Kommúnistinn Ögmundur hyggst stórveikja löggæslu!


   Þótt kommúnistinn Ögmundur Jónasson sverji nú af sér
fréttir  Ríkisútvarpsins  um  stóruppstokkun löggæslunnar,
sem  Landssamband  lögreglumanna  segir stór veikja
hana og  færa  hana marga áratugi aftur í tímann,  eru
viðhorf ráðherra til öryggis-og varnarmála kunn. Því kom
það mjög á óvart, að kommúnisti eins og Ögmundur Jón-
asson hefði verið settur yfir þessum mikilvæga málaflokki,
í fyrsta sinn í sögu lýðveldisins. En hérlendir róttæklingar
til vinstri hafa ÆTÍР barist  gegn landvörnum  á Íslandi,
sem er  einsdæmi  í veraldarsöguni  að  pólitísk öfl hafni
vörnum sinnar eigin þjóðar og föðurlands. Þá hafa vinstri
róttæklingar eins og Ögmundur ávalt tortryggt hverskonar
eflingu á innra öryggi ríkisins. -   Má þar helst nefna eflingu 
víkingasveitar með öflugu varaliði, og stofnun leyniþjón-
ustu, sem ÖLL ríki heims reka í þágu öryggis þegna sinna
og ytra öryggis ríkisins. - Í ljósi öryggis-og varnarleysis-
hyggju hérlendra vinstrisinnaðra róttæklinga með Ögmund
Jónasson í broddi fylkingar, ber að trúa fremur frétt RÚV
en lævíslegum ummælum ráðherra. Því kommúnistar eru
hættulegir, sérstaklega þegar öryggis-og varnarmál eru
annars vegar.

   ÁFRAM ÖRUGGT ÍSLAND! BURT MEÐ KOMMÚNÍSKT ÖRYGGISLEYSI!

   tilvís. HÆGRI GRÆNIR á facebook.
mbl.is Ögmundur: Ekkert óðagot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband