Bjarna Ben og Sjálfstæðisfl. ekki treystandi í Evrópumálum!
15.8.2012 | 00:26
Hvernig geta t.d íhaldssamt þjóðhyggjufólk treyst Bjarna
Benediktssyni formanni Sjálfstæðisflokksins í Evrópumálum?
Manninum sem útilokaði ekki aðild Íslands að ESB fyrir síðustu
kosningar. Og hvernig er hægt að treysta núverandi flokksfor-
ystu Sjálfstæðisflokksins í Evrópumálum, sem lá hundflöt í
Icesave? Lyklinum að ESB. Og sem vill enn halda í Schengen-
ruglið og tekur ekki í mál að endurskoða EES-samninginn,
frumorsök hrunsins!
Nei að sjálfsögðu geta íhaldssamt þjóðhyggjufólk ekki
treyst Sjálfstæðisflokknum í Evrópumálum. Flokki sem sósíal-
demókratísk öfl hafa fengið að grassera í um áratugi, með
skelfilegum afleiðingum fyrir land og þjóð.
Íhaldssamt þjóðhyggjufólk hljóta fremur að horfa til flokks,
sem hefur einmitt afdráttarlausa stefnu í Evrópumálum. Flokks
sem alfarið hafnar aðild Íslands að ESB af pólitískum ástæðum.
Flokks sem vill draga ESB-umsóknina tafarlaust til baka! Flokks
sem segja vill upp Schengen-ruglinu strax! Og flokks sem vill
endurskoða EES með tvíhliða viðskiptasamning við ESB í huga
sbr. Sviss.
Já því ekki að horfa til flokks HÆGRI GRÆNNA? Flokk fólksins!
www.xg.is
Ekki heiðarlegt að halda áfram | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.