Vinstri grænir ESB-flokkur !


    Ef Vinstri grænir halda að þeir komist upp með þann skollaleik, að
ESB-umsókn sé þeim óviðkomandi sitjandi við ríkisstjórnarborðið, þar
sem slík umsókn er sett í framkvæmdaferli, er það mikill misskilningur.
Því umsókn að ESB verður  alltaf  að vera á forræði ríkisstjórnarinnar.
Því  það yrði að vera ríkisstjórnin sem slík sem FORMLEGA verður að
sækja um ESB-aðild, og koma  umsókninni  til Brussel. eftir að meiri-
hluti Alþingis hefur samþykkt það. Öll samningsmarkið yrðu að vera
á hendi ríkisstjórnarinnar og viðkomandi fagráðuneyta hennar. - Þess
vegna VERÐA Vinstri grænir beinir aðilar að ESB-umsókn, og bera því
FULLA ábyrgð á henni, ef þeir sitja í  þeirri ríkisstjórn sem sækir um
aðildina. Það er ekkert flóknara en það.

   Fjallabaksleið Vinstri grænna gengur því alls ekki upp. Annað hvort
samþykkja menn ESB-aðild eða ekki.  Annað hvort berjast menn gegn
því sem þeir eru á móti, eða ekki. - Það liggur alveg ljóst fyrir!
mbl.is ESB-málið til Alþingis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnlaugur B Ólafsson

Gert er ráð fyrir að Alþingi ákveði hvort farið verði í aðildarviðræður. Hugsanlegt er að finna aftur Þorgeir Ljósvetningagoða og láta hann undir teppi næturlangt en við sólaruppkomu myndi hann kveða upp úr um hvort við tökum upp samstarf um hinn nýja sið eða keyrum skútuna áfram með þjóðrembuna sem helsta drifkraft. Við séum stærst , mest og engum háð.

Gunnlaugur B Ólafsson, 5.5.2009 kl. 13:12

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Það er aumkunarvert Gunnlaugur að horfa upp á hina vinstrisinnuðu
minnimáttakennd. Kommanir í gamla daga ákölluðu Sovét-Ísland
hvenær kemur þú, en nú er það hjá ykkur and-þjóðlegu vintsrimönnum
ESB Ísland hvenær kemur þú.  Getið ALDREI hugsað ykkur að standa í
lappirnar sjálfstætt og hafa sjálfsvirðinguna og sjálfstraustið í lagi.
Skyldi það hafa verið tilviljun að stór hluti krata voru tvístígandi í lýðveldis-
tökunni 1944 og börðust ætið gegn útfærslu landhelginnar, og múlbundu
þjóðina að færa út landhelgina eftir 1961 nema með samþykkis Alþjóða-
dómsstólsins í Haag? Og nú farið þið fremstir fyrir því að tala kjark úr
þjóðinni þegar síst skyldi. Því miður gerði Geir H Haarde þau alvarlegu
misstök að koma ykkur til valda. Vonandi og hef þá bjargföstu trú að
til komi alvöru stjórnmálaafl sem ýtið ykkur burt úr íslenzkum stjórnmálum
með illu eða góðu til frambúðar. - Því allt er réttlættanlegt í dag til að koma svona landssöluliði eins og ykkur  fyrir kattarnef.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 5.5.2009 kl. 14:51

3 Smámynd: Gunnlaugur B Ólafsson

Þú ert öflugur Guðmundur! Mér líst ekki á þetta tal þitt um "kattarnef". Á ég að verða hræddur? Mannréttindi þín og mín verða allavega vel tryggð í evr´psku samstarfi. Mbk, G

Gunnlaugur B Ólafsson, 5.5.2009 kl. 15:02

4 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Jú Gunnlaugur. Þið eigið eftir að standa frammi fyrir MJÖG harðri andstöðu og baráttu allra þjóðlegra afla gegn ásetningi ykkar að koma hinni fámennri
íslenzkri þjóð undir ERLEND YFIRRÁÐ. Og að þið skulið VOGA ykkur að
velja þann tíma þegar samningsstaða Íslands er nánast enginn út af
efnahagshruninu. Liggjandi maður hefur aldrei neina samningsstoðu.
Mannréttindi og réttur kjósenda innan ESB til að hafa áhrif á GRUNNSTOÐIR
ESB og stjórnkerfi eru fótumtroðnar. Bara ein þjóð fékk td að kjósa um
Lissabonsáttmálann í fyrra., Írar. En þar sem hún kaus vitlaust að  álíti
hiðs ÓLÝÐRÆÐISLEGA miðstýringaaðals í Brussel skal henni nauðgað til
að kjósa aftur í haust.  Þannig er nú þetta lýðræði og mannréttinda-
ástand í ESB sem þú vísar til.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 5.5.2009 kl. 15:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband