Samfylkingin á toppi siðspillingar og þjóðsvika


    Komið er á daginn að Samfylkingin er flokka hæðst á toppi
siðspillingar og þjóðsvika á Íslandi í dag. - Siðspillingar með
því að verðlauna  helsta  svikahrappinn  í  Icesave-glæpnum,
efnahagshruninu, með því að leyfa honum að  reisa gagnaver
með  beinum  styrkjum úr ríkissjóði. Og þjóðsvika með  því  að
láta saklausa  þjóðina greiða fyrir Icesave-glæpinn, sem hún
ber alls enga lagaleg skylda að gera. -  OG ÞRÁTT FYRIR YFIR-
GNÆFANDI ANDSTÖÐU ÞJÓÐARINNAR í hverri skoðanakönnun-
inni á fætur annarri.  Nú síðast í  dag.  Allt til að geðjast útrásar-
mafíuinni  og erlendum nýlendukúgurum, til að komast að altari
Brussels- valdsins. -  Þótt það kosti hrun íslenzka velferðarkerfi-
sins til frambúðar, afsals fullveldis og helstu auðlinda. En ESB-
aðild og Icesave-ánauðin mun orsaka það allt. Og allt gerist þetta 
með dyggum stuðningi hérlendra afdánkaðra kommúnista!

   Er hægt  að  komast  hærra  í siðspillingu, siðblindu og  þjóð-
svikum ?

   ÁFRAM ÍSLAND! EKKI ESB né SCHENGEN! EKKERT ICESAVE né AGS

   www.fullvalda.is
   www.frjalstisland.is
mbl.is 70% vilja hafna Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Glöggi Guðmundur !

 Þú hefur mjög lög að mæla -  " Þó það kosti hrun íslenska velferðarkerfisins, afsal fullveldis og helstu auðlinda"Þá SKAL Ísland í ESB og lúta Icesave.

 Svik Samfylkingar & v-grænna jaða við hrein landráð.

 Enn - eiga menn að vera hissa ?

 Hefur almenningur áttað sig á, að af tólf ( 12) ráðherrum - eru hvorki meira né minna en níu - endurtek níu ( 9) fyrrverandi félagar í Alþýðubandalaginu - áður Sameiningarflokki alþýðu sósialistaflokknum - þar áður Kommúnistaflokki Íslands !!

 Hugsjónir íslenskra sósialista eru um það bil að rætast.

 " Sovét-Ísland" óskalandið að rísa úr sæ !!

Kalli Sveinss (IP-tala skráð) 17.12.2009 kl. 21:45

2 identicon

Nú held ég að þið séuð að rugla saman alþýðuflokki og sosialistaflokknum sáluga,það er auðvitað alþíðuflokkurinn sem kemur með spillinguna inn í samspillinguna ekki sósíalistar ,var ekki alþýðuflokkurinn alltaf í rasgatinu á íhaldinu ,ég kalla þá rassasleikjur ,og núna á að sleikja rasgatið á Björgúlfonum sem búnir eru að rústa hér öllu með aðstoð íhaldsins og KB og Glittni og er ekki einhver framsóknarþefur í lofti líka.

Kata hljóp og mæðd hún hljóp,

myrkur hljóp upp haugur,

Bjöggi hljóp og piltur hljóp,

prettvís hljóp þá draugur.

mbk DON PRTRO

H Pétur Jónsson (IP-tala skráð) 17.12.2009 kl. 22:23

3 Smámynd: Elle_

Ekkert skyldi koma okkur á óvart úr þessum andstyggðarflokki.  Ýmist eru þau að koma óreiðu- og/eða glæpamönnum inn í fyrirtæki landsins, pínandi þjóðina undir erlent vald eða kúgandi hana undir skuldaánauð erlendra ríkja.  Flokkurinn er eitraðasti hópur fólks sem komist hefur til valda í landinu.

Elle_, 19.12.2009 kl. 22:42

4 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Takk fyrir innlitin hér.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 20.12.2009 kl. 20:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband