ESB-mjálmið í Vinstri grænum hlægilegt!


    Kisu-mjálmið í vara-formanni Vinstri grænna og öðrum
þar innan kattarveggja, um að endurskoða ESB-umsóknina
er vægast sagt hlægilegt! Ekki síst nú fáum mánuðum fyrir
þingkosningar. ENGINN tekur mark á slíku!

   Vinstri  grænir hafa  ALDREI  verið  heilir  í fullveldis- og
þjóðfrelsismálum  Íslendinga.  Enda  forverar   hérlendra
kommúnista. Sem sátu á svikráðum  alla tíð gagnvar þjóð-
frelsi Íslendinga ákallandi Sovét-Ísland hvenær kemur þú?
Öryggis-og varnarleysishugsjónir  VG  og  forvera  þeirra
fyrr og nú staðfesta það!

   Vinstri grænir meintu ALDREI neitt með svokallaðri and-
stöðu sinni við ESB-aðild. Annars hefðu þeir ALDREI látið
flokk sinn og ríkisstjórn sína sækja um ESB-aðild, og öllu
því aðlögunarferli með tilheyrandi mútustyrkjum.(IPA) .
Og því síður samþykkt  þjóðsvikasamningana um Icesave,
allt til að þóknast sósíaldemókrataísku vinum sínum í því
að troða Íslandi í ESB hvað sem það kostar. Svo einfalt
er það! 

   Já mjálmið í Vinstri grænum um Evrópumál er hlægilegt!
Því hin öfgakennda vinstrisinnaða alþjóðahyggja sem öll
hugmyndarfræði þeirra byggist á, hefur ávalt passað inn
í hina ofur-yfirþjóðlegu miðstýringaráráttu valdhafanna í
Brussel. Sem margir hverjir koma einmitt úr valdastólum
gömlu leppríkja Sovétsins.  Hugarfóstur forvera Vinstri
grænna!

   Já mjálmið í Vinstri grænum um ESB-andstöðu er hlægi-
legt!  Spreng-hlægilegt!  

mbl.is Vilja endurskoða ESB-umsóknina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónatan Karlsson

Vel mælt, Guðmundur.

Jónatan Karlsson, 12.8.2012 kl. 20:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband