ESB-sinnar í Sjálfstæðisflokknum virða ekki landsfundarsamþykktir


    Þetta er vandamál Sjálfstæðisflokksins. ESB-sinnar innan flokksins
virða ekki  landsfundarsamþykktir  í  Evrópumálum. OG KOMAST UPP
MEÐ ÞAÐ! Meir  að segja  þingmaður flokksins, Ragnheiður Ríkharðs-
dóttir segist eftir sem áður vera ESB-sinni  og starfa sem slík  á Al-
þingi.  Þorgerður  Katrín fyrrv. vara-formaður  boðar komu sína  á
þing í haust og  segist  berjast fyrir aðildarumsókninni. Þorsteinn
Pálsson fyrrv. formaður flokksins segist ekki vera á leið úr flokk-
num, og muni vinna að aðild Íslands að ESB. - ÞRÁTT FYRIR SAM-
ÞYKKTIR LANDSFUNDAR um að ESB-umsókninni skulu dregin til
baka. En einmitt þarna eru ESB-sinnum rétt lýst. Virða engar lýð-
ræðislegar niðurstöður og meirihlutavilja NÁKVÆMLEGA EINS OG
BÁKNIÐ Í BRUSSEL gerir! 

    Já þetta er vandamál Sjálfstæðisflokksins að geta ekki kveðið
jafn alvarlegan draug niður og ESB-trúboðið innan flokksins. Sem
gerir ekki flokkinn trúverðugan í Evrópumálum, því ESB-trúboð
hans mun alltaf sæta færist að ná völdum innan flokksins.  M.a
vegna þessa hef ég ekki getað gengið í Sjálfstæðisflokkinn.

   Fyrir okkur til hægri í íslenzkum stjórnmálum á þjóðlegum for-
sendum og alfarið ESB-andstæðinga, hljótum því að horfa í aðrar
áttar. T.d HÆGRI GRÆNIR hafa boðað framboð í ÖLLUM kjördæm-
um í næstu kosningum. En þar á bæ fengi ESB-óværan ALDREI
að grassera. Yrði umsvifalaust hent út um leið og hún  gnauðaði
á glugga.  

   ÁFRAM ÍSLAND! EKKI ESB né SCHENGEN! EKKERT ICESAVE né AGS!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Björn Birgisson

Kannski fá Hægri grænir 1-3% og engan mann kjörinn.

Björn Birgisson, 5.7.2010 kl. 00:38

2 Smámynd: Björn Birgisson

Kannski verða Hægri grænir svona eins og Ástþór í pólitíkinni!

Björn Birgisson, 5.7.2010 kl. 00:39

3 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Kannski 25% og 18 menn kjörna Björn!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 5.7.2010 kl. 00:39

4 Smámynd: Björn Birgisson

Þú segir aldeilis fréttirnar! Er það nú líklegt?

Björn Birgisson, 5.7.2010 kl. 00:40

5 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Alla vega ekki eins og SAMFYLKINGAR,,BESTI FLOKKURINN" skandallinn í
Reykjavík!  Ástþór kemst ekki í hálfkvíst við allt það rugl!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 5.7.2010 kl. 00:43

6 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Jú hvers vegna ekki?  NÝTT ÓSPILLT hægra framboð!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 5.7.2010 kl. 00:44

7 Smámynd: Björn Birgisson

Guðmundur minn, tæplega 35% borgarbúa kusu Besta flokkinn. Voru það bara bjánar?

Björn Birgisson, 5.7.2010 kl. 00:47

8 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

  Já! Það er rétt,hversvegna ekki?

Helga Kristjánsdóttir, 5.7.2010 kl. 00:48

9 Smámynd: Benedikta E

Í þjóðarpúlsi Gallup í vikunni mældist Besti flokkurinn með 3 % fylgi - það gat ekki byrjað fyrr að hrynja af honum fylgið.

Benedikta E, 5.7.2010 kl. 00:59

10 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Björn. Það var meiriháttar slys hjá Hönnu Birnu að festa sig í vef stjórnleysingjanna í svokölluðum ,,Besta flokki" og láta þá og sósíaldemókratanna kjósa sig sem forseta borgarstjórnar. Og taka þar
með 100% ábyrgð á ruglinu. Og svikja þannig alla borgarasinnaða kjósendur.

Nei 35%   kjósenda ,,Besta flokksins" voru engir bjánar. Voru í góðri trú.
En kusu köttinn í sekknum! Og sitja nú eftir með sárt ennið, sbr. stjórnarformaðurinn í Orkuveitunni með milljón á mánuði.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 5.7.2010 kl. 01:00

11 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Sem er ALGJÖR SKANDALL!"

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 5.7.2010 kl. 01:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband