Furðulegt eilíft vinstradaður Sjálfstæðisflokksins !
23.11.2010 | 00:23
Ekki ómerkari sjálfstæðismaður en Styrmir Gunnarsson veltur
þeirri spurningu upp á evrovaktin.is hvort ekki sé hægt að
byggja upp traust milli Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna? Svo
óheppilega vill til að þessari spurningu er varpað fram nær á
sama tíma og einn þingmanna Vinstri grænna upplifir flokk sinn
sem kommúnistaflokk. Enn oftar en ekki hefur einmitt Sjálfstæðis-
flokkurinn unnið til vinstri, einkum með sósíaldemókrötum, með
skelfilegum afleiðingum. Og nú vill viss kjarni innan Sjálfstæðis-
flokksins bæta um betur, og vinna enn lengra til vinstri, og það
með sjálfum kommúnistum.
Er að furða að fjölmargir borgarasinnaðir kjósendur og þjóð-
hollir hægrisinnar séu ráðvilltir gagnvart þessu furðufyrirbæri
Sjálfstæðisflokkur? Sem raunar setti þjóðina á hausinn vegna
yfirgengilegs aulaháttar, agaleysis og umfram allt stjórnleysi.
Í nánu samstarfi við vinstriöflin og miðjumoðið í íslenzkum
stjórnmálum.
Og enn kalla virðulegir sjálfstæðismenn til vinstrasamstarfs.
Meir að segja til alræmda kommúnista, sem standa að mestu
aðför að fullveldi og sjálfstæði Íslands sbr. ESB-umsókn, og
vítaverðri árás á lífskjör almennings til tuga ára, sbr.. Icesave,
ofan á allt hrunið af mannavöldum í stjórnartíð Sjálfstæðis-
flokksins.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur gjörsamlega brugðist sem hið
öfluga þjóðholla hægraafl í þágu almennings á Íslandi. Meir
að segja er haldið uppi skrípaleik trúða í borgarstjórn Reykja-
vikur í boði forseta borgarstjórnar úr röðum Sjálfstæðisflokk-
sins!!!!!!
Nýtt ALVÖRU þjóðhollt hægrisinnað stjórnmálaafl er því frum-
forsenda þess að nýtt öflugt Ísland rísi með þjóð er hafi óbil-
andi trú á íslenzka framtíð. OG SÉ HVÖTT TIL ÞESS! Hvort það
verða HÆGRI GRÆNIR eða aðrir, á eftir að koma í ljós, en samt
vel þess virði að framfarasinnaðir þjóðhollir hægrimenn líti nú
til þeirrar áttar....
Tilvís. HÆGRI GRÆNIR á facebook.....
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:24 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.