Sjálfstæðisflokkurinn svikur þjóðina í Icesave !
2.2.2011 | 15:44
Þá er það endanlega staðfest. Hinn grímulausi sósíaldemó-
kratiski Sjálfstæðisflokkur kemur nú endanlega fram úr sínum
sósíaldemókrataíska skáp.- Gengur til liðs við hin óþjóðhollu
vinstriöfl enn einu sinni, og ætlar að VOGA sér að samþykkja
ólögvarðar skuldadrápsklyfjar nýlenduveldanna í ESB, Breta
og Holllendinga. Taka fullkomna þátt með sósíaldemókrötunum
gegn íslenzkum þjóðarhagsmunum. Ofan á allan þann AULASKAP
sem Sjálfstæðisflokkurinn er sekur um í hruninu mikla árið 2008.
Aldrei hefði maður órað fyrir hversu lágt þessi AULAFLOKKUR í
íslenzkum stjórnmálum gæti gengið. En nú liggur það fyrir.
Enn og aftur sannast hversu mikil þörf er nú á ALLSHERJAR
UPPSTOKKUN á hægri kanti íslenzkra stjórnmála. Nú þegar
hinn sósíaldemókrataíski Sjálfstæðisflokkur hefur ENDANLEGA
stimplað sig þar út.
Eina von þjóðarinnar er að forseti Íslands vísi Icesave-þjóð-
svikunum aftur til hennar. Hún hefur hafnað þeim og á FULL-
KOMNA HEIMTINGU Á að fá að HAFNA ÞEIM AFTUR! Alþingi
hefur EKKERT umboð í málinu lengur. Umboðið er hjá þjóðinni.
ÁFRAM ÍSLAND! EKKERT ICESAVE!
Þjónar hagsmunum að ljúka Icesave | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:46 | Facebook
Athugasemdir
Samþykkt stjórnar samtaka fullveldissinna um Icesave III
Axel Þór Kolbeinsson, 2.2.2011 kl. 16:13
Gott mál Axel. Vísa líka til stefnu Hægri grænna í Icesave þar sem þeir hafna þeim líka ALFARIÐ!
Guðmundur Jónas Kristjánsson, 2.2.2011 kl. 16:32
Sérkennilegt að Sjálfstæðismenn (reyndar 3) taki þessa stefnubreytingu eftir að hafa verið svo mjög á móti hinum samningunum og óviss með hvort ætti að fara dómstólaleiðina. En það er ekki þar með sagt að allur flokkurinn muni endilega samþykkja hann. Sjáum hvað setur.
Skúli (IP-tala skráð) 2.2.2011 kl. 16:47
Ég bjóst ekki við neinu öðru af Sjálfstæðisflokknum, Guðmundur. Og held þú hafir verið nokkuð viss líka. Og nú munu þeir missa fylgi.
Elle_, 2.2.2011 kl. 19:51
Vegna hinnar veiku forystu flokksins bjóst ég við þessu.
Elle_, 2.2.2011 kl. 19:55
´Þorgerður Katrín og hennar sósíaldemókratalið styrir enn flokknum.
Það er sú blákalda staðreynd Elle sem við blasir í dag.
Guðmundur Jónas Kristjánsson, 2.2.2011 kl. 20:09
Já, lítur út fyrir það, Guðmundur. Ógeðslegt. Spillingar-Þorgerður borgar ICESAVE ÚR EIGIN VASA. Við hin munum ekki gera það.
Elle_, 2.2.2011 kl. 20:18
Þurfum Elle að byggja upp nýtt heiðarlegt borgaralegt afl á þjóðlegum
grunni. Sjálfstæðisflokkurinn er löngu búinn að vera það sem slíkur.
Eigum nú að þyrpast í HÆGRI GRÆNA og byggja hann upp sem eina
sanna hægriaflið í íslenzkum stjórnmálum í dag. Von er á yfirlýsingu
Hægri grænna um málið á morgun. Sannir hægrisinnaðir sjálfstæðismenn
eiga nú hvergi heima en í hægri grænum.
Guðmundur Jónas Kristjánsson, 2.2.2011 kl. 20:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.