Ráðist á fötluð börn. TIL FJANDANS með svona ríkisstjórn !


   Öllu hefur maður átt von á af þessari ömurlegri andþjóðlegri
ríkisstjórn. -   En að  hún  skuli  leggjast  SVO  LÁGT að ráðast 
á fötluð börn  er  það síðasta sem  manni  hefur dottið í hug að
hún skyldi gera. -  En  RÚV segir  frá því í  kvöld  að vegna fjár-
skorts  sé  ekki  lengur hægt að  bjóða  fötluðum börnum upp
á helgardvöl  í  Reykjadal  í  vetur, sem  muni kosta skitnar
15  milljónir króna!

   Halló! Hvar er  nú  allt  þetta  fróðufellandi  vinstralið  kenn-
andi sig  við  einhverja  félagshyggju  og alles? Hvernig í ver-
öldinni  getið  þið látið  svona nokkuð gerast? Á sama tíma og
vinstristjórn Jóhönnu og Steingríms þykir EKKERT MÁL að greiða
50  MILLJARÐA bara í vexti á ári vegna Icesavs útrásarmafíuósa,
og fleiri milljarða í  ESB-RUGL og KJAFTÆÐI, er ekki lengur hægt
að greiða litlar 15 milljónir fyrir helgardvöl fatlaðra barna nú  í
vetur.

    Vinstrimennskan í hnotskurn! 

   TIL FJANDANS MEÐ SVONA ÖMURLEGA RÍKISSTJÓRN!!!!!!!!! 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Björn Birgisson

Guðmundur minn, sparaðu stóru orðin. Viðskilnaður hægri manna var slíkur að víða verður að færa fórnir.

Þarf ekki kirkjan að skera niður? Er það ekki slæmt fyrir liðið sem sífellt kýs að nudda sér utan í Krist, til að fá réttlætingu og fyrirgefningu á umdeildum leiðum til eigin gróðavæðingar?

Kreppan og viðskilnaðurinn kemur alls staðar við.

Líka hjá börnum og öldruðum.

Þér væri nær að hætta þessum heimskulegu upphrópunum. Gerðu þér grein fyrir því að þær vekja aðeins aðhlátur hjá þeim sem standa nú, upp fyrir axlir, í að bjarga því sem bjargað verður, eftir þeysireið nýfrjálshyggjunnar yfir landið okkar, sem aldrei skyldi verið hafa.

Ef þetta er tónninn í Hægri grænum munu þeir fá færri atkvæði en Ástþór Magnússon hefur nokkru sinni fengið.

Þá er nú til lítils barist - eða hvað?

Björn Birgisson, 8.8.2010 kl. 21:39

2 identicon

Heilir og sælir; Guðmundur Jónas, og Björn Ísfirðingur - sem aðrir, hér !

Björn !

Ég hlýt; að taka undir, hvert orða Guðmundar. En; ........... jafnframt, vil ég taka undir, með þér. Glæpsamlegar ''hægri stjórnirnar''; sem reyndar má kallal ómerkilegt  miðjumoð, lögðu jú grunninn að því ófremdarástandi, sem hér ríkir, ágætu drengir.

Umhverfisstofnun - Umhverfisráðuneyti - Varnarmálastofnum - 98% Utanríkisráðuneytis, auk fjölmargra annarra óþarfa stofnana, myndu spara okkur tugi Milljarða, hvert á, með því að verða lagðar niður, að grunni.

Svo; ekki sé nú minnst, á STASI eftirmyndina, svokallaða Fjölmiðla stofu, sem Katrín Jakobsdóttir Mennta- og menningarmála ráðherfa, er að leggja lokahönd á, piltar. Þar; eru 25 afætur (störf), í burðarliðnum, eitt og sér, piltar.

Með beztu kveðjum; sem jafnan /

Óskar Helgi   

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 9.8.2010 kl. 00:25

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Tek undir með þér Guðmundur Jónas.
 
En því miður Guðmundur. Umsóknarferli ríkisstjórnarinnar inn í ríki fátæktarinnar, ESB, kostar nokkra miljarða, svo það eru því miður ekki til peningar fyrir þá sem eiga um sárt að binda eins og fatlaða og sem geta ekki svarað fyrir sig. Þetta er kölluð skálbog ríkisstjórnar Samfylkingar og Vinstri grænna. Hægt en bítandi er verið að leggja Ísland niður. Hin samfélagslega AIDS eyðni Evrópusambandsins á Íslandi er hafin.
 
Ég bjó í 25 ár í svona niðurlagningarferli ESB í Danmörku. Þetta eru bara byrjunareinkenni fullveldisafsalsins og ósjálfstæðis. Næst verður ekki hægt að gera neitt af ótta við viðbrögð Brussels. Evrópuelítan er nú við völd Guðmundur. Peningarnir fara í Brussel kolanámuna. Þú borgar.
 

Gunnar Rögnvaldsson, 9.8.2010 kl. 00:29

4 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Tek undir með þér Guðmundur Jónas og segi sveiattan við orðum B. Birgissonar þar sem það voru hægri menn sem komu hér á góðæri eftir þreyngingar  tíma S.Hermannssonar og Co. 

Það var ekki fyrr en að Davíð fór að það fór að slá í baksegl  hjá Hornarfjarðar stráknum og svo fór allt til andskotans þegar I. Sólrún kom með sinn hroka og lukkutröll Samfylkingarinnar Ö. Skarphéðinsson. 

Það var nú eldamennska sem óþarft er að kenna hægrimönnum um.  Og þó, það kom í ljós að Geir H. var rola og lét þessa Samfó kerlingu teyma sig á asnaeyrunum.

Hrólfur Þ Hraundal, 9.8.2010 kl. 01:33

5 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Takk Óskar, Gunnar og Hrólfur.

Björn. Helt þú værir ekki svona blindur stuðningsmaður þessarar ömurlegu
vinstristjórnar að þú reyndi að verja þetta hneyksli varðandi þessa svívirðilega framkomu gagnvar fötluðum börnum. Sérstaklega þar sem þessi óþjóðholla vinstristjórn sér EKKERT við því að borga heila 50 milljarða
í ólögvarða kröfu um icesave fyrir utan alla milljarðana sér fara í ESB-ruglið
til að gera Ísland ósjálfstætt og framselja auðlindir Íslands til yfirþjóðlegs
valds í Brussel.

  Þetta sýnir bara hvað vinstrimennskan er mannfjandsamleg og hættuleg
frelsi þjóða nái vinstriöflin völdum. Því segir ég. TIL FJANDANS MEÐ ÞESSA
MANNFJANDSSÖMU og ANDÞJÓÐLEGU VINSTRISTJÓRN!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 9.8.2010 kl. 08:44

6 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

P.s 50 milljarða ÁRLEGA vegna Icesave

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 9.8.2010 kl. 08:46

7 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Bara að minna á að ríkið styrkir Reykjadal nú og hefur gert. En það gera sveitarfélög líka. Og skv. fréttum er það helgarvistun nú síðustu mánuði þessa árs sem eru í hættu og þar er ekki bara við ríkið að sakast þar sem að sveitarfélög hafa lagt til styrki með hverju barni held ég sem þarna fer og það hefur verið dregið úr því. En bendi á að það hefur verið dregið úr þjónustu líka á sjúkarhúsum og í þjónustu við fatlaða. Við erum ekki greiða neitt af Icesave enn  og það er komið í ljós að eignir Landsbanka duga fyrir 90% af icesave og að vaxtagreiðslur verða aldrei svona háar - 50 milljarðar á ári!

Magnús Helgi Björgvinsson, 9.8.2010 kl. 09:49

8 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Magnús. Reyndu ekki hér á síðu minni að reyna að verja þessa ósvífinni
stjórnvalda á nokkurn hátt. Hún er ALGJÖR og þið Björn ættuð frekar
að krefja ríkisstjórnina að grípa hér TAFARLAUST inn í  en að reyna að bera
í bætifláka fyrir þetta hér. Tók bara Icesave sem dæmi um HUGARFAR ykkar vinstrimanna hér, sem er GJÖRSAMLEGA ÚT Í HÖTT og segir mér hvað þessi vinstrimennska ykkar er lævís og í raun vinnandi á móti öllum mannlegheitum og þjóðarhagsmunum. Hef ALDREI verið eins mikill ANTI-vinstrisinni og í dag. Þökk sé hinni ÖMURLEGU vinstristjórn  á Íslandi í dag! 

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 9.8.2010 kl. 10:18

9 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

,,ósvífni!  átti þetta að vera.....

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 9.8.2010 kl. 10:19

10 Smámynd: Jóhann Elíasson

Satt segirðu, en ekki kemur það á óvart að harðir "kommar" og aðrir sem styðja "ríkisstjórn fólksins" skuli verja svona ódæðisverk sem einungis vanheilu fólki dettur í hug.  Manni varð hreinlega óglatt við tilhugsunina, HVERS KONAR FÓLK STJÓRNAR HÉRNA?????

Jóhann Elíasson, 9.8.2010 kl. 14:40

11 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Satt segirðu Jóhann. Ómennska- og andþjóðlegheit virðast ENGIN TAKMÖRK sett hjá þessari vinstristjórn ESB og krata.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 9.8.2010 kl. 14:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband