Samþykkja Vinstri grænir ESB-styrkina í fjárlagafrumvarpinu ?
16.9.2010 | 00:20
Nú reynir fyrir alvöru á hvort Vinstri grænir ekki bara samþykkja
aðildarumsóknina að ESB, heldur líka sjálft AÐLÖGUNARFERLIÐ.
Fjárlagafrumvarpið mun skera á um það eftir tvær vikur. En þar
mun koma fram veruleg fjárhæð úr ríkissjóði vegna ESB-umsókn-
arinnar á móti þeim fjórum milljörðum sem ESB hyggst ausa í
aðlögunarferlið á Íslandi, sem er ein grófasta íhlutun í íslenzk
innanríkismál frá lýðveldisstofnun. Munu Vinstri grænir taka við
slíku fé úr sukksjóðum ESB svo AÐLÖGUNARFERLIÐ að ESB geti
hafist LÖNGU ÁÐUR en þjóðin fái neitt um það að segja? Í ljósi
reynslunnar. Já. Vinstri grænir munu gera það!
En þar með er líka engin útleið eftir hjá Vinstri grænum. Þeir
eru þar með orðnir HREINRÆKTAÐUR ESB FLOKKUR eins og
systurflokkur þeirra, Samfylkingin. Með stórkostlegan fjáraustur
í ESB-rugl meðan stórlega skorið er niður til velferðarmála. Fyrir
utan Icesave-skuldadrápsklyfjarnar sem þessir tveir vinstriflokk-
ar vilja leggja á þjóðina henni algjörlega að ósekju. Vinstrivillu-
mennskan hefur ALDREI toppað eins svakalega á Íslandi eins
og nú.
ÁFRAM ÍSLAND! EKKI ESB né SCHENGEN! EKKERT ICESAVE né AGS!
Tilvís. HÆGRI GRÆNIR á Facebook með á annað þúsund meðlimi...
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:24 | Facebook
Athugasemdir
Fyrir utan Icesave-skuldadrápsklyfjarnar sem þessir tveir
vinstriflokkar vilja leggja á þjóðina henni algjörlega að ósekju.
Eg minni á að Sjálfstæðismenn eiga þennan kafla skuldlausan!
Barbatus (IP-tala skráð) 16.9.2010 kl. 20:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.