Icesave-stjórnin fer frá hafni þjóðin Icesave


   Það þarf ekki formann Sjálfstæðisflokksins til að segja við erlenda
fjölmiðla að falli Icvesave í þjóðaratkvæðagreiðslunni  fellur Icesave-
stjórn þeirra  Jóhönnu og Steingríms sjálfkrafa. Því eftir slíkan ósigur 
verður samningsstaða ríkisstjórnarinnar enginn, enda ENGINN sam-
ningsgrundvöllur til frá upphafi í Icesave-klúðrinu. Engar skuldbind-
ingar né lagaákvæði,  hvorki á hendur ríki eða þjóð eru til í öllu Ice-
save-ferlinu. Eins og komið er á daginn. Einungis kúgun og hótanir
nýlenduvelda, með aðstoð ESB, og hérlendra þjóðsvikara,  sem búið
hafa til alla þessa Icesave-martröð frá upphafi. Því á formaður Sjálf-
stæðisflokksins og stjórnarndstaðan alls ekki að ljá máls um nýjum
samningum! Samning um hvað?  

   Það verður því STOLT ÞJÓÐ sem KOLFELLIR Icesave-þjóðsvikin
í komandi kosningu. STOLT ÍSLENZK ÞJÓÐ sem flæmir kúgarana
af höndum sér og málsvara þeirra á Íslandi! 

   ÁFRAM ÍSLAND! EKKI ESB né SCHENGEN! EKKERT ICESAVE né AGS!

   www.fullvalda.is
   www.frjalstisland.is


mbl.is Bjarni: Snýst um líf ríkisstjórnarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar

þú kallar núverandi stjórn Icesave stjórnina.  Icesave var ekki stofnað og varð ekki til í tíð núverandi ríkisstjórnar.  Núverandi ríkisstjórn er að erfa vandamál sem sjálfstæðisflokkurinn skildi eftir sig enda er Icesave skilgetið afkvæmi sjálfstæðisflokksins í alla ættliði.  En í stað þess að reyna að hjálpa til við að leysa málið  þá þvælist sökudólgurinn eins mikið fyrir og mögulegt er og auðtrúa sálir sem styðja þennan glæpaflokk fylgja hjörðinni.

Óskar, 13.1.2010 kl. 07:34

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Samfylkinginn ber HÖFUÐ ábyrgð á Icesave, með yfirstjórn allra bankamála og fjármálaeftirlits meðan Ivesave fékk að þenjast út.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 13.1.2010 kl. 13:35

3 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

ekki nokkur ástæða að vera anda "súrefni" á glæðurnar, ríkisstjórnin fer frá en verum ekki að lengja líf hennar með óþarfa spámennsku - klárum Icesave kosningarnar, þjóðin fólkið á rétt á að fá að kjósa

Jón Snæbjörnsson, 13.1.2010 kl. 16:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband