Aulahátturinn ALGJÖR!


   Þegar nær 2 ár eru liðin frá efnahagshruninu mikla ganga
helstu forsprakkar þess lausir, eins og ekkert hafi gerst.
Engin  ákæra  hefur verið  gefin  út á helstu mafíuósanna.
Og  svo  virðist  að þeir  stjórni  yfirheyrslum komi til þeirra.
Eva Joly nánast  týnd orðin. AULAHÁTTURINN ALGJÖR! Enda
stjórnsýslan og embættismannakerfið nánast það sama og
fyrir hrun! - Meir að  segja sitja enn HRUNRÁÐHERRAR enn í
ríkisstjórn Íslands. Þar á meðal sjálfur forsætisráðherrann.
Sem gerir Ísland að algjöru aðhlátursefni um heim allan.

   Þjóðin krefst því kosninga strax! Svo að hin nauðsýnlega
HREINSUN og UPPSTOKKUN geti farið fram. Bæði í stjórn-
málum og stjórnkerfi!

   ÁFRAM HÆGRI GRÆNIR! 

 
mbl.is Yfirheyrsla í fyrramálið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Samála þetta eru landráð og þjóðarsvik sem eru í gangi

Sigurður Haraldsson, 18.8.2010 kl. 21:31

2 identicon

Heyr heyr, burt með þetta viðbjóðslega spillta landráðapakk strax

Árni Karl Ellertsson (IP-tala skráð) 18.8.2010 kl. 21:36

3 Smámynd: Björn Birgisson

Guðmundur Jónas, ég á Það til að stríða þér svolítið, en þú þolir það vonandi ágætlega. Ég ætla ekkert að stríða þér núna!

Ég er alveg sannfærður um að þegar kemur að kosningum munu ný öfl skjóta upp kollinum og reyna að höfða til kjósenda.

Hægri grænir ætla sér það segir þú. Komnir með hvað 1000-1300 félaga?

Leiðréttu mig fari ég rangt með.

Hægri grænir eru ekkert að kynna sig sérstaklega. Ég frétti af ykkur hér á Moggablogginu og þú hefur sagt mér að þið séuð á Fésbókinni, sem ég fer nánast aldrei inn á.

Ég spyr: Af hverju eruð þið ekki komnir í sjónvarpið, dagblöðin og útvarpið? Það þarf ekki mikla ýtni til að pota sér inn á öllum þeim stöðum.

Eruð þið of rólegir eða fylgist ég of illa með?

Björn Birgisson, 18.8.2010 kl. 22:46

4 identicon

Kæri Björn, ég mæli með Facebook, þar eru 150.000 Íslendingar. Það er ekkiert mál að koma sér í gírinn þar.

Stjórnmálaflokkurinn Hægri Grænir var stofnaður 17. júní síðastliðinn. Eins og er eru um 1100 manns gengin í þessi nýju stjórnmálasamtök, en um 12.000 manns eru skráð á baráttusíður tengdar Hægri Grænum. Við erum að koma okkur upp vefsvæði, almmennu sem er opið ollum. Við erum að koma okkur upp húsnæði. Þessir hlutir kosta peninga.

Hægri Grænir telja að ríkisstjórn Jóhönnu er algjörlega sjálbær um að koma sér frá sjálf með skömm. Stórnarandstaðan er einnig lömuð.

Það verða eflaust 10 - 12 smáflokkar í framboði næst og er það fínt. Ég spái 4flokknum minna en 50% kosningu.

Hægri Grænir ætla að taka kosnigabaráttuna með stormi og sá stormur hefst þegart við vitum hvenær kosningarnar verða ekki fyrr. Á meðan róum við vandlega og undirbúum okkur vel í stríðið.

Með kærri kveðju, Guðmundur Franklín Jónsson, formaður HG

Guðmundur F Jónsson (IP-tala skráð) 19.8.2010 kl. 08:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband