Of seint apríl-gabb hjá ykkur í SA og ASÍ!


   Hótanir samtaka atvinnulífsins og ASÍ varðandi Icesave,
er einfaldlega of seint aprílgabb, sem enginn tekur mark
á. Auk þess að vera  meiriháttar brandari að vilja draga
Icesave-skuldadrápsklyfjarnar inn í kjarasamninga sem
kjarabætur fyrir launþega. Þvílík öfugmæli! Ofurskatta-
píningu er yrði ávísun á enn stórfeldari kjaraskerðingu
en þá sem þegar hefur átt sér stað, og sem aldrei mun
sjást fyrir endann á

   Of seint aprílgabb því þetta eru sömu aðilanir  sem
hótuðu heimsendi ef hinir þjóðsvikuli Svavarssamningur
í Icesave yrði ekki samþykktur.

   Látum vera að aularnir hjá SA hóti undir forystu  Egils
Vilhjálmssonar sérfræðings í ragnarökum, en að það skuli
vera hlutskipti forystu ASÍ að kokgleypa slíkar aulahótanir
og gera að kjarabótaforsendu fyrir umbjóðendur sína til
næstu ára, er með slíkum ólíkindum, að ekki fá orð lýst. 

  Að ICESAVE sé allt í einu orðið meiriháttar  hornsteinn og
forsenda kjarabóta á Íslandi er þvílíkur farsi og absúrd
leikhús fáránleikans, að manni fallast hendur.

   Ætlar aulahættinum á Íslandi eiginlega  aldrei að linna?   
mbl.is Þarf að endurmeta stöðuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég veit um að minnsta kosti eitt já sem þeir misstu við þessar yfirlýsingar Vilhjálms, og það manneskja sem ég hafði reynt að leiða til rétts vegar.   En Villi fór létt með að vinna það sem ég hafði reynt lengi. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 6.4.2011 kl. 10:27

2 Smámynd: Elle_

Já, þetta er næstum fullkomnun fáránleikans.  Og ósvífninnar.  Gleymum ekki hinum hótandi Guðmundi Gunnarssyni hjá Rafiðnaðarsambandi.  Hann heimtaði ICESAVE 1 og ICESAVE endalaust.  Hvað vakir fyrir þessum mönnun ef ekki mútur?  Hví fær þetta ICESAVE lið að ganga um hótandi okkur og ógnandi??

Elle_, 7.4.2011 kl. 20:29

3 Smámynd: Elle_

Rafiðnaðarsambandinu.

Elle_, 7.4.2011 kl. 20:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband