Tíbet : Noregur gagnrýnir en Ísland ekki !


   Norðmenn ganrýna harðlega kínversk stjórnvöld fyrir
framferði þeirra í Tíbet. Gera það í nafni Noregs og á
norskum forsendum. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utan-
ríkisráðherra kýs hins vegar það fádæma ósjálfstæði að
láta Ísland vera með í yfirlýsingu Evrópusambandssins
varðand ástandið Tíbet.  Hvers vegna í ósköpunum gat
Ísland ekki mótmælt ástandinu í Tíbet eins og Norðmenn
hafa gert? 

   Hefur Ingibjörg Sólrún nú þegar ESB-vætt íslenzka utan-
ríkisstefnu?

  Hefur Sjálfstæðisflokkurinn samþykkt það ?

  Hvers vegna þá  þessi OFUR-ÞÖGN um málið ?
mbl.is Norðmenn gagnrýna Kína harðlega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Noregur var líka aðili að yfirlýsingu ESB gangvart Tibet. sbr.

Declaration by the Presidency on behalf of the EU on the situation in Tibet

The EU is deeply concerned about the ongoing reports of unrest in Tibet and conveys its deepest sympathy and condolences to the families of the victims. The EU is urgently seeking further clarification of the situation from the Chinese Government.

The EU calls for restraint on all sides. We urge the Chinese authorities to refrain from using force against those involved in unrest and call on demonstrators to desist from violence.

The EU stresses the importance it attaches to the right of freedom of expression and peaceful protest. We call on Chinese authorities to respond to the demonstrations in accordance with internationally recognised democratic principles.

The EU firmly supports peaceful reconciliation between Chinese authorities and the Dalai Lama and his representatives. The EU urges the Chinese government to address the concerns of Tibetans with regard to issues of human rights.

The EU encourages both sides to enter into a substantive and constructive dialogue with a view to reach a sustainable solution acceptable to all that would fully respect the Tibetan culture, religion and identity.

The Candidate Countries Turkey, Croatia* and the former Yugoslav Republic of Macedonia*, the Countries of the Stabilisation and Association Process and potential candidates Bosnia and Herzegovina and Montenegro, and the EFTA countries Iceland, Liechtenstein and Norway, members of the European Economic Area, align themselves with this declaration.

Magnús Helgi Björgvinsson, 23.3.2008 kl. 18:18

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Já en Magnús. Norsk rödd hefur talað og mótmælt á NORSKUM FORSENDUM eins og SJÁLFSTÆÐRI ÞJÓÐ SÆMIR. Það hefur ÍSLAND
E K K I  GERT.  Sá er munurinn !

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 23.3.2008 kl. 18:24

3 identicon

Íslensk stjórnvöld þora ekki að mótmæla.  Solla vill stuðning Kínverja til að komast í Öryggisráðið, svo eru víst líka miklir viðskiptahagsmunir í húfi.  Samfylkinging þessi friðelskandi og rétthugsandi fylking skirrast við að mótmæla.  Svei þeim!!!

Gunnar Kristleifsson (IP-tala skráð) 23.3.2008 kl. 20:13

4 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Norðmenn voru að koma með þessa gagnrýni sína í dag eða gær. Held að menn ættu nú að gefa okkar ríkisstjórn tækifæri á að ræða málið. Menn skulu athuga að utanríkisráðherra ákveður svona ekki án þess að ríkisstjórn/Alþingi álykti um málið. Minni á þegar að Halldór og Davíð lýstu yfir stuðningi við innrás í Írak. VIð viljum væntanlega ekki að einn aðili sé að koma með yfirlýsingar um svo stórt mál án samráðs við aðra hér.

Magnús Helgi Björgvinsson, 23.3.2008 kl. 20:26

5 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Rétt Gunnar.  Ósjálfstæðið er ALGJÖRT. Bæði gagnvart Peking og
Brussel. Smá sýnishorn af undirlægjuhættinum og ósjálfstæðinu
ef Ingibjörg og ESB-sinnar takist að troða Íslandi inn í ESB.
Hvað er hægt að komast lengra í lágkúrunni en það að skila sér
bak við ESB-yfirlýsingu varðandi Tíbet?  Ingibjörg hefðu átt að láta
það vera. Hefði verið skömmunni skárra !

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 23.3.2008 kl. 20:30

6 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Norski ráðherra segir m.a.

- Det som har skjedd de siste dagene i Tibet er uakseptabelt, og det må formidles klart og tydelig. Det har vi gjort, både alene og sammen med andre, særlig med EU, sier Jonas Gahr Støre til NRK.

Þeim finnst það auðsjáanlega sterkt að mótmæla með öðrum.

Magnús Helgi Björgvinsson, 23.3.2008 kl. 20:33

7 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Magnús. Ekki vera ætíð að benda á hvað Halldór og Davíð gerðu.
Þeir gerðu herfileg mistök varðandi Írak.  Norðmenn hafa mótmælt
en Ísland ekki, það er málið. Bendi nú á Kosovo. Ingibjörg var ekki
lengi að samþykkja sjálfstæði þess. Þó býr þar engin sérstök þjóð
með sérstaka menningu og tungu eins og í Tíbet. En af því það var
gott veður í Brussel fyrir því að samþykkja Kosovo var Ingibjörg
eldskjót til.  Auðvitað blandast öryggisráðsruglið hér líka inn í.
Allt er til sölu fyrir það af því er virðist. Settar upp slæður og ég
veit ekki hvað til að þoknast sem flestum.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 23.3.2008 kl. 20:38

8 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Já en Magnús. En fannst samt ekki nógu sterkt að mótmæla með
öðrum því annars hefðu þeir ekki sjálfir farið að mótmæla eins
harkalega og þeir gera nú. Tek ofan fyrir krötunum í Noregi. Kratanir
á Íslandi eru hins vegar algjörar gúngur í þessu máli.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 23.3.2008 kl. 20:41

9 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Já þetta er ágæt spurning í þessu sambandi Guðmundur.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 24.3.2008 kl. 00:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband