Verður þá höfðað skaðabótamál á Jóhönnu og Steingrím ?


    Gott mál. Fjármálaráðuneytið metur hvort unnt verði að hefja
og reka skaðabótamáll á hendur þeim  sem valdið hafa ríkinu 
og ALMENNINGI fjárhagslegu tjóni með athöfnum sínum í að-
draganda bankahrunsins. En þar hlýtur IceSave-glæpurinn
að verða efstur á blaði. Því vaknar sú spurning. Ef Jóhönnu
Sigurðardóttir forsætisráðherra  og Steingrími J Sigfússyni
fjármálaráðherra tekst að kúga gegnum Alþingi ríkisábyrgð
á Icesave-þjóðsvikasamningnum, án þjóðréttarlegra kvaða
þar um, með stórkostlegu fjárhagslegu tjóni fyrir ALMENNING
á Íslandi og íslenzka ríkið um ófyrirséða  framtíð, myndast  þá 
ekki sjálfkrafa skaðabótaskylda á þá sem  að  slíkum  þjóð-
svikagjörningi standa? Á sjálfa  Jóhönnu  og  Steingrím  fyrst 
og  fremst?

  ÁFRAM ÍSLAND! EKKI ESB né SCHENGEN! EKKERT ICESAVE né AGS!

  www.fulldalda.is
  www.frjalstisland.is
mbl.is Skaðabótamál ríkisins til skoðunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Bragi Sigurðsson

Þegar þú talar um "Icesave-glæpinn" áttu þá við stofnun þessarra reikninga eða aðgerðir núverandi ríkisstjórnar?

Jón Bragi Sigurðsson, 12.12.2009 kl. 18:24

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Hvort tveggja að sjálfsögðu Jón. Geri  engann mun á glæpum þeirra sem
stofnuðu til IceSavs eða þeirra sem ætla að kúga saklausa þjóðina til
að greiða IveSave skuldaklafann án dóms og laga!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 12.12.2009 kl. 20:20

3 Smámynd: Jón Bragi Sigurðsson

Þá erum við sammála

Jón Bragi Sigurðsson, 12.12.2009 kl. 21:36

4 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Rakst á þetta blogg hér á Moggablogginu. Þetta eru svona svipuð rök og maður les  hér:

Ef skilningur þeirra sem telja okkur ekki bera neina ábyrgð er réttur, þá hefðu íslensku bankarnir kannski átt að vera miklu duglegri við að plata fólk til að leggja sparnaðinn í útibú íslenskra banka og kannski hefði bankakerfið okkar bjargast ef svona ICESAVE reikningar hefðu slegið í gegn í allri Evrópu. Reyndar þótti ICESAVE lengi vera alger snilld þangað til einhverjum datt í hug að við þyrftum að borga aumingjans fólkinu til baka sem var svo vitlaust að treysta íslenskum banka til að ávaxta peningana sína. ICESAVE átti aldrei að vera nein góðgerðastofnun því til þess var fyrst og fremst stofnað til að fjármagna Landsbankann þegar harðna tók í ári, en dugði því miður ekki til.

Í framhaldi af þessu vil ég leggja til að ef svo fer að við berum enga ábyrgð á ICESAVE þá ættum við að einkavæða Landsbankann hið snarasta, skipta kannski um nafn á honum og fá almenning erlendis til að leggja aleigu sína í útibú bankans með loforði um metávöxtun. Ef bankinn fer yfirum þurfum við engar áhyggjur að hafa, því tjónið verður ekki okkar. Við getum kannski ekki leikið sama leikinn aftur í Bretlandi eða Hollandi, en hvað um Bandaríkin? Þar er mikið af fólki sem hægt er að féfletta.

Emil Hannes Valgeirsson

Magnús Helgi Björgvinsson, 12.12.2009 kl. 22:02

5 Smámynd: Elle_

Ég held þau og stuðningsmenn þeirra hljóti að verða skaðabótaskyld fyrir að allar blekkingarnar og lygarnar ætlaðar til að koma fjárkúgun yfir þjóðina. 

Elle_, 13.12.2009 kl. 23:21

6 Smámynd: Elle_

Átti að vera: Ég held þau og stuðningsmenn þeirra hljóti að verða skaðabótaskyld fyrir allar blekkingarnar og lygarnar ætlaðar til að koma fjárkúgun yfir þjóðina.  Magnús Helgi, mæli með að þú lesir pistil Lofts frá í gær:

Nýlenduveldin bera alla ábyrgð á Icesave-reikningunum

Elle_, 13.12.2009 kl. 23:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband