Allt verður Framsókn að falli !


   Allt verður Framsókn að falli. Nú reynir þingmaður
Framsóknarflokksins, Siv Friðleifsdóttir að  efast  um
framgöngu fjármálaráðherra gagnvart brezkum yfir-
völdum útaf Icesave og þá væntanlega skilning á að
brezk stjórnvöld beittu Íslandi  hryðjuverkalögum.
Hér kveður við allt annar tónn hjá Framsókn, því Guðni
Ágústsson fyrrv. formaður Framsóknar gékk manna
fremstur í gagnrýni á yfirgang Breta og krafðist þess
að Ísland sliti stjórnmálasambandi við þá vegna fram-
komu þeirra.

  Já svo sannarlega kveður nú við annan tón. Enda
Framsókn komin undir stjórn Evrópusinna, og virðist
því tilbúin að beygja sig í duftið. Það er ömurlegt að
horfa upp á hvernig komið er fyrir elsta stjórnmála-
flokki landsins. Jafnvel tilbúinn að taka upp hanskann
fyrir erlenda valdníðslu gagnvart íslenzkri þjóð. Eða
alla vega að tortyggja mástað Íslands gagnvart
slíkri valdníðslu.

  Ekki að furða þótt fylgið hrynji af Framsókn í dag!

  Þessum Framsóknarflokki er ekki lengur viðbjargandi!

  
mbl.is Skilur að Bretar efist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Er ekki eðlilegt að þingmenn beri fram spurningar á Alþingi?

Er ekki eðlilegt að ráðherrar sýni þingmönnum þá virðingu að svara spurningum þeirra málefnalega?

Má ekki gagnrýna gerðir ráðherra eða annara ráðamanna án þess að fá  á sig föðurlandssvikara stimil?

agla (IP-tala skráð) 9.12.2008 kl. 18:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband