Viðskiptaráðherra vill áfram háa verðbólgu og vexti


   Viðskiptaráðherra var í drottningarviðtali í Sílfri Egils í
dag. Ekki kom á óvart málflutningur hans um upptöku
evru og innganga Íslands í Evrópusambandið. Það er
allra meina bót hjá viðskiptaráðherra. En talandi frekar
um verðbólgu og háa vexti kom Egill Helgason með eina
grundvallarspurningu,  og  sem  sjávarútvegsráðherra
vakti athylgi á um daginn. Og hún var sú HVERS VEGNA
VÆRI EKKI NOTAÐUR  SAMI REIKNINGSSTUÐULL  til  að
reikna út verðbólgu á Íslandi  og innan Evrópusamband-
sins og EES.?  Hvers vegna væri ekki þegar búið að taka
verð fasteigna út úr vísitölunni hér á landi eins og innan
ESB? En sem kunnugt er hefur fasteignarverð á Íslandi
verið í himinn  hæðum  og verið aðal verðbólguvaldurinn.  
Sjávarútvegsráðherra hefur með sterkum rökum sýnt
fram á að ef sama reikningsaðferð væri viðhöfð á Íslandi
og innan ESB við að reikna út verðbólgu, væri verðbólga
á Íslandi sú sama  og innan ESB, og í sumum  tilfellum
minni eins og gagnvart Þýzkalandi og Spáni. Hvað þýddi
það.? Svipuða verðbólgu á Íslandi og innan ESB og þar
með STÓRLÆKKUN vaxta  frá  því sem nú er. Því það er
rökréttara að líta á kaup á fasteign sem FJÁRFESTINGU
en ekki NEYSLU eins og gert er hérlendis.

   Það að viðskiptaráðherra skuli bara yppa öxlum og
nánast eyðja spurningunni í  Silfri Egils í dag er með
hreinum ólíkindum. Er  það kannski vegna þess að það
var ekki hann  heldur  sjávarútvegsráðherra sem var
fyrstur til að benda á þessa staðreynd? Eigum  við svo
almenningur í landinu að líða fyrir hégómagirnd við-
skiptaráðherra hvað þetta varðar?  Sem þýðir hvað?
Að viðskiptaráðherra vill áfram háa verðbólgu og háa
vexti á Íslandi okkur  almenningi og atvinnulífi til stór-
tjóns........

  

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Það kemur mér á óvart hvað Björgvin hefur sloppið við að svara þessu útspili sínu varðandi niðurfellingu stimpilgjalda sem virðist hafa verið algerlega innistæðulaust hjal.

Hann er viðskiptráðherra og það er hætt við að yfirlýsingar sem þessar verði til þess að markaðir hiksta þ.e. fólk hugsar sig um áður en það fjárfestir í fasteign ef það á von á að það muni verða verulegar breytingar á kostnaði sem fylgir kaupunum.

Sigurjón Þórðarson, 4.11.2007 kl. 23:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband