Vinstrisinnuð skrílslæti í Ráðhúsinu


   Það var vægast sagt  ömurlegt að  vera vitni  af  pólitískum
skrílslátum fárra vinstrisinnaðra róttæklinga í Ráðhúsi Reykja-
víkur í dag. Ömurlegast  var  þó að  sjá  og heyra  fráfarandi
borgarstjóra og aðra  borgarfulltrúa  Samfylkingarinnar taka
undir þessi skrílslæti, og réttlæta þau - Það að löglega kjörnir
borgarfulltrúar skuli hafa  verið  stöðvaðir  með fundarhöld  í 
Ráðhúsinu er skandall, ekkert annað en gróft  tilræði  við  lög,
reglur og  lýðræðið í landinu. - Þarna  hefði  lögregla átt  að
grípa í taumanna þegar í stað...

   Sem betur fer hafa hinum afturhaldssömu vinstriöflum nú verið
komið frá í borgarstjórn Reykjavíkur. - Það sama þarf að gerast í
landsstjórninni með myndun borgaralegrar ríkisstjórnar, og það
sem allra fyrst.  
mbl.is Mótmælendur yfirgefa Ráðhúsið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú ættir að skammast þín sjálfur fyrir aðp vera reykvíkingur og styðja þennan meirihluta sem er bygður á valdnýðslu og skömm og engu öðru. Þitt fólk skeit á sig þegar þau voru við völd og þess vegna misstu þau völdin ekki útaf neinnu öðru.  Aldrei mun ég kjósa aftur D listan. Hef alltaf grunnað D lista fólk um valdasýki en að leggjast svona lágt þá er fólki nó boðið. Ættir kannski að skoða skoðunarkannanir. Greinilegt að fólk eins og ég sem vorum hlutlaus höfum tekið ákvörðum og það er að ekki kjósa D listan aftur. Verst finnst mér að hafa ekki getað mætt sjálfur í ráðhúsið.  

gummi. (IP-tala skráð) 24.1.2008 kl. 15:24

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Þú ættir miklu fremur að skammast þín gummi minn að vera svo mikill heigull að þora ekki einu sinni að koma undir fullu nafni til
að verja þennan ÖMURLEGA málstað vinstriaflanna í Reykjavík.
Sem BETUR FER er þessi framtakslausta vinstristjórn í Reykjavík úr
sögunni. Vonandi verður Samfylkingunni líka hent sem fyrst út úr landstjórninni. Það voru mikil mistök hjá Sjálfstæðisflokknum að
mynda með henni ríkisstjórn. Vonandi springur hún líka sem fyrst eins og fyrrv. borgarstjórn.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 24.1.2008 kl. 15:40

3 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Alex. Þetta var meira en klapp og pú.  Þarna var með grófum hætti
og nánast með valdbeitingu reynt að koma í veg fyir að réttkjörnir
fulltrúar borgarbúa gætu sinnt skyldustörfum þannig að það varð að
FRESTA fundi. Kannski ertu enn svo óþroskaður,  barnalegur og
ófrjálslyndur  að halda að slíkt sé allt í stakasta lægi. Týbiskt fyrir öfgasinnaðan hugsanahátt vinstrisinnaðra róttæklinga.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 24.1.2008 kl. 16:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband