Kommúnistinn Ögmundur vill engar forvarnir í öryggismálum


    Kommúnistinn Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra
er algjörlega samkvæmur sjálfum sér þegar hann segist
mótfallinn forvörnum í öllum öryggismálum þjóðarinnar. En
fyrrverandi dómsmálaráðherra hugðist eðlilega reyna  að
efla þær eins og ALLAR AÐRAR ÞJÓÐIR gera. Því númer eitt
er að tryggja INNRA ÖRYGGI Þjóða,  samfara ytra öryggi.
Hvorugt vill hinn nýskipað innanríkisráðherra gera. Enda
ALGJÖR SKANDALL að kommúnisti eins og hann skuli vera
nú gerður ábyrgur fyrir  þjóðaröryggismálum þjóðarinnar.
Maðurinn sem ætíð hefur talað gegn  ÖLLU slíku, nú síðast
gagnvart veru Íslands í NATO! Enda hérlendir vinstrimenn
viðundur þegar kemur að öllu því sem nefnist þjóðarörygg-
ismál Íslendinga.

  Í herlausu landi er það auðvitað lágmarkskrafa að lögregla
og sérsveit hennar  sé  sem  virkust  og öflugust. Ekki síst
greiningardeild, sem hiklaust á að þróa yfir í leyniþjónustu
á sama plani meðal annarra þjóða, ekki síst meðan Íslend-
ingar  hafa enn ekki  komið sér upp  her  í  stað Landhelgis-
gæslu, sem einnig ber að efla sem mest..........

   ÁFRAM VARIÐ ÍSLAND!
mbl.is Efins um forvirkar rannsóknir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

 Auðvita á að vera her á Íslandi, íslenskur her.   Því ef ekki þá erum við í augum heimsins bara auðnuleysis ræflar sem treysta á aðstoð nágrannans ef í harðbakkann slær. 

Við þykjumst vilja fá að ráða innan þeirra sambanda sem við erum aðilar að og við þykjumst hafa vit á málum, samanber Ingibjörg Sólrún

En sá sem hefur skömm á hermálum er ónothæfur sem ráðgjafi  varðandi hermál  vegna þess að hann nennir ekki og skilur ekki eðli og gagnsemi þjóðarhers. 

Það tekur minnst 30 ár að koma á legg alþjóðlega trúverðugum her. En það tekur ekki nema 5 ár að koma á legg her sem Ísensk þjóð getur verið stolt af.

Loftrýmisgæslu eigum við að sjá um sjálf með okkar mannafla og tæknilegri aðstoð frá Nato.  Við höfum þörf fyrir þá þekkingu og reynslu sem það bíður uppá og hún fræst ekki annarstaðar.

Hrólfur Þ Hraundal, 8.9.2010 kl. 12:07

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Sammála 100% Hrólfur!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 8.9.2010 kl. 20:29

3 Smámynd: Elle_

Sammála ykkur, Guðmundur og Hrólfur.

Elle_, 9.9.2010 kl. 22:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband