Slítum stjórnmálasambandi við Ísrael !


   Nú er manni   gjörsamlega misboðið stríðsglæpir síonistanna
á Gaza-svæðinu sem stigmagnast dag frá degi. Hryllingurinn er
ólýsanlegur. Þótt hin öfgafullu Hamas-samtök eigi þarna mikla
sök, réttlætir það engan veginn þau voðaverk sem morðtól
Ísraela valda saklausum borgurum á Gaza, mest börnum,
konum og gamalmennum.  Gaza er sankallað helvíti á jörð
í dag! Það helvíti VERÐUR að linna, og það strax!

  Ísland á því  sem frjáls og friðelskandi þjóð að mótmæla
harðlega stríðsglæpum síonista og slíta öllu stjórnmála-
sambandi við þetta hryðjuverkaríki. Slík stjórnmálaslit
myndu vekja heimsathygli, og gefa öðrum friðelskandi
þjóðum gott fordæmi. Þá eiga Íslendingar að seta  á
viðskiptabann á Ísrael og hveta aðrar þjóðir að gera
það sama.

  Það er einstakt alla vega nú á dögum að öflugustu
drápstækjum sem völ er á í dag séu beitt með jafn
skefjalausri grimd gegn óbreyttum og óvopnuðum
borgurum  og þarna á þessu litla Gazasvæði, einu
fjölmennasta bletti á jarðarkúlunni.

  Manni er gjörsamlega misboðið þessi hryllingur!

  Þessir stríðsglæpir síonista! 

   
mbl.is Loftárásir á Rafah
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Glæpamenn upp til hópa

Jón Ingi (IP-tala skráð) 14.1.2009 kl. 07:45

2 identicon

Já slit við Ísraelsmenn eru ákaflega eðlileg í ljósi þessara voðaverka.

Nú reynir enn og aftur á ríkisstjórnina, sem með aðgerðaleysi sínu er að samþykkja þetta til lengri tíma.

Hákon Jóhannesson (IP-tala skráð) 14.1.2009 kl. 08:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband