Fallegt að bjarga heiminum, en...


   Já það getur verið göfugt og fallegt að reyna að bjarga
heiminum. Í gær undirrituðu Ingibjörg Sólrún Gísaldóttir
utanríkisráðherra og Jóhanna Sigurðardóttir félagsmála-
ráðherra samkomulag um móttöku flóttafólks á þessu og
á næsta ári að fjárhæð hátt í  200 milljónir króna. Fróðlegt
yrði að fá það upplýst hversu háar fjárhæðir Ingibjörg  Sól-
rún Gísladóttir er búin að lofa út og suður um heiminn í
allskyns þróunar- og fjárhagsaðstoð í öllu transsporti sínu
til að efla stuðnings við gæluverkefni ríkisstjórnarinnar um
að Ísland nái kjöri í Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna.

  Mikill efnahagsvandi steðjar nú að þjóðinni. Allt bendir til
að  þeir sem  veikastir eru fyrir, verði verst  úti. Allt útlit er
fyrir að allar þær umbætur sem Jóhanna Sigurðardóttir lof-
aði að gera  gagnvart öryrkjum og öldruðum  brenni upp á
báli óðaverðbólgunar, sem ríkisstjórn Jóhönnu og Ingibjarg-
ar hafa skapað að stórum hluta vegna aðgerðarleysis. Allar 
líkur benda því  til þess að kjör þeirra verst settu í þjóðfél-
aginu eigi eftir að stór versna á næstu misserum og mánuð-
um ef fram heldur sem horfir. Einmitt þeirra sem Jóhanna
þóttist svo bera  fyrir  brjósti  fyrir kosningar.  Á sama tíma
hefur bruðlið í utanríkisráðuneytinu aldrei verið eins míkið
og nú,  og úrbætur félagsmálaráðherra brenna upp í verð-
bólgubáli, og raunar langt um  betur.  

   Það  að  vilja  bjarga  heiminum  er jú  gott  mál. En meðan
vandamálin heimafyrir eru jafn mörg og raun ber vitni, og fara
stór vaxandi,  er betra fyrst, að líta sér ögn nær.

  Allt annað er hræsni ! 


mbl.is Samið um móttöku flóttamanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Víð skulum rétt vona Guðmundur,  að eldri borgarar, þeir sem heilsu hafa og reysta sér, noti daginn til að mótmæla meðferðinni.Því miður eru samtök eldri borgara að mér finnst býsna áhugalaus um að nota þær aðferðir sem sýnast einar eftir.Vonandi treysta sem flestir eldriborgara sér niður að stjórnarráðinu til að mótmæla.Mig vantar víst fjögur ár í að verða löggiltur, annars legði ég af stað með eggjapokann.

Sigurgeir Jónsson, 1.5.2008 kl. 11:11

2 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Held að það væri lítið um aðstoð í heiminum ef að allir hugsuðu svona. Það er nú ekki eins og fólk svelti hér á landi.

Minni t.d. á að vanskil við banka hafa aldrei verið lægri en nú. Og til að ná tökum á verðbólgu hefur einmitt verið beitt aðhaldsaðgerðum hjá ríkinu hingað til. Þ.e. ekki

  • skattalækkanir því þær auka einkaneyslu
  •  miklar hækkanir á launum því það eykur einkaneyslu
  • Peningum sem eytt er erlendis valda ekki þenslu hér.

Það eru fleiri en aldraðir sem finna fyrir verðbólgu. Það eru t.d. sérstaklega allir sem eru með há lán. Það bjargar kannski mörgum eldri borgurum að þeir eru ekki með há lán áhvílandi. Þeir bösluðu við að koma sér upp eignum þegar lítil lán var að fá og verðbólga át upp það litla sem þeir fengu lánað. Þannig að skuldirnar hurfu hjá þeim.

Þeir hinsvegar eiga oft ómælda varasjóði í eignum sínum sem þeir nota svo ekkert. Fólk verður að vera óhrætt við að losa sig við allt of stórar eignir eða þora að taka lán á þær til að losa um peninga. Það er allt of algengt hér að afkomendur sem sjálfir eru orðinir fullorðnir og löngu búin að koma sér fyrir eru að erfa milljónatugi eftir fólk sem lifað hefur við sút og seiru í stað þess að nota eignir sínar sér til hagsbóta. 

Magnús Helgi Björgvinsson, 1.5.2008 kl. 12:03

3 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Magnús. Það er öngþveiti og algjört stjórnleysi í efnahagsmálum, og
verðbólga ekki hærri í 20 ár. Ballið er bara rétt að byrja. Stelpan á
ballinu hefur á engan hátt staðið sig, og á því að fara heim.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 1.5.2008 kl. 13:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband