Ríkisstjórn þjóðsvika fari frá !


   Stórsprengja í icesave. Seðlabanki Íslands gagnrýnir
icesave-samningana HARÐLEGA. Stórgallðir samingar
og þjóðhættulegir gangi þeir fram, sbr RÚV.is. Fjöldi
gagna í icesave-málinu enn óbirtir segir fyrrverandi
seðlabankastjóri á Skjá einum í kvöld.  Forsætisráð-
herra setur VG upp við vegg, og hótar stjórnarslitum
falli aðildartillagan að ESB. Og VG berir að mestu kos-
ningasvikum sögunar samþykki þeir umsókn að ESB,
sem allt bendir til að þeir geri, enda forverar hérlendra
kommúnista.

   Vinstristjórn Jóhönnu Sigurðardóttir Og Steingríms J
Sigfússonar  er mesta þjóðsvikastjórn sem sögur fara
af. Hana VERÐUR að STÖÐVA, og hrekja frá völdum hvað
sem það kostar. Íslenzkir þjóðarhagsmunir og þjóðar-
tilvera Íslendinga er í veði!

  Afgreiðsla á Icesave  hinum illræmda Versalasamningi
í tíunda veldi ásamt landráðaáformum um innlimun Íslands
í ANNAÐ ERLENT RÍKI (ESB) ber nánast upp á sömu dag-
anna. - Offorsinn í atlögunni að fullveldi  Íslands   og
efnahgslegu sjálfstæði þess af and-þjóðlegum vinstri-
öflum er slíkur, að ÖLL ÞJÓÐHOLL ÖFL VERÐA ÞEGAR  Í 
STAРAÐ SNÚAST TIL VARNAR AF ÞEIRRI H Ö R K U  SEM
ÞARF!!!

   ÞJÓÐSVIKAMYLLA kommúnista og krata er afhjúpuð.!!!!!!

   Þjóðlegt pólitískt hreinsunarátak er svarið!!! 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heill og sæll; Guðmundur Jónas, æfinlega !

Mæl; manna réttast og sannast.

Hvar; fjölskyldur, sem fyrirtæki landsins, halda áfram að engjast, undan óstjórn og vaxandi skattpíningu - beinni og óbeinni; þá halda Quislingar þeirra Jóhönnu áfram, hildarleiknum, gegn okkur þjóðfrelsis sinnum, og landsmönnum öllum.

Höfuð verkefni okkar er; að koma þessum ESB drauga sveim, frá völdum, hið allra fyrsta.

Með beztu kveðjum; sem áður og jafnan, úr Árnesþingi /

Óskar Helgi Helgason 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 14.7.2009 kl. 01:26

2 Smámynd: Elle_

Sælir.  Það er nú ekki nokkur vafi að VG er stillt upp við vegg af Evrópu-flokknum með hótunum.  Og getur ekki kallast lýðræði.

Elle_, 14.7.2009 kl. 12:17

3 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Já Örn gerum það! Og látum Davíð um að velja þá sem fá bankana að gjöf aftur. Leyfum þeim að sólunda aftur þeim eignum sem hugsanlega má finna þar. Reysum við draum Davíðs um að Ísland verði ein af fjármálamiðstöðvum heimsins eða aflandseyja.

Held reynar að menn ættu að muna að Davíð var Seðlabankastjóri og ekki beint hægt að segja að honum hafi höndlast vel að semja við erlenda aðila t.d. að veita okkur lán. Eða að fylgjst með bönkunum okkar eða gera viðeigandi ráðstarfanir til að hamla vexti þeirra erlendis í útibúum. Eða koma okkur upp gjaldeyrisvarsjóð. Hann lánaði hér hægri og vinstri út á veð sem voru ekki nokkurs viriði eins í afleiddum viðskiptum.

Þessi maður þykist svo geta samið eða komið í veg fyrir að við borgum.

Það er gott að einhverjir trúa honum! EKKI GERI ÉG ÞAÐ

Magnús Helgi Björgvinsson, 14.7.2009 kl. 14:23

4 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Hvað sem segja má um Davíð Oddsson þá er hann ekki ÞJÓÐSVIKARI er
hyggst selja fullveldi og sjálfstæði þjóðarinnar og auðlindir hennar til
erlendra aðila eins og vinstristjórn Jóhönnu Sig hyggst gera.
Hafi bankasalann verið mistök sem hún var í ljósi STÓRGALLAÐRA
regluverka ESB, þá kemst hún ekki í hálfkvíst við þjóðarsvikin að ganga
í ESB.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 14.7.2009 kl. 20:28

5 Smámynd: Loftur Altice Þorsteinsson

Ég tek undir orð þín Guðmundur varðandi Davíð. Allir gera mistök og Davíð líka, en ef það sem hann hefur gert rétt er vegið á móti mistökunum, er hann vel í plús.

Hins vegar er ég ekki sammála um að "regluverk ESB" sé gallað. Þvert á móti er því hagað á þann eina hátt sem það getur verið. Regluverk ESB, það er að segja Tilskipun 94/19/EB, fríar okkur algjörlega frá greiðslu á skuldum óreiðumanna. Þessu hef ég gert nákvæm skil í síðasta bloggi mínu.

Að auki ef skýrslur Seðlabanka Evrópu eru lesnar, kemur hið sama í ljós. Innlána-trygginga-kerfi ESB eru nákvæmleg eins og önnur eðlileg trygginga-kerfi. Settur er á fót trygginga-sjóður og það er trygginga-sjóðurinn einn sem ber ábyrgð á tryggingunum.

Sams konar kerfi þarf á koma á fót fyrir bankana og leggja niður allt tal um lánveitanda til þrautavara. Út á þá dellu að ætla Seðlabankanum að vera lánveitandi til þrautavara, var okkur sendur reikningur upp á 350 milljarða. Svona baktrygging er glæpsamleg.

Loftur Altice Þorsteinsson, 14.7.2009 kl. 21:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband