Borgarahreyfingin verkfæri ríkisstjórnarinnar


    Borgarahreyfingin hefur afhjúpað sig sem máttlaust verkfæri
ríkisstjórnarinnar. -  Styður stórgallaða og and-þjóðlega  tillögu
vinstristjórnar Jóhönnu Sigurðardóttir um aðild að ESB, og auk
þess nefndarkosningar á Alþingi með vinstriflokkunum.  Nú í
upphafi þingstarfa. Smjörþefur af því sem koma skal.

   Í raun er nafn Borgarahreyfingarinnar öfugmæli. Því  innan
hennar eru vinstrisinnaðir róttæklingar  megin uppistaðan. Þrír
af fjórum þingmönnum hennar ætla svo að vanvirða þingsetn-
inguna með því að spóka sig á Austurvelli meðan kirkjuleg at-
höfn fer fram í tengslum við hana.  Ábyggilega  með einhverjum
róttæklingum úr Vinstri grænum.

   Vinstra Tríóið fullkomnað!

mbl.is Tillaga að fyrstu aðildarskrefunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhannes Birgir Jensson

Það er risastór bjálki í auganu á þér, sýnist hann vera samgróinn þér því miður.

Jóhannes Birgir Jensson, 15.5.2009 kl. 15:19

2 identicon

Heill og sæll; Guðmundur Jónas, æfinlega !

Jóhannes Birgir !

Ætli risastóri bjálkinn; kunni ekki, að tilheyra þínu auga, fremur en Guðmundar ?

Hræsnarar; sem þú, eru lítt áhugaverðir, til skynsamlegrar viðræðu, Jóhannes - líkast til; mætti ætla, að þú værir einn, fjölmargra taglhnýtinga fordæðunnar, Jóhönnu Sigurðardóttur.

Með beztu kveðjum /

Óskar Helgi Helgason 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 15.5.2009 kl. 20:00

3 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Takk fyrir Óskar Helgi...

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 15.5.2009 kl. 20:36

4 Smámynd: Jón Valur Jensson

Mér sýnist Óskar Helgi hafa fundið sína norn í málinu!

En í alvöru talað er þetta tímabær pistill hjá þér, Guðm. Jónas. Að vísu finnst mér ekki hægt að ætlast til þess af þingmönnum, að þeir mæti allir í Dómkirkjuna, en það er samt sérstakt að sjá, að ekki virðist neinn áhugi á kristindómi – né að þiggja þaðan neinar blessunarbænir – hjá heilum flokki ... og heldur ekki hjá Trjójuhesti Vinstri grænna, fr. L.M.

Jón Valur Jensson, 15.5.2009 kl. 20:45

5 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Takk fyrir Jón Valur. Af þvísu kemur Borgarahreyfingin ekki svo á óvart
þegar horft er til bakgrunnar hennar og hverjir standa að henni. Ekki
frekar en hvernig VG létu svínbeygja sig í Evrópumálum í ljósi þess hver
bakgrunnur þeirra líka er.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 15.5.2009 kl. 20:54

6 identicon

Ég ættla kanski ekki að vera eins harðorður eins og hann Jóhannes. En hann hefur kanski eitthvað til síns máls. 

Mér fynst að mörgu leyti eðlilegt að með stærri mál að þingið megi komast að niðurstöðu en ekki að einn flokkur "nauðgi" sínum málum í gegn (sem mér hefur oft fundist með d listan). Þetta er mál af þeirri stærðargráðu að mér fynst bara eðlilegt að sem flestir geti haft áhrif á það.

Ég er frekar á því að við eigum ekki að fara inn. Hins vegar fynst mér eðlilegt að meirihlutin ráði og ef við finnumst rangt að fara inn að þá verðum við bara að koma þeim rökum á framfæri og reina að hafa áhrif. Mér fynst allt í lagi að 2 flokkar í stjórn komi sér saman um að vera ósammála og láta merihlutan þingmanna komast að niðurstöðu.

Ef að Samfylkingin hefði nauðgað þessu máli í gegn að þá hefðu allir talað um V.G. sem svikara og öfugt svo þetta er góð niðurstaða.

Annað er með  kirkjulega þingsetninguna. Ég vona að það sé trúfrelsi á Íslandi og þeir sem af einhverjum ástæðum vilja ekki vera við kristna athöfn sé ekki neiddir til þess. 

Ég vona (og trúi) að fólk geti gert góða hluti þó það sé ekki endilega skráð í þjóðkirkjuna. Þegar ég var lítill þá man ég alltaf eftir einni dæmisögunni sem manni var kend og það var um miskunsama samverjan. Sú saga er staðfesting mín á að það sé til fullt af fólki sem mun "verða hólpið" ekki vegna trúar sinnar heldur gjörða og ég vona að hægt sé að kenna fólki að elska náungan þrátt fyrir mismunandi trúarbrögð. Mér fynst mikið vanta af því í heiminum.

Kveðja Ka 

Ka (IP-tala skráð) 18.5.2009 kl. 08:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband