Er engin leið að samræma utanlandsferðirnar?


    Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra er nú í Bretlandi.
Furðu sætir, að nánast nokkrir dagar  eru  síðan Geir H. Haarde 
forsætisráðherra var þarna í heimsókn. Svo  er að  sjá að  báðir 
ráðheranir  hafi  hitt  nánst sömu ráðamennina í Bretlandi og rætt
sömu málefnin, ef kannski eru fráskilin Evrópumál, en ekki er á
dagskrá að Ísland sæki  um ESB aðild a.m.k á  þessu  kjörtímabili.

   Er til  of mikils mælst að ráðherrar samræmi aðeins sín ferðalög
þannig að  för ráðherra  fari ekki í kjölfar annars ráðherra með
nokkra daga eða vikna millibili, og það í nánast sömu erindagjörð-
um?

  Greinilegt er alla vega að formaður hérlendra jafnaðarmanna
hefur EKKERT tillit tekið til gagnrýni almennings á Íslandi á hin
mörgu og óþörfu ferðalög ráðherra að undanförnu.  Enda  virðst
sá formaður ekki lengur í sambandi við almúgann á Íslandi, og
fylgið  hrynur í samræmi við það ! 

  Nema að förin hafi aðallega verið farin til að storka forsætis-
ráðherra með því að ræða Evrópusambandsmálin við breska
ráðamenn...

  Þvílíkt RUGL!


mbl.is Utanríkisráðherra fundaði með breskum ráðamönnum í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Þetta gæti verið enn alvarlegra en þú hyggur, Guðmundur Jónas. Vera má, að það einmitt samræmi milli þessara heimsókna – og minnztu þess, hvernig fyrsta fréttatilkynning frá Downing-stræti 10 hljóðaði frá fundi Gordons Brown og Geirs Haarde. Ótrúlegt þótt mér þá, þrátt fyrir "reassuring leiðrétting" Geirs, að vanir menn þar hafi "misskilið" þannig – in explicit terms with no vague content – samræður, sem fram fóru á ensku, og Geir er alvanur að tala ensku. Nei, það var eitthvert pickles í þessu, og heimsókn Ingibjargar kann að standa í sambandi við það. Hvað vera kann á seyði, voga ég mér ekki að skrifa um hér, en hef mínar hugmyndir og lízt ekki á. – Með heilsan og góðum óskum,

Jón Valur Jensson, 13.5.2008 kl. 01:01

2 identicon

Heill og sæll; Guðmundur Jónas, og aðrir skrifarar !

Ekki að ófyrirsynju; að grunsemdir hafi vaknað, með Jóni Val, í þessum efnum. Eitthvert ráðabruggg er vafalaust, í gangi, millum Lundúna og Reykjavíkur, sem leynt á að fara, greinilega.

Með beztu kveðjum, sem fyrr / Óskar Helgi Helgason  

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 13.5.2008 kl. 01:10

3 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Takk fyrir Jón Valur og Óskar. Já alla vega eru þessar ferðir forsætis-
og utanríkisráðherra til Lundúna með svona skömmu millibila harla
athyglisverðar, svo ekki sé meira sagt. Alla vega ekki horft í vasa
okkar skattgreiðanda!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 13.5.2008 kl. 01:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband