Brussel-blaðið á fullu! ESB Ísland, hvenær kemur þú?


   Þetta fer að minna mann á hin pólitísku átök kalda-stríðsins.
Nema í stað Sovétríkjanna sem gerðu allt til að sölsa undir sig
Ísland eins  og  önnur Evrópuríki, er komið  EVRÓPUSAMBAND.
Með sama markmið. Nema hvað í stað óþjóðholla kommúnista
hérlendis sem unnu með Moskvuvaldinu, eru komnir ESB-istar
hérlendis sem vinna nú með Brusselvaldinu við innlimun Íslands.
En í stað ákallsins Sóvet Ísland, hvenær kemur þú, er nú hrópað
ESB-Ísland, hvenær kemur þú? Og í stað Þjóðviljans er útbreiddi
hinn kommúníska áróður forðum, er komið Fréttablaðið, málpípa
ESB-áróðursins á Íslandi. 

    Leigupennar ESB-áróðursins spretta nú upp eins og gorkúlur,
enda  ESB búið  að  merkja 4  milljarða til  áróðurs sins á Íslandi.
Einn þeirra er Baldur Þórhallsson, sem farinn er að líkjast áróðurs-
meistara kommúnista  forðum, Einari  Olgeirssyni.  Ritar grein í
Brussel-blaðið í gær með froðufellandi ESB-áróðri. Og ásakar þjóð-
frelsissinna fyrir nánast drottinssvik. ,, Það að grafa undan sam-
ninganefnd Íslands er að grafa undan hagsmunum þjóðarinnar,
ritar leigupenni ESB á Íslandi í Brussel-blaðið sitt í gær. 

   Kommúnistar voru snillingar að útmála svart, hvítt. Hafa enda-
skipti á sannleikanum. Eins og ESB-istinn Baldur í Brussel-blaðinu.
Því hvernig er hægt að grafa undan hagsmunum þjóðarinnar með
því að grafa undan nefnd sem á það hlutverk fyrir höndum,  að
grafa endanlega undan þjóðfrelsi íslenzkrar þjóðar, fullveldi henn-
ar og sjálfstæði, auk yfirráðum yfir  hennar helstu auðlindum? Þetta 
vilja  Baldur og ESB-istar hans ekki skilja, ekki frekar en Einar Olgeirs-
son, og lævísu kommúnistarnir hans í denn.  Enda hvort tveggja
dulbúinn rasismi gegn íslenzkri þjóð og hennar þjóðarhagsmunum.

   ÁFRAM ÍSLAND! EKKI ESB né SCHENGEN! EKKERT ICESAVE né AGS!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Guðmundur.

" dulbúin rasismi gegn íslenzkri þjóð " eru orð sem hitta naglann á höfuðið í þessu efni.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 6.8.2010 kl. 00:58

2 identicon

Heill og sæll Guðmundur Jónas - sem og Guðrún María, og aðrir gestir !

Jú; jú. Nú er það; ómengaður frjálshyggju Kapítalisminn, með Kommún ísku ívafi; sem fer, sem eldur um sinu vesturhluta álfunnar, gott fólk.

Erindrekum ESB; þarf að svara, á allan mögulegan máta - með hernaði, ef ekki vill betur.

Mðe beztu kveðjum; sem æfinlegast /

Óskar Helgi 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 6.8.2010 kl. 01:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband