Borgarahreyfingin skilar AUÐU í Evrópumálum !


    Það er alveg með eindæmum að nýtt stjórnmálaafl skuli bjóða
sig fram fyrir þjóðina með AUTT spjald í Evrópumálum. Einu stærsta
pólitíska  hitamáli  a.m.k  frá  lýðveldisstofnun. Því  þarna er  hvorki
meir né minna tekist á um sjálfan GRUNNINN að enduruppbyggingu
íslenzks samfélags. Grunn, sem  byggist á  sjálfstæði  og  fullveldi Ís-
lands, frumforsendu fyrir endurreisn efnahags þjóðarinnar og lýðræðis,
eða innilokunar innan miðstýringarkerfis ríkjabandalags þar sem allt
frumkvæði og sjálfbjargarviðleitni þjóða er sem mest höfð í fjötrum,
sbr. Evrópusambandið.

   L-listinn er eina framboðið sem vill standa vörð um hinn mikilvæga
grunn, sjálfstæðið og  fullveldið. Því FULLVELDI og full yfirráð yfir auð-
lindum þjóðarinnar er lykillinn að því að vel takist til í þeirri endurreisn,
sem verður verkefni íslenzku þjóðarinnar næsta áratuginn.  Mikill mun-
ur virðist því vera á þessum nýju framboðum, L- og O- lista.

  Að lokum eru allir, þjóðfrelsis, fullveldis,- og sjálfstæðissinnar hvattir
til að koma til liðs við framboð L-listans í komandi kosningum.

  Fullveldi Íslands er í húfi !!!

  Áfram Ísland!!!  Íslandi allt!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Davíð Löve.

Fullveldi og full yfirráð yfir auðlindum. Uh, hvaða "þjóð" hefur haft yfirráð yfir fiskiveiðum hér t.d.? Fáeinir sérvaldir einkavinir spillinga aflana hafa orðið forríkir á því að leika sér með þessa auðlind. Búnir að veðsetja til margra ára fiskistofna "okkar". Hvaða þjóðernissinni þykist þú vera? Ef þú vilt ræða við alvöru þjóðernissinna skaltu mæta mér. Ef ég léti aðeins brot af mínum skoðunum heyrast hér á þessum síðum yrði lokað snarlega á mig. Bölvaður undirlægjuháttur við hin ýmsu öfl og trúarbrögð eru þess valdandi að menn neyðast til að sitja skoðunum sínum.

Davíð Löve., 11.3.2009 kl. 01:48

2 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Davið.  Guðmundur segir ekki í þessari færslu að hann sé þjóðernissinni.  Hann minnist hinsvegar á þjóðfrelsissinna.

Enda er langt á milli L-listafólks og þá sem kalla sig (jafnvel ranglega) þjóðernissinna.  Engar öfgar er einn af rauðu þráðunum í framboðinu.

http://l-listinn.blog.is/blog/l-listinn/about/

Axel Þór Kolbeinsson, 11.3.2009 kl. 08:50

3 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Davið. Axel Þór hefur svarað  vel fyrir mig hér.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 11.3.2009 kl. 09:46

4 identicon

Hef sett þetta inn annars staðar líka.

L flokkurinn er alls ekki sá eini sem er á móti aðild að ESB

Þetta er tekið úr stefnuskrá annarrar hreyfingar sem býður fram til Alþingis

Samskipti við Evrópusambandið ber að þróa í átt til samninga um viðskipti og samvinnu, m.a. á sviði menntamála, vinnumarkaðsmála og umhverfismála.

(Þarna er fjallað um samskipti við aðrar þjóðir)

Hugsanlegur ávinningur af aðild Íslands að Evrópusambandinu réttlætir ekki frekara framsal á ákvörðunarrétti um málefni íslensku þjóðarinnar og er aðild að Evrópusambandinu því hafnað.

Fer ekki milli mál að einhver annar en L flokkurinn er á móti ESB

Hagsmunir fjármagns og heimsfyrirtækja eru í alltof ríkum mæli drifkraftar Evrópusamrunans, miðstýring, skrifræði og skortur á lýðræði einkennir stofnanir þess um of

Aðild að ESB hafnað og engin tæpitunga þar

Það þarf ekki annað en lesa stefnuskrár annarra framboða til að sjá að það er ekkert nýtt sem fram er fært af L-flokknum.  

Jón Óskarsson (IP-tala skráð) 11.3.2009 kl. 19:56

5 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Jón. Veit ekki um hvaða flokk þú ert að tala. En sé það VGhefur sá flokkur
heldur betur breytt um stefnu og gefur nú grænt ljós á aðildarviðræður, þá
umsókn að  ESB og styður  breytingu á stjórnarskránni til að auððvelda
ESB-ferlið.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 11.3.2009 kl. 20:09

6 identicon

.

Verða ekki stenuskrár flokkanna að standa uns landsfundir hafa samþykkt eitthvað annað. 

Það er athyglsivert að þú skulir ekki hafa lesið stefnuskrá flokkanna um ESB. 

Mér finnst þú fullyrða meira en efni standa til.

Jón Óskarsson (IP-tala skráð) 11.3.2009 kl. 20:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband