Formaður Sjálfstæðisflokksins vill vinstristjórnina áfram


    Get heilshugar tekið undir orð Björns Bjarnasonar fyrrum
dómsmálaráðherra, að ,,vísasti vegurinn til þess að lengja
þann tíma sem núverandi ríkisstjórn sitji sé að samþykkja
lögin um Icesave-samninganna".

   Með öðrum orðum. Bjarni Benediktsson formaður Sjálf-
stæðisflokksins vill að hin afdankaða óþjóðholla vinstri-
stjórn sitji áfram.  Sem staðfestir orð mín áður að hin
sósíaldemókrataísku öfl innan Sjálfstæðisflokksins hafa
náð yfirtökunum í flokknum, eftir að  Bjarni Benediktsson
gekk til liðs við þau að áeggjan Þorgerðar Katrínar Gunn-
arsdóttir, ofur-sósíaldemókrata í flokknum.

   Hvergi á byggðu bóli hefði þjóðhollur borgaralegur flokk-
ur galopnað óútfylltan víxil á ríkissjóð fyrir ólögvarinni kröfu
óvinveittra þjóða,  byggðri á óreiðuskuldum glæpamanna í
heimalöndum kröfuhafa, er enn ganga lausir m.a í þeirra
eigin lögsögu.

   Er að furða að Sjálfstæðisflokkurinn logi nú stafna á milli?
Er að furða þótt sannir borgarasinnaðir þjóðhyggjumenn
leiti nú á önnur mið?

   ÁFRAM ÍSLAND!   EKKERT ICESAVE-HELSI

  
mbl.is Segir ríkisstjórnina standa atvinnulífinu fyrir þrifum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Já Guðmundur það er þess virði að horfa eftir Því sem Björn Bjarnasson segir. 

En það er merkilegur andskot hvernig allt þinglið Sjálfstæðisflokksins  snérist á einni nóttu. 

Það var nánast eins og að Grímur sjálfur eða einhver líkur ári hafi framleit umsnúninginn, svo brútallt var það. 

Hugsanlega eru þeir B. Ben og Tryggvi þegar komnir undir pilsið hjá JóGrímu. 

Hrólfur Þ Hraundal, 2.4.2011 kl. 00:15

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Já svo er Tryggvi Þór fyrrv. Allaballi og sósíalisti orðinn sérstakur talsmaður
Sjálfstæðisflokksins í Icesave. Brandari!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 2.4.2011 kl. 00:40

3 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

VG er að kæfa atvinnulífið.. það er bara þannig.

Guðmundur. Smá forvitnis spurning.

Hvað er að vera borgarasinnaður?

Og hvað er svo að vera borgarasinnaður þóðhyggjumaður?

hver er munurinn á því og t.d sosial demókrata?

bara svona hugleiðing... þarft ekkert að svara. 

Sleggjan og Hvellurinn, 2.4.2011 kl. 13:51

4 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Að vera borgaralega sinnaður er að vera anti-vinstrisinni. Trú á athafnafrelsi einstaklingsins og önnur borgaraleg gildi og viðhorf.
Þjóðhyggjusinni er sá sem vill standa vörð um frelsi og hagsmuni þjóðar
sinnar, fulldeldis- og sjálfstæðissinni. Hvort tvegja 100% andstætt hugsjónum sósíaldemókrata, er hafa komið Íslandi nánast á hausinn.
Sósíaldemókratisminn bæði í Samfylkingunni og Sjálfstæðisflokknum.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 2.4.2011 kl. 16:55

5 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

áttti að vera ,, fullveldis- og sjálfstæðissinni".

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 2.4.2011 kl. 16:57

6 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Ég er þá borgaralega sinnaður.

En ekki beint þjóðhyggjusinni að öðru leiti að vilja standa vörð um frelsi og hagsmuna þjóða sinnar. Stundum er hagsmunir þjóðar sinnar betri ef maður deilir fullveldi sínu með öðrum þjóðum.

Samstarf getur verið af hinu góða.

Sleggjan og Hvellurinn, 2.4.2011 kl. 18:30

7 identicon

Jahhhá! Er Tryggvi Þór fyrrverandi allaballi? 

En á nýfrjálshyggjan og eftirlitsleysið ekki líka stóran þátt í þeim aðstæðum sem við erum í núna?  Eða tengirðu það við sósíaldemókratismann sem þú ert svo á móti?

Skúli (IP-tala skráð) 3.4.2011 kl. 01:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband