Niðurstaða þjóðfundar að Ísland standi utan ESB !


   Þjóðfundi er nú  lokið um stjórnarskrá Íslands. Ekki verður annað
lesið út úr honum en að Ísland verði m.a utan ESB. Sem ber mjög
að fagna! -  En niðurstaða fundarins kveður m.a á um að stjórnar-
skráin sé sáttmáli ,,SEM TRYGGI FULLVELDI OG SJÁLFSTÆÐI ÍS-
LENDINGA og sé skrifuð fyrir fólkið í landinu" Hún eigi að standa
VÖRÐ UM ÍSLENSKA TUNGU, MENNINGU og AUÐLINDIR ÞJÓÐAR-
INNAR" En þjóðfundurinn vill að auðlindir landsins séu óframsel-
janleg þjóðareign.

   Skv. þessu ber komandi stjórnlagaþingi að styrkja enn betur
en nú er fullveldisákvæði stjórnarskrárinnar. Alla vega ALLS EKKI
að veikja það eða skerða. Sem þýðir að innganga Íslands í  ESB
er útilokuð. Þá ber stjórnlagaþinginu að standa vörð um auðlind-
ir Íslands í stjórnarskrá. Það þýðir óskoruð yfirráð Íslendinga yfir
sínum auðlindum, en það brýtur t.d algjörlega gegn SAMEIGIN-
LEGRI sjávarútvegsstefnu ESB. Og svona má lengi telja. Þannig
að niðurstaða þjóðfundar hafnar Í RAUN aðild Íslands að ESB!
Einkum vegna FULLVELDISINS og YFIRRÁÐA YFIR AUÐLINDUM.

   Í komandi kosningum til stjórnlagaþings er því brýnt að þar
verði kosnir þeir sem best er treystandi til að framfylgja þeim 
MEGIN KRÖFUM þjóðfundar um FULLVALDA ÍSLAND með YFIR-
RÁÐUM YFIR SÍNUM AUÐLINDUM. Allt annað eru svik við þjóð-
fundinn og þjóðina.

   ÁFRAM ÍSLAND!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Björn Birgisson

Nú styttist í kosningar til Stjórnlagaþings. Þar eru 523 Íslendingar í framboði.

Í þeim hópi er alls konar ágætt fólk, en þar er líka þjóðhættulegt fólk, sem ætti ekki einu sinni að fá að vera í framboði, fortíðar sinnar vegna.

Hvaða fólk er það?

Það eru hin viðbjóðslegu viðrini sem sýknt og heilagt eru að ásaka landa sína, sem vilja ræða við ESB um aðild, um landráð og landráðahugsunarhátt.

Í hnotskurn og samandregið.

Atkvæði greidd slíkum dusilmennum verða til þess eins að skemmta skrattanum sjálfum. Hann þarf ekki á þeirri skemmtun að halda.

Hefur nóg með sitt, sem stundum áður.

Björn Birgisson, 7.11.2010 kl. 21:32

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Björn. ESB aðild er slík grundvallarspurning um stkórnskipan Íslands í framtíðinni að hún hlýtur að blandast MJÖG í þessar kosningar.
Getum bara gleymt að gera nokkrar breytingar á núverandi stjórnarskrá sem málið skiptir göngum við í ESB. Því við inngöngu í ESB víkur íslenzka
stjórnarskráin í stóru sem smáu stangist hún við stjórnarskrá ESB, Lissabonsáttmálann.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 7.11.2010 kl. 21:40

3 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Sæll  Guðmundur, Var á þessum fundi og þannig var þetta.

Björn, sé það þjóðhættulegt fólk sem verst erlendum yfirráðum hvað heitir það þá að sækjast eftir þeim?  

Það er merkilegt hvað sumum er meinlega við að stjórna sér sjálfir og hamast eins og rjúpa við staur að komast undir stjórn sambands sem stefnir á að verða EvrAsíu sambandið.    

Hrólfur Þ Hraundal, 7.11.2010 kl. 22:42

4 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

   Góður Hrólfur.

Helga Kristjánsdóttir, 8.11.2010 kl. 00:19

5 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Góður  Hrólfur!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 8.11.2010 kl. 00:22

6 Smámynd: Jón Valur Jensson

Já, verulega góður Hrólfur!

Og þessi grein þín, Guðmundur er líka ein hin bezta sem ég hef séð frá þér, meituð og rökföst í niðurstöðum sínum. Ekki komst ég heldur hjá því að taka eftir þessum jákvæðu áherzlum þjóðfundarins á sjálfstæða þjóð, fullveldi landsins og eignarhald auðlinda þess hjá okkur sjálfum.

Áfram Ísland! – Ekkert ESB!

PS.: Til hugleiðingar um ESB ...

Jón Valur Jensson, 8.11.2010 kl. 02:18

7 Smámynd: Jón Valur Jensson

MEITLUÐ er hún!

Jón Valur Jensson, 8.11.2010 kl. 02:20

8 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Takk Jón Valur. Þú verður einn af efstu mönnum sem ég mun kjósa á
stjórnlagaþingið. Gangi þér vel!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 8.11.2010 kl. 09:21

9 Smámynd: Jón Valur Jensson

Hjartans þakkir, Guðmundur Jónas!

Sjálfur hefðir þú átt að vera í framboði.

Jón Valur Jensson, 8.11.2010 kl. 11:03

10 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Jamm inn í ESB höfum við ekkert að gera, og burt með AGS líka sem fyrst.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.11.2010 kl. 11:33

11 Smámynd: Jón Valur Jensson

Heyr!

Jón Valur Jensson, 8.11.2010 kl. 14:16

12 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Vissulega er ekki hægt að ræða stjórnarskrárbeytingu án þess að tala um ESB. Það er jú grundvöllurinn sem liggur að baki breytingunni, að mati sjórnvalda.

Því er mikilvægt að koma eins mörgu fólki sem aðhyllist sjálfstæði landsins á stjórnlagaþing. Þú átt vissulega mitt atkvæði Jón Valur.

Og þakka góðan pistil Guðmundur.

Gunnar Heiðarsson, 9.11.2010 kl. 21:17

13 Smámynd: Björn Birgisson

Áfram Hægri grænir, þjóðinni til heilla!

Björn Birgisson, 9.11.2010 kl. 22:12

14 Smámynd: Jón Valur Jensson

Hjartans þakkir, Gunnar Heiðarsson!

Björn, ég er ekki í HægriGrænum. En drífðu þig þangað í einum grænum!

Jón Valur Jensson, 9.11.2010 kl. 23:39

15 Smámynd: Björn Birgisson

JVJ, ertu ekki í Hægri grænun? Þú setur mig í vanda. Þú veist að ég elti þig eins og skugginn þinn! Skugginn sem þú getur aldrei afneitað eða lokað á.

Björn Birgisson, 10.11.2010 kl. 00:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband