Vinstrimennskan rústar Íslandi! Þjóðholl hægriöfl taki við!


   Vinstrimennskan undir forystu sósíaldemókrata er að rústa
Íslandi. Meir að segja stjórnskipunarleg upplausn og óvissa 
ríkir á Íslandi, sbr. stjórnarskrármálið. Og málefni helsta undir-
stöðu- atvinnugreinar þjóðarinnar  er  í  upplausn  og  óvissu.
Ringulreið  og  upplausn  er  á  Alþingi sem einungis nýtur 9%
trausts þjóðarinnar.  Já allsherjar upplausn og stjórnleysi blasir
hvarvetna við á Íslandi í dag. -  Jafnvel  fullveldi  og   sjálfstæði
Íslands er í bullandi óvissu, sbr. ESB-umsóknin!!!!!

   Skyldi það vera tilviljun að öll þessi upplausn og óvissa skuli nú 
einmitt ríkja í tíð hinnar tæru fyrstu vinstristjórnar á Íslandi? Og
það undir stjórn sósíaldemókrata sem efuðust ætíð um réttmæti
lýðveldistökunnar 1944, útfærslu landhelginnar, og bera svo mestu 
ábyrgð á  hruninu mikla 2008  eftir að hafa þvingað og logið hinum
stórgallaða EES-samningi upp á þjóðina! Samning er sniðin er fyrir
milljóna manna þjóðir en ekki örþjóð eins og Íslendinga. Hin öfga-
kennda alþjóðahyggja sósíaldemókrata í hnotskurn!  Og ekki síst
með ESB-umsóknina nú í farteskinu!

   Upplausn og stjórnleysi kallar á aga og stjórnlyndi.  Þar sem
þjóðholl íhaldssöm gildi og viðhorf skulu verða grunnurinn  að
traustri stjórnskipan og farsælli stjórn landi og þjóð til heilla.

   Stjórnmálaflokkurinn HÆGRI GRÆNIR er nú mættur  til leiks.
Flokkur sem þjóðholl hægriöfl munu nú sameinast um til að bjarga
Íslandi úr rústum vinstrimennskunar  og hennar óþjóðhollu  og
andþjóðlegu vanmáttarkenndar gagnvart íslenzkum hagsmunum
og íslenzkri þjóðartilveru!

 ÁFRAM HÆGRI GRÆNIR!  ÁFRAM ÍSLAND!

   www.xg.is   www.afram-island.is
mbl.is Þingfundur á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband