Össur hlutast til um rússnesk innanríkismál. Óviðeigandi!


   Össur Skarphéðinsson ráðherra án landamæra hlutast nú til
um innanríkismál Rússlands. Vegna Pussy Riot málsins. Kemur
ráðuneytisstjóra sínum í samband við sendiherra Rússlands hér
á landi um lyktir málsins. Sem eru hrein gróf inngrip og afskipti
af rússneskum innanríkismálum. Nokkuð sem væri illa séð a.m.k
af fullveldissinnum hér á landi.

  En þar sem Össur er ekki fullveldissinni og ráðherra án landa-
mæra á Íslandi  með stuðningi frá Brussel, telur hann sig umkom-
inn til slíkra afskipta. Og ekki skemmir það ánægjuna fyrir gömlum
trúlausum sósíalista eins og Össuri að  þarna á kirkjan  og  kristin
trú og gildi hlut að máli.

  Það er aumkunarvert á horfa upp á svona hræsni og hræsnara!

  Sem betur fer  er Össurar-tímaglas hræsninar senn að renna út!
  

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Eins og þú veist er þessi dómur út í hött.  Við sem styðjum að frelsi og mannréttindi séu virt eigum að láta rödd okkar heyrast.  Það er víst til nógu margir í þessari veröld sem kjósa hitt.

H.T. Bjarnason (IP-tala skráð) 19.8.2012 kl. 16:40

2 identicon

Spurningin er hvor PR er mer raunverulega mannréttindabaráttu eða bara skrílslæti

HÉR eru allavega mannréttindi brotin

Ellefu ára kristin stúlka í Pakistan hefur verið handtekin og sökuð um guðlast. Æstur múgur krafðist handtöku hennar og hótaði að brenna heimili kristinna utan við höfuðborgina Islamabad. 600 manns flúðu heimili sín. S

Stúlkan sem á við andlega erfiðleika að stríða hafði fundist með síður úr hinni helgu bók múslima, kóraninum, í poka sem í var líka rusl. Paul Bhatti, ráðherra þjóðarsamhljóms í Pakistan segir að lögregla hafi ekki viljað handtaka stúlkuna í fyrstu en látið undan múgnum. Hann sagði lögreglu gæta foreldra hennar því þeim hefði verið ógnað. Vanhelgi menn kóraninn í Pakistan varðar það lífstíðarfangelsi

Grímur (IP-tala skráð) 19.8.2012 kl. 18:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband