Ha? ESB- og evruríkið Grikkland á hausnum?


   Getur þetta verið? Er þetta ekki einhver meiriháttar
allsherjar misskilningur? Að Grikkland  sé á hausnum!
Sjálft ESB-ríkið Grikkland til fjölda ára? Sjálft EVRU-ríkið
Grikkland frá árinu 2001? Já og meir að segja með sína
sósíaldemókratisku ríkisstjórn? Að þrátt fyrir ALLT ALLT
ÞETTA  skuli Grikkland  vera  á  barmi gjaldþrots! Ríkis-
kassinn stórskuldugur, galtómur, og skuldaálagið eftir
því. Og þrátt fyrir ekkert allsherjar bankahrun eins og á
Íslandi. Og svo er sagt að gengi evrunar sé í engu sam-
ræmi við efnahagsástandið, og að  útflutningur og sam-
keppnisstaða Grikklands hrynur. Fátækt  og  eymd, sbr.
átökin  í Aþenu í gær.  Atvinnuleysið stórkostlegt  -  Og
enga hjálp að fá frá Brussel? Meir að  segja  hinn marg-
rómaði  B A K H J A L L,  Evrópski Seðlabankinn heldur að
sér höndum. Hefur fastbundið fyrir gríska augað sitt. Já
og þrátt fyrir Lissabonsáttmálann. Hina Evrópsku einingu,
samhjálp og samkennd.

    Er mér ekki bara að dreyma ESB-sinnar? Hlýtur það
bara ekki að vera! Getur ekki annað verið!

    Eða hvað ?

    ÁFRAM ÍSLAND! EKKI ESB né SCHENGEN! EKKERT ICESAVE né AGS!

    www.fullveldi.is
    www.frjalstisland.is
mbl.is Átök í Aþenu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Góð grein Guðmundur.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 7.12.2009 kl. 01:15

2 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Bíddu Guðmundur! Ert þú að bera Grikkland saman við okkur? Minni þig á að þar hefur verið erfitt efnahagslíf frá upphafi. Enda sýnir þetta þér að ESB er ekki 1 ríki heldur samband ríkja þar sem efnahagsstaðan er mjög mismunandi. Bendi þér líka á að almenningur í Grikklandi hefur ekki mátt þola að gengið falli um 100%. Menn er að tala um að óstjórn í efnahagsmálum, dýrir Olynpíuleikar og fleira sé að valda Grikkjum erfiðleikum nú.

Held að Grikkland frari nú ekki hausinn Guðmundur.

Svo eru þessi átök meira og minna skipulögð af stjórnleysingjum og fréttin fjallar ekkert um þetta.

Magnús Helgi Björgvinsson, 7.12.2009 kl. 02:39

3 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Magnús minn. Reyndu ekki lengur að verja ESB. Fjölmörg ESB ríki eru
á hvínandi kúbubnni, einmitt VEGNA ESB-aðildar og evru.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 7.12.2009 kl. 12:38

4 Smámynd: Sæmundur G. Halldórsson

Grikklandi var smyglað inn á evrusvæðið með upplognum hagtölum (e.: creative accounting). Þetta kom í ljós við stjórnarskipti þegar nýkjörin ríkisstjórn í Aþenu þurfti að hreinsa til eftir fyrirrennara sína (minnir þetta á eitthvað?). Öll þau lönd sem nú hafa tekið upp evruna sem löglegan gjaldmiðil hafa þurft að leggja geysimikið á sig við að taka til í hagstjórn áður en þeim var leyft að taka upp þennan sameiginlega gjaldmiðil. Þetta gildir líka um lönd eins og Frakkland. Belgíu og Ítalíu var hleypt inn þrátt fyrir að skuldir ríkisins færu vel yfir 100% af landsframleiðslu (hámark samkvæmt Maastricht eru 60%). Löndin eru jafn mismunandi og þau eru mörg en ef þau ætla að innleiða evruna verða þau að taka sig á ef ekki á illa að fara. Þetta gildir auðvitað líka um Ísland ef landið stefnir að upptöku evru. Það hefur enginn Evrópusinni haldið öðru fram.

Sæmundur G. Halldórsson , 9.12.2009 kl. 01:33

5 Smámynd: Snorri Hansson

Þeirra aðal glæpur var að gefa upp veltuna í vændis”iðnaðinum”. Það olli því að staðan virtist mikið betri en hún átti að vera. Kvikindin !

Snorri Hansson, 10.12.2009 kl. 22:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband