött að lesa/heyra annað út úr orðum hennar og Guðmundur Jónas, ef þú vilt láta taka mark á þér ættirðu að gæta orða þinna og hætta að uppnefna og vera dónalegur í annarra garð.

Jónína (IP-tala skráð) 11.10.2010 kl. 19:08

8 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Réttast væri að henda þér út hér raggeitin þín Jónína sem ÞORIR ekki hér
að koma hér fram undir FULLU NAFNI. Enda vond ÞJÓÐSVIK að verja þeirra
Svavars, Jóhönnu og Steingríms. Hendi þér hér út RAGGEITÍN þín komir
þú hér inn aftur!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 11.10.2010 kl. 20:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband