Sjálfstæðisflokkurinn kýs að gerast Icesaveflokkur !


    Með því að flokksforysta Sjálfstæðisflokksins  kýs  nú að
styðja icesavesmninga vinstristjórnar krata og komma, kýs
Sjálfstæðisflokkurinn  þar  með að  gerast  Icesaveflokkur,
eins og Samfylking, Vinstri græn og Borgarahreyfing. Þar
með hefur Sjálfstæðisflokkurinn unnið það afrek, að skera
vinstristjórnina úr icesave-snörunni, og bjargað þannig
pólitísku lífi hennar, til  stórskaða  fyrir  land og þjóð. Ekki
í fyrsta skiptið sem flokksforysta Sjálfstæðisflokksins bjarg-
ar pólitísku lífi kratanna. Veitti þeim ráðherrastóla á silfur-
fati fyrir nokkrum misserum. Uppskeran? ICESAVE, -  ESB-
UMSÓKN og nú HREINRÆKTUÐ AND-ÞJÓÐLEG VINSTRI-
STJÓRN!  Vert er að óska flokksforystu Sjálfstæðisflokksins
innilega til hamingju, með afrek sín, eða hitt þó heldur.

   Eftir situr TUGÞÚSUNDIR kjósenda vonsviknir. Kjósend-
ur ÞJÓÐLEGRA BORGARALEGRA HUGSJÓNA. Hafi Sjálfstæðis-
flokkurinn ætlað að vera málsvari þeirra, HEFUR ÞAР NÚ
GJÖRSAMLEGA MISTEKIST.  Aulaháttur flokksforystunar
er ALGJÖR. Bæði fyrrverandi og núverandi. Og afleiðingin
er sú að á hinum þjóðlega borgaralega kannti íslenzkra
stjórnmála, RÍKIR NÚ ALGJÖRT PÓLITÍSKT TÓMARÚM. Sem
er STÓRHÆTTULEGT fyrir fullveldi og sjálfstæði Íslands,
og þjóðarhagsmuni Íslendinga, eins og komið er á daginn -
Að það skuli vera við völd HREINRÆKTUÐ VINSTRISTJÓRN
kommúnista og krata á Íslandi í byrjun 21 aldar er með
hreinum ÓLÍKINDUM. Í fyrsta skipti í sögunni. Meiriháttar
SKANDALL!  ALLT vegna ótrúlegs aulaháttar og aumingja-
skapar flokksforystu Sjálfstæðisflokksins á síðustu misserum
og árum.

   Hér verður að gerast skjót breyting á. Fram þarf að koma
ÖFLUGUR og TRÚVERÐUGUR BORGARALEGUR STJÓRNMÁLA-
FLOKKUR á  ÞJÓÐLEGUM   GRUNDVELLI!  Allir  ÞJÓÐHOLLIR
Íslendingar þurfa því  nú að taka til hendi og hefja þá vinnu.
Þjóðarhagsmunir eru í veði!!!

    www.zumann.blog.is


    
mbl.is Össur: Tillögurnar eru innan marka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: hilmar  jónsson

Já rétt hjá þér, Sjálfstæðisflokkurinn er vel að nafnbótinni Icesaveflokkurinn kominn, enda hugmyndasmiður þess klúðurs.

hilmar jónsson, 17.8.2009 kl. 00:29

2 Smámynd: Ísleifur Gíslason

Góður pistill og sannur Guðmundur.

Ísleifur Gíslason, 17.8.2009 kl. 00:57

3 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Takk fyrir Hilmar og Íslefur. Eigum félagi Ísleifur vonandi eftir að hittast og talað betur saman um okkar framtíðarflokk!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 17.8.2009 kl. 01:16

4 identicon

Heill og sæll; Guðmundur Jónas, sem og aðrir, hér á síðu !

Sjálfstæðisflokkurinn; er ekki tvöfaldur , í roði - miklu fremur, hundrað faldur, í sviksemi sinni, allri, sem vænta mátti, af þessu pestar bæli frjálshyggju Kapítalistanna, svo sem.

Með beztu kveðjum; sem jafnan /

Óskar Helgi Helgason

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 17.8.2009 kl. 01:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband